Lilja treystir því að fjármálaráðherra hafi gætt að eigin hæfi

Í nýjasta þætti Pressu ræddu Lilja Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra og Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, um nýleg kaup Lands­bank­ans á TM og við­brögð ráð­herra við þeim við­skiptum. Spurð hvort Þórdís Kolbrún hafi gætt að sínu hæfi áður en hún hóf afskipti af sölu­ferl­inu sagð­ist Lilja treysta því að svo væri.

Lilja Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, seg­ist gefa sér það að Þórdís Kolbrún Reykja­fjörð Gylfa­dóttir, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hafi gætt að eigin hæfi áður en hún hafi opin­ber­lega lýst yfir and­stöðu sinni við fyr­ir­huguð kaup Lands­bank­ans á TM. 

Í nýjasta þætti Pressu mættu Lilja Alfreðs­dóttir og Jóhann Páll Jóhanns­son til þess að ræða kaup Lands­bank­ans á TM og við­brögð ráð­herra og Banka­sýsl­unnar við þeim.

Skömmu eftir að til­kynnt var um við­skiptin birti Þórdís Kolbrún færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hún sagði að við­skiptin myndu ekki verða að veru­leika með sínu sam­þykki, „nema sölu­ferli Lands­bank­ans hefj­ist sam­hliða.“

Eftir ummælin voru birt fór að bera á gagn­rýni þess eðlis að ummæli fjár­mála­ráð­herra gætu vart talist við­eig­andi í ljósi þess að bróðir hennar, Ásgeir Helgi Reyk­fjörð Gylfason, er for­stjóri næst­stærsta eig­anda sam­keppn­is­að­ila TM, trygg­inga­fé­lagið VÍS. Þá situr Ásgeir einnig í stjórn VÍS. 

„Hún hlýtur að hafa gengið algjör­lega úr skugga um allt sitt hæfi, ég bara gef mér það,“ segir Lilja. Innt eftir því hver hennar afstaða sé gagn­vart hugs­an­legu van­hæfi ráð­herra gagn­vart mála­flokknum seg­ist Lilja ekki hafa kynnt sér sér­stak­lega starfs­feril og aðkomu bróður fjár­mála­ráð­herra að rekstri VÍS. 

„Hún hlýtur að hafa gengið algjör­lega úr skugga um allt sitt hæfi, ég bara gef mér það,“
Lilja Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra

„Ég hef ekki farið nákvæm­lega í saumanna á því hvaða hlut­verki bróðir hennar gegnir eða hvernig það er.“ Þá Lilja fram að allir, ráð­herrar, þing­menn og fjöl­miðlar ættu að ígrunda var­lega spurn­ingar hæfi áður en ákvarð­anir eru teknar.

Telur mikilvægt að afskipti ráðherra séu í samræmi við reglur

Jóhann Páll sagði í ljósi nýlegs álits umboðs­manns alþingis, þar sem fundið var að vinnu­brögðum fyrrum fjár­mála­ráð­herra, sem gæti ekki að reglum um sér­stakt hæfi í kringum Íslands­banka­söl­una sé þeim mun mik­il­væg­ara að núver­andi ráð­herra fari eftir lög­form­legum leiðum.

„Að þau séu skrif­leg, að það sé hægt að rekja þetta til baka og að það hafi farið fram mat á því hvort þessi afskipti séu sam­ræmi við reglur stjórn­sýslu­rétt­ar­ins um sér­stakt hæfi.“

Það hafi Þórdís Kolbrún ekki gert að mati Jóhanns. Telur hann að ráð­herra hafi á und­an­förnum vikum  beitt sér með óhefð­bundnum hætti. 

Nýjasta þátt Pressu má sjá hér:

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár