Sigríður Hrund greiddi fyrir viðtal á NBC – Verðið trúnaðarmál

Sigríður Hrund Péturs­dóttur forseta­fram­bjóðandi greiddi ásamt nokkrum öðrum konum fyrir birtingu viðtals við hana hjá bandaríska fjöl­miðlinum NBC en verðið er trúnaðarmál. Hún segist hafa viljað grípa tækifærið til þess að benda á það hve opið framboðs­ferlið er á Íslandi og til þess að sýna að venjuleg kona gæti boðið sig fram til forseta.

Átak
Átak „Það er mikið átak að standa upp og stíga fram. Sér­stak­lega þegar þú ert minna þekkt,“ segir Sigríður. Mynd: Aðsend

Sigríður Hrund Péturs­dóttir steig fyrst fram þeirra forseta­fram­bjóðenda sem enn eru stað­ráðnir í að komast á kjörseðla lands­manna þann 1. júní næst­komandi. Hún á þó á brattan að sækja, samkvæmt nýjustu fylgis­mælingu Prósents sem Morgun­blaðið birti í vikunni, en þar mældist fylgi hennar einungis 0,1%. 

Samt stendur hún keik og heldur áfram að safna undir­skriftum. Hana vantar um 500 slíkar, en alls þurfa fram­bjóðendur að safna 1.500 undir­skriftum ætli þeir sér að ná á kjör­seðilinn.

„Þú getur sagt að ég sé draumóra­manneskja en ég er ekki sú eina“, skrifar Sigríður Hrund á ensku á samfélags­miðlinum Linkedin og vísar í lag John Lennons Imagine: „You may say I'm a dreamer, but I'm not the only one“.

Með færslunni deildi Sigríður Hrund viðtali sem birtist á vef bandaríska fjöl­miðilsins NBC í Washington í síðustu viku. Viðtalið er birt með merki sem segir „Kostað“ og …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakjör 2024

InnlentForsetakjör 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum forseta­framboðsins laun: „Ég vil fá skýringar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæstaréttar­lögmaður og stofnandi Lýðræðis­flokksins hefur enn ekki greitt laun nokkurra aðila sem störfuðu við forseta­framboð hans á þessu ári. Samkvæmt heimildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokkurra einstaklinga sem unnu við forseta­framboð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upphæðir samkvæmt heim­ildunum en Arnar Þór segir í samtali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
InnlentForsetakjör 2024

Ástþór þögull um fjár­mögnun á framboði Ásdísar: „Ég er lang­flottasti forsetinn“

Ástþór Magnússon, sexfaldur fram­bjóðandi til forseta Íslands, vill ekki upplýsa strax hvort hann muni fjármagna væntanleg forseta­framboð Ásdísar Ránar Gunnars­dóttur en hún lýsti því yfir kosninga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér friðar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði forseta­fram­bjóðandinn og fyrirsætan einnig. „Ég...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár