Áhyggjur Norðmanna af njósnum Kína og spegilmyndin Ísland

Yfirvöld öryggis­mála í Noregi hafa áhyggjur af mögulegri misnotkun yfirvalda í Kína á samskipta­miðlinum TikTok. Inger Haugland hjá norsku öryggis­lögreglunni PST varar Norðmenn við að nota miðilinn. Ísland er eftir­bátur hinna Norður­landanna í varnar- og netöryggis­málum og er ekki með sams konar viðbúnað og þau gagnvart mögulegum njósnum erlendra ríkja eins og Kína og Rússlands.

Hefur áhyggjur
Hefur áhyggjur Inger Haugland er yfir­maður gagnnjósna hjá norsku örygg­is­gæsl­unni PST.

Norska öryggis­lögreglan (PST) varar Norðmenn við notkun á samskipta­miðlinum Tiktok vegna þess að stjórn­völd í Kína geti með því fengið aðgang að viðkvæmum og persónu­legum upplýsingum um þá. Þessi umræða í Noregi hefur komið upp í kjölfarið á því að fulltrúa­deild bandaríska þingsins samþykkti laga­frumvarp um að setja forsvars­mönnum TikTok afarkosti um að annaðhvort slíta öll tengsl við kínverska eigendur sína eða verða bannað í Banda­ríkjunum. Fjallað var um þessar áhyggjur yfirvalda í Noregi í viðtali við yfirmann gagn­njósna hjá norsku öryggis­lögreglunni PST, Inger Haugland, í viðskipta­blaðinu Dagens Næringsliv í lok mars. 

Í viðtalinu segir Haugland að sú skylda hvíli á öllum einstaklingum, samtökum og fyrir­tækjum í Kína að aðstoða leyni­þjónustu landsins við upplýsinga­söfnun ef viðkomandi aðilar eru beðnir um það. Í þessu felst einnig mögulega að forsvars­mönnum TikTok geti verið gert að afhenda kínverskum stjórn­völdum upplýsingar um notendur samfélags­miðilsins. „Í gegnum Tiktok geta kínversk stjórn­völd fengið …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hringur Hafsteinsson skrifaði
    Það mætti bæta Facebook og Google inn í þessa umfjöllun :)
    0
  • APA
    Axel Pétur Axelsson skrifaði
    augun fimm hafa áhyggjur af samkeppni . . .
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kína og Ísland

FréttirKína og Ísland

Katrín: Starfsemi kínversku rannsóknar­miðstöðvarinnar aldrei farið fyrir þjóðar­öryggisráð

Málefni norðurljósa­rannsóknar­miðstöðvar Kínversku heimskauta­stofnunarinnar í Þing­eyjarsýslu hafa aldrei farið fyrir þjóðar­öryggisráð Íslands. Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra segir að eftirlit með rannsóknar­miðstöðinni sé hendi ráðherra háskóla­mála. NATO hefur meðal annars haft áhyggjur af rannsóknar­miðstöðinni.
FréttirKína og Ísland

Þingmaður spyr Katrínu um eftirlit með kínversku rannsóknar­miðstöðinni

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, hefur spurt Katrínu Jakobs­dóttur forsætis­ráðherra spurninga um kínversku rannsóknar­miðstöðina á Kárhóli í Þing­eyjarsýslu. NATO og nágranna­ríki Íslands hafa lýst yfir áhyggjum af starfsemi rannsóknar­miðstöðvarinnar vegna mögulegra áhrifa á þjóðar­öryggi. Íslensk stjórn­völd hafa haft litla yfirsýn yfir starfsemi rannsóknar­miðstöðvarinnar.
FréttirKína og Ísland

Önnur ríki hafa áhyggjur af norðurljósa­miðstöð Kína á Íslandi

Sérfræðingar í þjóðar­öryggis­málum fjalla um norðurljósa­rannsóknar­miðstöð Kína á Kárhóli í ritgerð. Einn af höfundunum, Gregory Falco, segir að stað­setning rannsóknar­miðstöðvarinnar á Íslandi sé of mikil tilviljun í hans huga. NATO og önnur ríki á norður­hveli jarðar hafa áhyggjur af því að Kína stundi eftirlit og njósnir á Íslandi í gegnum miðstöðina.
FréttirKína og Ísland

NATO hefur lýst áhyggjum af rannsóknar­miðstöð Kína um norður­ljósin

Norðurljósa­rannsóknar­miðstöð Íslands og Kína að Kárhóli í Þing­eyjarsýslu hefur verið vandræðamál inni í stjórn­kerfinu um nokkurra ára skeið. Guðlaugur Þór Þórðarson, fyrr­verandi utan­ríkis­ráðherra, furðaði sig á miðstöðinni eftir að hann varð utan­ríkis­ráðherra. Rannsóknar­miðstöðin virðist hafa verið ákveðin og byggð nánast án pólitískrar aðkomu eða eftirlits.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár