Maðurinn sem bjargaði 669 börnum frá nasistum

Nicholas Winton bjargaði 669 börnum frá Prag árið 1939 rétt áður en seinni heim­styjöldin hófst. Þau voru flest af gyðinga­ættum. Þrátt fyrir að hafa bjargað þessum fjölda barna talaði Winton aldrei um afrekið og hans aðkomu í aðgerðunum.

Nicholas Winton
Nicholas Winton bjarg­aði 669 börnum frá Prag árið 1939. Mynd: Skjáskot

Í febrúar árið 1988 sat Vera Gissing með tárin í augunum í myndveri BBC TW þegar hún var kynnt fyrir Nicholas Winton, manninum sem bjargaði lífi hennar. Sagan af því hvernig Winton skipulagði björgun 669 barna frá Prag er sögð í leiknu myndinni One life. Í tilefni hennar sagði BBC frá stundinni þegar Winton hitti Veru Gissing, 49 árum eftir að hann bjargaði henni og systur hennar frá Prag.

Þegar Gissing var 10 ára gömul flúði hún ásamt 15 ára systur sinni, Evu Diamantová, frá Prag með lest sem hefur verið kölluð „Kindertransport.“ Í lestinni voru mörg hundruð börn af gyðinga­ættum. Lestin flutti börnin til Bretlands frá Prag þar sem nasistar höfðu tekið yfir borgina nokkrum mánuðum áður en seinni heims­styrjöldin hófst. 

„Ég gleymi aldrei stundinni þegar ég veifaði bless til foreldra minna og varð skyndi­lega hrædd þegar ég sá hræðsluna í svip foreldra minna sem voru með útgrátin augu. Það voru þýskir hermenn alls staðar í kringum okkur,“ sagði Vera. Hún sá foreldra sína aldrei aftur. 

Heimurinn hefði mögulega aldrei heyrt sögu Wintons ef konan hans hefði ekki rekist á skjala­tösku hans upp á háalofti á heimili þeirra í Maidenhead í Bretlandi. Í töskunni var úrklippubók með nöfnum og myndum barnanna sem Winton aðstoðaði við að bjarga frá Prag.

Winton var sjálfur af gyðinga­ættum en foreldrar hans höfðu skýrt hann í ensku biskups­kirkjunni til að vera meiri hluti af breska samfélaginu. 

Fann sig knúinn til að hjálpa

Winton vann í fullu starfi sem verðbréfa­miðlari og var sósíal­isti með áhuga á alþjóða­málum. Árið 1938 gerði Winton sér grein fyrir, í gegnum fjölskyldu­tengingar sínar, þeirri hættu sem steðjaði að gyðinga­fjölskildum á hernumdum svæðum nasista. Í gegnum vin sinn Martin Blake, sem var einnig sósíal­isti, ferðaðist Winton til Prag til að hjálpa flótta­mönnum. 

Þegar hann kom til Prag tók á móti honum hryllingur. Borgin fylltist hratt af fólki sem var á flótta undan nasistum, mörg hver af gyðinga­ættum, frá Þýska­landi, Austur­ríki, Súdetalandi og hluta af Tékkóslóvakíu sem Hitler hafði innlimað. Flótta­mennirnir bjuggu við ömurlegar aðstæður í yfir­fullum búðum. Veturinn var fram undan og áttu þeir nú þegar erfitt með að halda sér á lífi. 

Winton var sérstak­lega í uppnámi vegna neyð barnanna og ákvað að það þyrfti að gera eitthvað til að bjarga þeim. Þannig hófst björgunar­aðgerðin sem var þekkt sem „Czech Kindertransport“ eða Tékkneski barnafluttningurinn. 

Skráði niður nöfnin

Björgunar­aðgerðirnar voru upphaf­lega skipulagðar á hótel herbergi á Evrópska hótelinu í Prag. Ásamt Winton voru það samstarfs­félagar hans Martin Blake, Doreen Warriner og Trevor Chadwick sem komu að björgunar­aðgerðunum. Winton byrjaði á að skrá niður nöfn fjöl­skyldnanna sem hann ræddi við sem nauðsyn­lega þurftu að koma börnunum sínum í öruggt skjól. 

Winton skrifaði bréf til bresku ríkis­stjórnarinnar og sendiráða út um allan heim þar sem hann óskaði eftir þeirra aðstoð. Nánast öll höfnuðu honum. Svíþjóð samþykkti að taka að sér nokkur börnum og Bretar, að því gefnu að þau myndu útvegað fjöl­skyldum sem væru tilbúin að taka á móti börnunum. Þrátt fyrir að vera venju­legur breskur ríkis­borgari, var Winton sann­færðum um að hann gæti skipulagt brott­flutning flótta­mannanna með lest og fundið fyrir þau öruggt skjól í Bretlandi.

