Viðmiðunarverð á bensínlítra til neytenda lækkaði lítillega á milli mánaða, alls um 2,3 krónur, og var 321,6 krónur á lítra um miðjan aprílmánuð. Sú lækkun fylgi í kjölfar þess að lítrinn hækkaði skarpt mánuðinn á undan, eða um 10,8 krónur.
Í krónum talið er verðið í dag 66 prósent hærra en það var fyrir tæpum fjórum árum, í maí 2020. Að teknu tilliti til verðlagshækkana hefur hver seldur bensínlítri hækkað að raunvirði um 28 prósent á þeim tíma.
Þetta má lesa út úr nýrri bensínvakt Heimildarinnar.
Ýmislegt í henni bendir þó til þess að frekari hækkun sé í kortunum. Þannig hækkaði líklegt innkaupaverð eldsneytissala umtalsvert milli mánaða, eða um 18 prósent. Þeir kaupa allir olíuna sem þeir selja af sama aðilum, Equinor í Noregi. Samhliða gaf gengi íslensku krónunnar eftir gagnvart Bandaríkjadal, en öll innkaup á eldsneyti fylgja gengi hans.
Álagning olíufélaga á Íslandi nú rúmlega 18 prósent af hverjum seldum lítra. Til samanburðar var álagning um 20 prósent fyrir tæpu ári síðan og hefur almennt verið hlutfallslega meiri síðustu mánuði. Sögulega þá halda íslensku eldsneytissalarnir í sér að velta hækkunum vegna breytinga á heimsmarkaðsverði eða gengis í sér í nokkra mánuði, meðal annars vegna þess að gengið er á birgðir sem keyptar hafa verið á öðru verði, en á endanum skila þær sér ætið út í verðlag.
Kílómetragjald frá og með næstu áramótum
Hlutur ríkisins í hverjum seldum bensínlítra samanstendur af virðisaukaskatti, almennu og sérstöku bensíngjaldi og kolefnisgjaldi. Alls er virðisaukahlutfallið sem leggst á bensínlítrann 19,35 prósent, almenna bensíngjaldið hækkaði úr 32,5 krónum í 33,7 krónur um síðustu áramót og sérstaka bensíngjaldið fór úr 52,45 krónum í 54,3 krónur. Þá hækkaði kolefnisgjaldið úr 11,3 krónum í 11,7 krónur.
Alls tekur íslenska ríkið nú um 161,95 krónur af hverjum seldum lítra af bensíni, eða um 50,3 prósent.
Umfangsmesta breytingin á sviði skatta sem leggjast á bifreiðar er upptaka svokallaðs kílómetragjalds, en innheimta þeirra á hreinorkubíla hófst í upphafi árs. Nú greiða rafbílar mánaðarlega til ríkisins sex krónur fyrir hvern ekinn kílómetra, svo dæmi sé tekið um virkni fyrirkomulagsins.
Um næstu áramót á svo að leggja kílómetragjald á bíla sem ganga fyrir bensíni og dísil. Ekki liggur fyrir hversu hátt það verður. Í staðinn munu einhverjir skattar sem innheimtir hafa verið á hvern seldan lítra af jarðefnaeldsneyti verða afnumdir, en þessir fjármunir eru hugsaðir til þess að greiða fyrir samgöngukerfið. Kolefnisgjald verður þó áfram innheimt af þeim bílum sem nota jarðefnaeldsneyti.
Gögn og aðferðafræði
Hér að ofan er birt niðurstaða útreikninga og áætlunar á því hvernig verð á lítra af bensíni skiptist milli aðila.
-
Viðmiðunarverð er fengið frá hugbúnaðarfyrirtækinu Seið ehf. sem meðal annars heldur úti síðunni Bensínverð.is og fylgst hefur með bensínverði á flestum bensínstöðum landsins daglega síðan 2007. Miðað er við næstlægstu verðtölu í yfirlitinu til að forðast að einhverju leyti áhrif tímabundinnar verðsamkeppni á allra lægsta verð. Viðmiðunarverðið er þó með lægstu verðum og sýnir þar með lægri hlut olíufélagsins en reikna má með að raunin sé meðaltalið af öllu seldu bensíni á landinu.
-
Hlutur ríkisins liggur ljós fyrir út frá sköttum sem eru ýmist fastir og hlutfallslegir. Upplýsingar um breytingar á skattalögum eru fengnar frá Viðskiptaráði sem fylgst hefur með slíkum breytingum um árabil.
-
Líklegt innkaupaverð er reiknað útfrá verði á bensíni til afhendingar í New York-höfn í upphafi mánaðar frá bandarísku orkustofnuninni EIA og miðgengi dollars gagnvart íslenskri krónu í yfirstandandi mánuði frá Seðlabanka Íslands. Í þessum útreikningum kann að skeika nokkru á hverjum tímapunkti vegna lagerstöðu, skammtímasveiflna á markaði o.s.frv. Nákvæmara væri að miða við verð á bensíni til afhendingar í Rotterdam, en verðupplýsingar þaðan liggja ekki fyrir á opnum gagnaveitum. Mismunur á verði í New York og Rotterdam er þó yfirleitt mjög lítill.
-
Hlutur olíufélags er loks reiknaður sem afgangsstærð enda haldgóðar upplýsingar um einstaka kostnaðarliði olíufélaganna ekki opinberar. Hafa ber í huga að þar sem viðmiðunarverð er með lægstu verðum á hverjum tíma er þessi liður ef til vill einhverju hærri sé litið til heildarviðskipta með bensín á Íslandi.
Verðupplýsingar miðast við verðlag hvers tíma. Gögnin eru uppfærð mánaðarlega í kringum 15. hvers mánaðar. Fyrirvari er gerður um skekkjumörk sem þó ættu í mesta lagi að nema fáeinum krónum á útreiknaða liði.
hér má sjá að nýlega hráolíuverðhækkunin gekk að einhverju leiti til baka https://github.com/gasvaktin/gasvaktin-comparison/blob/master/data/crude_oil_barrel_usd.csv.txt#L9352-L9357
vissulega hefur krónan verið að veikjast gagnvart bandaríkjadal https://github.com/gasvaktin/gasvaktin-comparison/blob/master/data/currency_rate_isk_usd.csv.txt#L10777-L10783
hægt að skoða sjónrænt á https://gasvaktin.is/comparison/