Guðmundur Ingi: „Þurfum virkilega að taka á honum stóra okkar“

Félags- og vinnu­mark­aðs­mála­ráð­herra telur umræð­una um útlend­inga snúa um of að hæl­is­leit­endum og flótta­fólki á meðan sá hópur telur ein­ungis um 10% inn­flytj­enda. Þetta hefur, að mati ráð­herr­ans, nei­kvæð áhrif á umræðu um útlend­inga á Íslandi almennt og beinir sjónum frá mik­il­vægum áskor­unum.

Guðmundur Ingi: „Þurfum virkilega að taka á honum stóra okkar“
Vitnar í ömmu „Ef ég mætti orða það eins og amma mín hefði sagt: „Það er bara ljótt. Þú gerir ekki svona“,“ segir Guð­mundur Ingi um nei­kvæða umræðu sem skap­ast hefur um útlend­inga á Íslandi. Mynd: Golli

Ísland stendur frammi fyrir „risa­vöxnum“ áskor­unum vegna mik­illar fjölg­unar inn­flytj­enda – einnar hröð­ustu innan OECD á síð­ustu árum, segir Guð­mundur Ingi Guð­brands­son félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra. En það er líka til mik­ils að vinna. 

„Við eigum að vera stolt af því að vera fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lag. Þetta er fólk sem gefur mikið til sam­fé­lags­ins – bæði í formi vinnu, menn­ingar og mögu­lega mis­mun­andi við­horfa til lífs­ins sem ég held að sé okkur öllum hollt að horfa til,“ segir ráð­herr­ann.

Hann telur að umræðan um útlend­inga á Íslandi snúi að of miklu leyti að flótta­fólki og hæl­is­leit­endum á meðan sá hópur telur ein­ungis 10 pró­sent af inn­flytj­endum lands­ins.

„Oft og tíðum er mjög nei­kvæð umræða gagn­vart þessum hópi sem er mjög við­kvæmur, hvort sem fólk fær hér vernd eða ekki. Þetta hefur síðan almennt mjög nei­kvæð áhrif á umræðu um útlend­inga á Íslandi, sama hvaðan fólk kemur,“ segir Guð­mundur Ingi sem telur að sam­fé­lagið …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Innflytjendamál

Ekkert samband á milli fjölda innflytjenda og glæpa
FréttirInnflytjendamál

Ekkert sam­band á milli fjölda inn­flytj­enda og glæpa

Fjöldi til­kynn­inga um ofbeld­is­brot á árunum eftir kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn er áþekkur fjöld­anum fyrir far­aldur, ef litið er til höfða­tölu. Ekki er sam­band á milli fjölda afbrota og inn­flytj­enda eða hæl­is­leit­enda, en það er mis­jafnt eftir löndum hvort inn­flytj­endur séu lík­legri eða ólík­legri til þess að fremja afbrot en inn­fæddir, að sögn afbrota­fræð­ings.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár