Nýr framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands er stjórnmálafræðingurinn Freyja Steingrímsdóttir. Hún hefur reynslu af hagsmunabaráttu og starfsemi stéttarfélaga, samskiptum við fjölmiðla, stefnumótun, stjórnsýslu og ýmis konar málefnaherferðum. Hún mun hefja störf í lok maí. Freyja var áður samskiptastjóri BSRB og fyrir það vann hún á Alþingi sem aðstoðarmaður Loga Einarssonar, formanns Samfylkingarinnar.
Á vef Blaðamannafélagsins segir að „stjórn BÍ tók einróma ákvörðun um ráðninguna. Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður segir: „Við erum stolt og ánægð að fá Freyju til liðs við okkur enda kemur hún inn með mikilvæga reynslu meðal annars af hagsmunabaráttu og starfsemi stéttarfélaga. Hún hefur stýrt stórum verkefnum fyrir BSRB og mun reynsla hennar og þekking af íslenskum stjórnmálum og stjórnsýslu nýtast vel. Auk þess hefur hún stýrt stórum málefna- og vitundarvakningarherferðum bæði innanlands og erlendis, nú síðast í tengslum við Kvennaverkfallið 2023 sem vakti heimsathygli. Við hlökkum til að starfa með henni að því að efla blaðamennsku og fjölmiðlun, standa vörð um hagsmuni stéttarinnar og efla faglegt starf innan félagsins.““
Sagt upp vegna trúnaðarbrests
Hjálmari Jónssyni, sem verið hafði framkvæmdastjóri Blaðamannafélagsins frá árinu 2023, var sagt upp í janúar fyrr á þessu ári. Sú ákvörðun var einróma samþykkt af stjórn félagsins vegna trúnaðarbrests milli hans og stjórnar sem hafi verið viðvarandi um nokkurra mánaða skeið.
Hjálmar skrifaði grein, sem birtist á Vísi, eftir uppsögnina þar sem hann sagði að ágreiningur hans við núverandi formann Blaðamannafélagsins snerist einungis um meint brot hennar á skattalögum og skort á því að gera hreint fyrir sínum dyrum þegar fjölmiðlar hafi gengið eftir skýringum. „Það er enginn trúnaðarbrestur okkar í milli heldur er það skylda mín sem framkvæmdastjóra Blaðamannafélags Íslands að standa vörð um orðstír félagsins.“
Hjálmar sagði að endanlega hafi soðið upp úr milli hans og formannsins vikuna áður þegar hún vildi fá skoðunaraðgang að reikningum félagsins. „Ég hafnaði því alfarið, enda fullkomlega óeðlilegt að mínu mati. Stjórn og formaður geta kallað eftir öllum upplýsingum úr bókhaldi félagsins, en viðkvæmar persónuupplýsingar um hverjir fá endurgreiddan sálfræðikostnað eða eru að glíma við krabbamein, svo dæmi séu tekin, koma þeim að sjálfsögðu ekki við. Stjórn styrktarsjóðs BÍ kjörin á aðalfundi afgreiðir þau mál og er bundin ströngum trúnaði. Að veita öðrum aðild að slíkum persónugreinanlegum upplýsingum væri lögbrot og trúnaður um þessar upplýsingar þarf að vera hafinn yfir allan vafa.“
Trúnaðarbrestur viðvarandi um nokkurra mánaða skeið
Í yfirlýsingu sem stjórn Blaðamannafélags Íslands sendi frá sér eftir að grein Hjálmars birtist kom fram að hún væri tilkomin vegna trúnaðarbrests milli hans og stjórnar sem hefði verið viðvarandi um nokkurra mánaða skeið.
Stjórnin var einróma um það í framhaldinu að óhjákvæmilegt væri að binda enda á ráðningarsamband Hjálmars og félagsins. „Stjórn áréttar að fullkomlega eðlilegt er að formaður, og eftir atvikum fleiri stjórnarmenn, hafi skoðunaraðgang að reikningum félagsins. Í því felst nauðsynlegt aðhald enda segir í lögum félagsins að stjórn hafi yfirumsjón með starfsemi félagsins og beri á henni fulla ábyrgð. Almennt fer stjórn enda með æðsta vald í málefnum félagsins á milli félagsfunda. Framkvæmdastjóri starfar svo í umboði stjórnar og samkvæmt þeim fyrirmælum og stefnu sem stjórn ákveður. Svo stjórn geti sinnt hlutverki sínu og fylgst með því að rekstur sé í réttu horfi þarf hún að hafa aðgang að bókhaldi og bankayfirlitum. Stjórnarmenn eru að sjálfsögðu bundnir sama trúnaði og framkvæmdastjóri um persónugreinanlegar upplýsingar sem kann að vera að finna í bókhaldi eða bankagögnum félagsins.“
Óháður bókari rýnir í reikninga félagsins
Stjórn Blaðamannafélags Íslands lét óháðan bókara rýna tiltekin atriði í fjárreiðum félagsins síðustu tíu ár. Niðurstaða hans liggur nú fyrir og hefur verið send til endurskoðunarskrifstofunnar KPMG sem mun skila stjórn félagsins skýrslu um þær eins fljótt og auðið er. Stjórnin ætlar svo að kynna niðurstöður þeirrar skýrslu fyrir félagsmönnum eigi síðar en á aðalfundi Blaðamannafélags Íslands, en hann verður haldinn 16. apríl næstkomandi. Þetta kom fram í bréfi sem Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélagsins, sendi félagsmönnum í mars.
Þar segir enn fremur að gagnger endurskoðun hafi farið fram á umgjörð og regluverki í kringum starfsemi félagsins. „Stjórn BÍ hefur samþykkt að leggja fyrir aðalfund tillögur að breytingum að lögum félagsins sem kynntar verða félagsmönnum sérstaklega í aðdraganda aðalfundar. Þá hafa stjórnir sjóða félagsins einnig endurskoðað reglugerðir og úthlutunarreglur til að auka skýrleika og gagnsæi í því hvernig fjármunum sjóðanna er úthlutað. Þessar tillögur verða sömuleiðis lagðar fyrir aðalfund og kynntar félagsmönnum í aðdraganda hans.“
Þessar breytingar koma í kjölfar þess að stjórn Styrktarsjóðs Blaðamannafélagsins bókaði á á fundi sínum síðastliðinn þriðjudag að hún veki athygli á því og árétti „að í samræmi við reglugerð sjóðsins eiga þeir einir rétt á greiðslu úr sjóðnum sem greitt hafa í sjóðinn í að minnsta kosti síðastliðna 6 mánuði. Réttur til greiðslu úr sjóðnum fyrnist á 6 mánuðum eftir að greiðslum í sjóðinn er hætt.“
Athugasemdir