Eftir að hafa verið í Prag í þrjár vikur fór hann aftur til London þar sem hann hóf leit að fjöl­skyldum sem voru tilbúin að taka á móti börnunum og fann leið til að skipuleggja örugga ferð þeirra þvert yfir Evrópu til Bretlands. Vinir hans Warriner og Chadwick voru í Prag og samræmdu verkefnið þaðan.

Á daginn vann hann á verðbréfa­markaðnum en eftir klukkan fjögur á daginn og þar til langt fram eftir kvöldi vann hann linnulaust að verk­efninu. Þá útbjó hann leyfis­bréf og ferða­heimildir fyrir börnin sem komu frá Tékklandi. 

Fyrir hvert barn krafðist breska ríkið greiðslu upp á 50 pund, sem í dag nemur 4,150 pundum.  

Verkefnið tók á

Winton var orðinn pirraður á trega breska ríkisins svo hann fór að leita að fjöl­skyldum sem voru tilbúin að taka á móti börnunum með því að auglýsa eftir fjöl­skyldum í dagblöðum. Honum hafði tekist að taka ljós­myndir af öllum börnunum sem voru á listanum hans þegar hann var í Prag og reyndust myndirnar mikil­vægar í leit hans að fjöl­skyldu fyrir börnin. 

Fyrsta lestin sem flutti börn á flótta fór frá Prag þann 14. mars 1939. Daginn eftir hertóku þýskir hermenn alla Tékkóslóvakíu.

Áhyggjurnar voru orðnar miklar hjá Winton svo í örvæntingar­skyni falsaði hann leyfis­bréf innan­ríkis­ráðuneytisins þar sem honum þótti þau ekki berast honum nógu hratt. 

Langt ferðalag

Frá mars til ágúst árið 1939 með átta lestum tókst Winton og félögum að flytja 669 börn, flest af gyðinga­ættum. Lestin fór frá Prag í gegnum Þýskaland og Frakkland til Bretlands. Á lestar­stöðinni í Liverpool í London tók Winton og móðir hans á móti börnunum þar sem fjöl­skyldurnar sem ættleiddu börnin tóku á móti þeim. 

Níunda lestin átti að flytja 250 börn þann 1. september frá Prag. En það var daginn sem Þýskaland réðst inn í Pólland og stríði lýst yfir svo landa­mærunum var lokað. Þýskir hermenn vísuðu börnunum í lestinni á brott. 

Þrátt fyrir að hafa bjargað þessum fjölda barna talaði Winton aldrei um afrekið og hans aðkomu í aðgerðunum. Áratugum saman fór hetju­skapur hans að mestu óséður. 

Þegar rann­sakendur fyrir BBC þættina That's Life! heyrðu af sögu Wintons buðu þau honum í þáttin sem áhorfandi. Í þættinum sýnir þátta­stjórn­andinn, Esther Rantzen, úrklippubók Winton. Í fyrsta þættinum hittir hann þrjú af börnunum sem hann bjargaði, þar á meðal Veru. 

That's Life! bauð Winton aftur í þáttinn. Í þeim þætti spyr Rantzen „er einhver hér í kvöld sem á lífi sínu að þakka Nicholas Winton?“ Þá reis allur salurinn upp, meira en tuttugu manns, brosandi og klappandi til að þakka Winton sem hafði tryggt þeirra öryggi.

Kjósa
52
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Þetta er stormerkileg grein og vel unin af Greinarhöfundi, ja þetta er þrekvirki unið af goðmensku og kærleika þessa mans sem vissi að börnin voru næsta kynsloð. A Islandi var Giðingum i massavis neitað um Landvistarleifi og send i Utrimingabuðir Hermann Jonasson var Raðhera þa. Gyðingahatari, þetta voru ekki Betri Menn en það þegar a reyndi. I striðslok Hjalpaði Vatikanið mörgum Böðlum að losna við Rettvisina og Gaf ut Vegabref fyrir marga Hestburði af Gyðingagulli. Mörg tonn af gulli fra Gyðingum endaði i Vatikaninu. Vatikanið a miklar eignir viða. Lika hafa komið upp mörg mal þar sem katolskir Prestar hafa svivirt unga Drengi. Preatarnir fa uppreysn æru þar. yfir Vatikaninu kvilir skuggi Fortiðar. Þaðan getur ekki Gott komið. Pafinn sem þa var og Kardinalar VISSU ALLA tið um Utrimingabuðirnar og það sem var i Gangi, þar var ÞÖGNIN latin Gilda.
    0
  • MBK
    Margrét Birna Kolbrúnardóttir skrifaði
    Mjög fróðlegt en léleg íslenskukunnáttu skrifarans skyggir á innihaldið. Það eru til vefir þar sem er hægt að fletta upp fallbeygingum og fleiru.
    1
  • S
    skalp skrifaði
    Fróðleg frásögn en hræðilegt málfar.
    2
  • Anna Bjarnadóttir skrifaði
    Mögnuð saga lituð hugrekki, mennsku og hógværð
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár