Bið­staðan Lillý segir sig heppna. Hún hafi ekki þurft að flytja oft­sinnis líkt og margir Grind­vík­ingar. Hún býr í íbúð sem hún er þakk­lát fyrir en er alltof lítil fyrir stóra fjöl­skyld­una. Það gæti bráð­lega orðið breyt­ing á hennar högum.

Erum eiginlega að byrja upp á nýtt

Enda­lausar áhyggjur af fötl­uðum syni og aldr­aðri móður hafa ein­kennt mán­uð­ina fjóra sem liðnir eru síðan hár­greiðslu­meist­ar­inn Guðrún Krist­jana Jóns­dóttir, Lillý, flúði Grinda­vík. Fjöl­skyldan ætlar ekki að flytja þangað aftur. „Það gerð­ist eitt­hvað innra með mér þegar mað­ur­inn féll ofan í sprung­una,“ segir hún. Sprungan sem klauf svo íþrótta­húsið, annað heim­ili sona hennar, gerði að end­ingu úts­lagið.

Það er óhugn­an­leg til­hugsun fyrir Guðrúnu Krist­jönu Jóns­dóttur að kvika hafi mögu­lega verið að ólm­ast undir Grinda­vík klukku­stundum áður en bær­inn var rýmdur seint að kvöldi þann 10. nóv­em­ber. Á meðan hún var í vinn­unni á hár­greiðslu­stof­unni sinni. Á meðan hún fór út í búð að versla í mat­inn. Sá hill­urnar sveifl­ast til. En orðin svo samdauna ýktum hreyf­ingum jarðar undir fótum sínum að hún var hissa á sím­tölum frá upp­komnum börn­unum sem vildu vita hvort það væri í lagi með hana og yngri systk­inin þrjú. Hvort það væri allt í lagi í bænum sem hún ólst upp í og hún þekkti af góðu einu. Er nötr­aði nú sem aldrei fyrr. 

Sjö barna móð­irin og fimm­falda amman var eftir á að hyggja ein­kenni­lega róleg við þessar aðstæður. Þar til hún kom heim, hitti yngsta son­inn og sá hvað hann var skelfdur. Sá framan í eig­in­mann­inn – slökkvi­liðs­mann­inn Adam Sworowski – sem var í flýti á leið­inni á vakt og hún átti eftir að sjá lítið af næstu mán­uði. „Mamma, getum við farið?“ allt að því hróp­aði tíu ára barnið, skelf­ingu lostið, um kvöld­mat­ar­leytið. Þá ákvað hún að það væri ekki eftir neinu að bíða. Fór út í bíl með tvær ferða­töskur sem hún hafði, allt að því ómeð­vitað, verið að pakka smám saman í dag­ana á undan. Svo ók hún með dreng­ina sína þrjá, tví­bura á tólfta ári og „litla gutt­ann“ að elli­heim­il­inu Víðihlíð til að sækja átt­ræða móður sína. Í kjöl­farið tóku þau stefn­una út úr bænum. Þau voru lögð á flótta. „Ég vissi að það var eitt­hvað meira í gangi en venju­lega,“ segir hún. „En auð­vitað grun­aði mig aldrei að bær­inn yrði rýmdur og að við færum ekki aftur heim.“

Guðrún Krist­jana er alltaf kölluð Lillý. Glaðvær og kvik í hreyf­ingum. Hressa týpan, ekki spurn­ing. Það er stutt í brosið hjá henni. En líka tárin sem annað slagið fylla augun. Þegar hún talar um heima­bæ­inn. Um börnin. Um aðstæður móður sinnar. Um flótt­ann og það sem við tók. Allar þessar spurn­ingar sem hafa vaknað og hvert áfallið á fætur öðru. Óvissuna og flækj­urnar.

Fegurðin 

En augun tindra af ákafa þegar hún talar um „allt þetta fal­lega“ sem hafi líka átt sér stað. Ókunnuga sem banka upp á með nýbakað döðlu­brauð. Stétt­ar­fé­lagið sem stóð með fjöl­skyld­unni á ögur­stundu. Úkra­ínskan starfs­mann flutn­inga­fyr­ir­tækis sem sýndi henni hlýju og sam­hygð. Hina miklu ein­ingu Grind­vík­inga sem hún þráir að standi af sér aðskiln­að­inn. „Ef ein­hver mun lenda í erf­ið­leikum í fram­tíð­inni þá mun mitt hús standa opið. Ég veit núna hvað er að verða heim­il­is­laus.“

Hún býður í kaffi í Vest­ur­bænum. Í íbúð­inni sem fjöl­skyldan fékk til afnota um miðjan nóv­em­ber, fyrst að láni og svo til leigu, hjá Lands­sam­bandi slökkvi­liðs­manna. Hún á fátt af inn­an­stokks­mun­unum. Einn bekk og nokkra stóla. Ýmislegt smá­dót. Margt af því er í kössum sem staflað er við veggi. Meist­ara­bréfið hennar. Verk­færin af hár­greiðslu­stof­unni og nokkrir hár­litir. Hluti búslóð­ar­innar er í geymslu hjá vanda­lausum. Ýmislegt er enn í Grinda­vík. Í rað­hús­inu sem hún veit núna að stóð að hluta ofan á sprungu. 

Heppnin

 „Við vorum og erum ótrú­lega heppin,“ segir Lillý með áherslu en heppni er orð sem hún er gjörn á að nota um stöðu sína. „Við höfum ekki þurft að vera á flakki. Ekki þurft að flytja oft eins og sumir Grind­vík­ingar.“ 

Hún heldur áfram: „Þegar við flúðum þá vorum við í tvær nætur í lít­illi íbúð hjá dóttur minni. Ég gat ekki farið með börnin í fjölda­hjálp­ar­mið­stöð. Sonur minn, annar tví­bur­inn, er fatl­aður. Hann er með ein­hverfu og þroska­hömlun. Það hefði alls ekki hentað honum. Og svo var okkur boðin þessi íbúð. Þetta er góð íbúð en hún hentar ekki minni fjöl­skyldu til lengdar. Hér eru tvö svefn­her­bergi og við vorum þar til nýlega sex hérna. Tví­burarnir sofa inni í stofu. Fyrst voru þeir á dýnu á gólf­inu en svo fengum við lán­aðan svefn­sófa.

Áfram Grinda­vík!Mynd af einum sona Lillýar og Adams á púða í stof­unni í Vest­ur­bænum. Tví­burarnir sofa þar á svefn­sófa.

Yngsti sonur minn deildi rúmi með ömmu sinni þar til hún ákvað að flytja. Fékk leigu­í­búð í Sand­gerði í síð­ustu viku. Leigan þar er hærri en í Grinda­vík. Hún er bara komin á leigu­mark­að­inn, býr langt frá fólk­inu sínu og það finnst mér mjög slæmt. Við systk­inin vildum gjarnan geta selt atvinnu­hús­næði sem við eigum í Grinda­vík til að kaupa íbúð fyrir hana. Svo hún geti búið nær. En það er ekk­ert farið að tala um að ríkið kaupi upp atvinnu­hús­næði. Við sitjum uppi með tvö iðn­að­ar­bil. Í öðru var ég með hár­greiðslu­stof­una mína. Sem pabbi minn hvatti mig til að opna á sínum tíma. Hann hvílir núna í kirkju­garð­inum í Grinda­vík og ég get ekki heim­sótt leiðið hans. Treysti mér ekki til þess.“

Hún klökknar og afsakar hvað hún vaði úr einu í annað. Þerrar tárin úr augn­krók­unum. „Ég ætl­aði að elda ham­borg­ara um dag­inn en stakk þeim í ísskáp­inn þegar ég ætl­aði að setja þá í ofn­inn,“ segir hún og hlær að sjálfri sér. „Svona er maður bara. Alveg dof­inn stundum en að reyna að halda haus.

Ég var alltaf að pæla hvort ég ætti að finna eitt­hvert annað leigu­hús­næði. En að taka ákvarð­anir, það var bara svo … snúið. Dreng­ur­inn minn sem er með fötlun fann sig ekki í safn­skól­anum. Hann vildi ekki borða. Var far­inn að létt­ast. Eitthvað í umhverf­inu raskaði ró hans. Að vera með þá í safn­skól­anum þýddi ein­tómt skutl. Svo ég þurfti að færa þá í Vest­ur­bæj­ar­skóla. Þannig að þá fannst mér ég föst hér. Og þetta er vissu­lega þægi­legt. Þeir labba fyrir hornið og eru komnir í skól­ann. En að sama skapi hafa þeir aðeins rofið tengslin við félaga sína úr Grinda­vík. En ég varð að gera þetta. Hann höndl­aði þetta ekki.

Honum hefur gengið mjög vel í Vest­ur­bæj­ar­skóla. Þannig að við hugs­uðum: Ok, við verðum bara hér á meðan við megum vera. Við megum vera hér til 1. maí. Við erum búin að festa okkur eign í Njarðvík. En mig vantar bara að ríkið fari að borga mér – núna! Svo við getum klárað kaupin. Svo við missum ekki íbúð­ina.“

Íþróttirnar

Það er svo ótal margt í þessa veru í gangi á hverjum degi. Grind­vísk börn hitt­ast á sam­eig­in­legum íþrótta­æf­ingum. Þangað þarf að keyra þau, borg­ina þvera og endi­langa, með til­heyr­andi kostn­aði. Lillý hefur orðið að draga úr því. Þannig er það með fleiri og börnin því mörg farin í hverf­is­skóla og að æfa með öðrum íþrótta­liðum. 

Yngsti sonur Lillýar og Adams er efni­legur í bæði körfu- og fót­bolta. En hann hefur aldrei verið eins mikið í tölv­unni og síð­ustu vikur. Hún telur að hann hafi orðið fyrir áfalli þann 10. nóv­em­ber sem hann hafi ekki fylli­lega jafnað sig á. „Þetta var svo steikt. Svo súr­r­eal­ískt. Og eig­in­lega ómögu­legt að lýsa þessu.“

Skír­teininLillý bjarg­aði skír­teinum um menntun sína í háriðn niður af veggjum hár­greiðslu­stof­unnar áður en hún flúði.

Þess vegna sé svo mik­il­vægt að hitta aðra Grind­vík­inga. Þeir búi yfir þess­ari sam­eig­in­legu og erf­iðu reynslu og séu þeir einu sem fylli­lega skilji hver annan. Dagana og vik­urnar eftir rým­ing­una fannst henni skrítið að lífið héldi bara áfram. Að fólk væri bara að sinna sínu, lifa sínu lífi. Nema Grind­vík­ingar. Þeir gengu um eins og draugar, í ein­hvers konar móki, en æddu að öðrum Grind­vík­ingum sem þeir mættu á förnum vegi og spurðu þá spjör­unum úr. Hvar eruð þið núna? Hvernig hafa börnin það? „Við erum öll að syrgja bæinn okkar. Á meðan við erum að ganga í gegnum það þurfum við að hitt­ast og vinna saman úr þess­ari sorg. Sumir ætla til baka og aðrir ekki. Við verðum öll að sýna ólíkum sjón­ar­miðum skiln­ing.“ 

Lillý og Adam keyptu rað­húsið sitt í Grinda­vík árið 2007. Þau hafa gert mikið fyrir það en nú myndi Lillý ekki þora að stíga út á pall. 95 pró­sent af bruna­bóta­mati þess, líkt og ríkið ætlar að bjóða, mun ekki duga fyrir sam­bæri­legri eign ann­ars staðar. „Við erum að fara að enda með miklu hærra lán. Miklu meiri greiðslu­byrði. Maður er eig­in­lega bara að byrja upp á nýtt.“

Álagið

Adam er í tveimur störfum. Vinnur myrkr­anna á milli. Það er púlað. Hamast og ham­ast. Og fjöl­skyldan sér hann lítið. Enda fjár­fest­ing í vændum sem ekki stóð til að ráð­ast í en er óhjá­kvæmi­leg.  

Ofan á allt saman er Lillý svo í lausu lofti með hár­greiðslu­stof­una. „Það er eng­inn að fara að koma í klipp­ingu til Grinda­víkur,“ segir hún og hlær að til­hugs­un­inni. Ekkert kalt vatn er á hús­næð­inu og Almanna­varnir settu upp hita­blás­ara til að halda því heilu. Fallega gert og allt það, segir Lillý. En svo kom höggið: Tæplega 100 þús­und króna raf­magns­reikn­ingur á nokk­urra vikna tíma­bili. Sem HS Veitur segja að verði að borga. Að Almanna­varnir eigi lík­lega að gera það. Lillý og bræðrum hennar, sem eiga hús­næðið með henni, brá mjög. Og nú vilja þau losna við hús­næðið. 

„Það er svo­lítið glatað að mamma sé komin alla leið í Sand­gerði. Og upp á aðra hæð. Það er engin lyfta þótt íbúðin sé fín.“

Minn­ingarMyndir úr brúð­kaupi þeirra Adams og Lillýjar eru meðal þeirra hluta sem þau tóku með sér úr hús­inu í Grinda­vík.

Móðir hennar hafi verið í góðri leigu hjá Grinda­vík­urbæ á elli­heim­il­inu. Nú er hún hins vegar að leigja í gegnum Bríeti og leigan tölu­vert hærri. Í augna­blik­inu fær hún hús­næð­is­stuðn­ing en hversu lengi hann mun vara er óvíst. „Hvað verður eftir það?“

„Ég ætla ekki að horfa á eftir barn­inu mínu ofan í sprungu. Svo gerði það end­an­lega úts­lagið þegar við sáum fót­bolta­höll­ina“

Lillý er ósátt við þá stöðu sem móðir hennar var sett í. Hvernig haldið var utan um þessa elstu borg­ara Grinda­vík­ur­bæjar. Þá sem byggðu upp bæinn. Eftir flótt­ann hafi fólkið sem bjó á hjúkr­un­ar­heim­il­inu og elli­heim­il­inu tvístr­ast um allt. Margir búi enn hjá börn­unum sínum. Sumir hafi náð að kaupa eða leigja hús­næði í Reykja­nesbæ. Aðrir séu komnir inn á hjúkr­un­ar­heim­ili í Reykja­vík. Fólkið sem þarf hvað mest á nær­sam­fé­lagi að halda er sundrað. 

Áfallið

Annað sem hún á erfitt með er líðan barn­anna. „Mér finnst strák­arnir mínir ekki hafa jafnað sig eftir þetta allt saman. Tví­burarnir hafa ekk­ert farið til Grinda­víkur. Þeir hafa ekki viljað það. En litli gutt­inn fór með pabba sínum. En hann ætlar ekki til baka. Samt elskar hann Grinda­vík,“ segir Lillý og tárin spretta fram. „Hann ætlar alltaf að vera í Grinda­vík­ur­lið­inu sko! En ég veit það ekki. Maður getur ekki sagt neitt um þetta. Þegar ég er spurð: Ætlar þú að fara til baka? Flytja þangað aftur? Ég get ekki svarað þessu núna. Eins og staðan er í dag: Nei.

Ég hef hugsað með mér að sleppa hús­inu mínu alveg. Ég hef ekki áhuga á því að eiga heima ofan á sprungu. Hver hefur áhuga á því? Ég hef ekki sofið eina nótt í hús­inu mínu. Það er nátt­úr­lega skemmt. Ég myndi ekki fara með börnin mín þangað, ekki sjens. Ég þori ekki að fara með þau. Ég vil ekki lenda í því að það þurfi allt í einu að rýma.

Ég held að vendi­punkt­ur­inn hjá mörgum hafi verið þegar mað­ur­inn féll í sprung­una. Það er mjög sárt að segja það. Ég ætla ekki að horfa á eftir barn­inu mínu ofan í sprungu. Svo gerði það end­an­lega úts­lagið þegar við sáum fót­bolta­höll­ina. Við erum með ung börn og höfum séð hvernig þetta hefur farið í þau. Við þurfum að fara.“

Upphafið

Vonandi tekst að byggja upp Grind­vík­inga­byggðir í Njarðvík þar sem Lillý og Adam hafa valið að flytja. Nokkrir nágrannar þeirra og vinir hafa einnig ákveðið að setj­ast þar að. Í bili að minnsta kosti. „Þetta verður kannski líkt … en þetta verður aldrei eins. Ég sé samt fyrir mér að þarna gæti orðið vísir að ein­hverju svip­uðu sam­fé­lagi og var í Grinda­vík.“

Blendnar til­finn­ingarÞað fylgdi því léttir þegar tölvu­póstur barst um að opnað hefði verið fyrir umsóknir um upp­kaup rík­is­ins á íbúð­ar­hús­næði í Grinda­vík. En því fylgdi líka tregi.

Lillý ótt­ast að missa af hús­inu sem hún hefur fengið stað­fest kauptil­boð í. Og hún sé ekki ein um það. „Við erum öll þar. Það sem er að ger­ast í Njarðvík er að fólk er að gera til­boð. En til­boðið rennur út. Svo er spurn­ing, ætlar þessi aðili að vera trúr þér eða að reyna að græða meira? Fólk er að lenda í því. Það mæta kannski sjö fjöl­skyldur úr Grinda­vík á opin hús og eru látnar slást um eign­ina. Þetta er ekki það sem við þurfum og ekki það sem við viljum.“

„Flytja þangað aftur? Ég get ekki svarað þessu núna. Eins og staðan er í dag: Nei.“

Biðin eftir upp­kaupum rík­is­ins á íbúð­ar­hús­næði í Grinda­vík fari illa í marga. „Fólk getur ekki meir. Þetta er farið að hafa áhrif á börnin okkar. Strák­ur­inn minn spurði í vik­unni: Mamma, eru þau ekki að fara að kaupa húsið okkar svo við getum farið að flytja? Börnin okkar eiga ekki að þurfa að hugsa um að eiga heim­ili.“

Hún dregur djúpt and­ann. Brosir. Heldur áfram að lýsa upp­vext­inum í Grinda­vík. Uppvexti barn­anna. Frelsinu sem var svo ynd­is­legt.

Símtalið

„Jæja, hringir mað­ur­inn minn,“ segir hún allt í einu. „Ég heyri í honum á eftir.“

Talar um hvernig vinir hennar og fjöl­skylda hafi dreifst um allt. Bróðir hennar ætli lík­lega að kaupa í Vogunum. Þau í Njarðvík. Móðir hennar sé í Sand­gerði.

„Hann er að hringja aftur,“ segir hún og tekur upp sím­ann. Og í þetta sinn svarar hún. „Halló? Hvaða email? Í alvöru?! Ok! Þá förum við í það. Geggjað“ Takk. Bæ.“

Hún tekur and­köf. Fer að skrolla í gegnum tölvu­póst­inn í sím­anum á miklum hraða. „Þetta var bara að ger­ast! Það er búið að opna fyrir umsóknir!“ Stressið er mikið. Hún finnur ekki póst­inn sem Adam tal­aði um. „Af hverju er ég ekki búin að fá þennan póst? Jú, hérna! Það er búið að opna fyrir umsóknir um kaup á hús­næði í Grinda­vík! Ég er nýbúin að vera að tala um þetta og svo bara ger­ist þetta!“

Ein­stak­lingum sem eiga íbúð­ar­hús­næði í Grinda­vík býðst að selja það til fast­eigna­fé­lags­ins Þórkötlu sem er í eigu rík­is­ins. Hægt er að óska eftir að félagið kaupi hús­næðið til 31. des­em­ber 2024. Nánari upp­lýs­ingar að finna á upp­lýs­inga­síðu.

„Ok, ég get bráðum farið að flytja,“ segir hún og brestur skyndi­lega í grát. „Þá er alla vega eitt frá. Nú þarf maður bara að drífa sig að sækja um. Og von­andi tekur þetta stuttan tíma.“

Upprisan

Þegar ósköpin dundu yfir í nóv­em­ber var Lillý komin vel á veg í starfsend­ur­hæf­ingu eftir að hafa krassað, eins og hún orðar það, nokkrum mán­uðum fyrr. Enn og aftur seg­ist hún vera heppin, því hún hafi end­ur­hæf­ing­una til að styðja sig við í gegnum erf­ið­leik­ana núna. „Þannig að ég fæ smá tíma til að anda. Ná áttum og lenda. Og ég ætla að lenda rólega. Það er mark­miðið hjá mér.

Eina sem ég vil núna er að það verði haldið betur utan um mömmu mína. Að við getum selt iðn­að­ar­hús­næðið og keypt íbúð handa henni. Þetta eldra fólk er að syrgja sitt sam­fé­lag. Það má ekki gleyma því. Nú er ég von­andi að fara aðeins nær henni,“ segir hún og brosir í gegnum tárin. „Ég ætla að drífa mig að sækja um!“

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Raunir Grindvíkinga

Enn inni í myndinni að kaupa einingahús fyrir Grindvíkinga
FréttirRaunir Grindvíkinga

Enn inni í mynd­inni að kaupa ein­inga­hús fyrir Grind­vík­inga

Nokkur fjöldi íbúða er enn í boði fyrir Grind­vík­inga hjá óhagn­að­ar­drifnum leigu­fé­lögum og tölu­verður fjöldi til við­bótar í boði fyrir þá á Leigu­torgi. Ágætt fram­boð er auk þess á til­búnum bygg­ing­ar­lóðum. Inn­við­a­ráðu­neytið segir að m.a. í ljósi þessa þurfi að meta sér­stak­lega hvort þörf sé á frek­ari kaupum á hús­næði fyrir Grind­vík­inga.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár