Isaac Hefur áhyggjur af öðrum hæl­is­leit­endum sem þurfa að ganga í gegnum það sama og hann, sér­stak­lega fólki sem hefur ekki tólin og tækin and­lega til þess að takast á við erf­ið­leik­ana. Mynd: Golli

Sleppti máltíðum til þess að komast frá Ásbrú

„Stans­laust von­leysi vaknar um leið og þú mætir,“ segir ungur venes­ú­elskur hæl­is­leit­andi um Ásbrú. Þar hafi verið ómögu­legt fyrir hann, eða nokkurn mann, að aðlag­ast íslensku sam­fé­lagi – sem er atriði sem stjórn­mála­menn þvert á flokka hafa sagt mik­il­vægt. Félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hefur sagst vilja fleiri búsetu­úr­ræði á borð við Ásbrú.

Um 300 Venes­ú­ela­búar sem hafa sam­þykkt að fara úr landi bíða nú eftir texta­skila­boðum frá Útlend­inga­stofnun um fyr­ir­hug­aða brott­för. Dæmi eru um að fólk úr hópnum hafi beðið í fjóra mán­uði eftir að það sam­þykkir að fara þangað til það loks­ins fær flug­miða úr landi, með til­heyr­andi kostn­aði fyrir íslenska ríkið sem heldur fólk­inu uppi á meðan það bíður heim­farar.

Hver hæl­is­leit­andi í þjón­ustu kostar ríkið um 11 þús­und krónur á dag að með­al­tali, sam­kvæmt minn­is­blaði félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­is­ins. Því fara sam­tals tæpar 100 millj­ónir mán­að­ar­lega í að halda fólk­inu uppi á meðan það bíður heim­farar.

Isaac Rodriguez, þrí­tugur karl­maður frá Venes­ú­ela, kom hingað í ágúst­mán­uði og sótti um hæli en fékk end­an­lega neitun í febr­úar, er einn af þeim sem hefur sam­þykkt að fara heim og hrekkur …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnúsdóttir skrifaði
    EKKI ER ALLTAF GRASIÐ GRÆNNA HINUM MEGIN ÁRINNAR OG EKKI ER HELDUR ALLT GULLIÐ SEM GLÓIR HRÆVARELDAR GETA LIKA VERIÐ SKYNVILLA EINS OG TÍBRÁIN SEM MYNDAST OFT Í EYÐIMERKURHITANUM OG ÞRÁTT FYRIR ALLT VAR EG ALVEG STÁLHEPPIN AÐ FÆÐAST Á ISLANDI AF ÖLLUM ÒÐRUM STÖÐUM ÓLÖSTUÐUM
    0
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Því miður er ekki tekið á móti þeim sem leita hingað, svo þjóðinni sé sómi að.
    Getur verið að þetta sé einungis sýndarmennska og við séum að bjóða hingað mun fleiri en við getum tekið við?
    Hvaða ráðamanni datt í hug að við, okkar litla Ísland gæti tekið við ótilteknum fjölda frá Venesúela á sama tíma og vitað var að mikill fjöldi gæti þurft aðstoð frá Úkraínu?
    Getur verið að ráðamenn hugsi ekki og telji sjálfsagt að nær samfélagið sjái um þessa gesti okkar og þeir því ekki ábyrgir?
    Hvað sem er, þá vekur það furðu hvernig samfélagið tekur á þessum málum, OG ÞÁ ER ÉG AÐ TALA UM RÁÐHERRA LANDSSINS, ekki bæjarfélög sem oftar en ekki eru þvinguð til að leysa rugl ráðamanna!
    0
  • Ýrr Baldursdótttir skrifaði
    💔🥺
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flóttafólk frá Venesúela

Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.
Hafa ekki fengið lendingarleyfi: „Bíðum enn með tilbúnar ferðatöskur”
FréttirFlóttafólk frá Venesúela

Hafa ekki fengið lend­ing­ar­leyfi: „Bíðum enn með til­búnar ferða­töskur”

Flugvél sem átti að flytja venes­ú­elska hæl­is­leit­endur úr landi í lok febr­úar er enn ekki farin af stað. Sumir hæl­is­leit­end­anna voru þegar búnir að pakka í töskur og til­búnir að yfir­gefa landið þegar í ljós kom að Útlend­inga­stofnun hefði ekki fengið lend­ing­ar­leyfi. Þeir lifa nú í bið­stöðu en í Venes­ú­ela gæti beðið þeirra sól­ar­hrings varð­hald.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár