Grindavík býr nú í 29 mismunandi sveitarfélögum

Hópur sem mynd­aði eitt sam­fé­lag fyrir rúmum fjórum mán­uðum síðan er nú dreifður um allt land, er byrj­aður að selja heim­ili sín til rík­is­ins og hefur fengið 1,8 millj­arða króna í stuðn­ing vegna þess að hann getur ekki sótt vinnu.

Grindavík býr nú í 29 mismunandi sveitarfélögum

Þann 10. nóv­em­ber, dag­inn sem Grinda­vík var rýmd og allt breytt­ist hjá íbúum bæj­ar­ins, voru 3.789 manns skráðir með lög­heim­ili í bænum. Á þeim fjórum mán­uðum sem liðnir eru síðan þá hafa 2.485 ein­stak­lingar fært aðsetur sitt annað, sam­kvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands. Ljóst má vera að enn fleiri hafa flutt úr Grinda­vík. Þar býr nán­ast eng­inn í dag. 

Fjallað er um stöðu Grind­vík­inga út frá mörgum hliðum í nýjasta tölu­blaði Heim­ild­ar­innar sem kom út í dag. 

Hópurinn, sem eitt sinn mynd­aði sam­fé­lag, dreif­ist nú niður á 29 sveit­ar­fé­lög. Flestir þeirra sem hafa fært aðsetur sitt, 659 tals­ins, fluttu til höf­uð­borg­ar­innar og 549 fluttu í Reykja­nesbæ. Helm­ingur ein­stak­ling­anna sem hefur fært aðsetur sitt form­lega fór í þessi tvö sveit­ar­fé­lög. Hafn­ar­fjörður, Kópa­vogur, Garðabær og Vogar voru líka vin­sælir lend­ing­ar­staðir. 

Í lok síð­ustu viku var opnað fyrir fyrr­ver­andi íbúa Grinda­víkur að selja íbúðir og hús sín til Fast­eigna­fé­lags­ins Þórkötlu, í eigu íslenska …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kjartan Eggertsson skrifaði
    Merkilegt að Heimildin viti hversu margir Grindvíkingar eru í Grímsnes- og Grafningshreppi því sveitarstjórnin þar veit það ekki.
    0
    • Bryndís Dagbjartsdóttir skrifaði
      Það kemur hvergi fram nákvæmur fjöldi bara að það séu undir 20 manns
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Raunir Grindvíkinga

Enn inni í myndinni að kaupa einingahús fyrir Grindvíkinga
FréttirRaunir Grindvíkinga

Enn inni í mynd­inni að kaupa ein­inga­hús fyrir Grind­vík­inga

Nokkur fjöldi íbúða er enn í boði fyrir Grind­vík­inga hjá óhagn­að­ar­drifnum leigu­fé­lögum og tölu­verður fjöldi til við­bótar í boði fyrir þá á Leigu­torgi. Ágætt fram­boð er auk þess á til­búnum bygg­ing­ar­lóðum. Inn­við­a­ráðu­neytið segir að m.a. í ljósi þessa þurfi að meta sér­stak­lega hvort þörf sé á frek­ari kaupum á hús­næði fyrir Grind­vík­inga.
Erum eiginlega að byrja upp á nýtt
FréttirRaunir Grindvíkinga

Erum eig­in­lega að byrja upp á nýtt

Enda­lausar áhyggjur af fötl­uðum syni og aldr­aðri móður hafa ein­kennt mán­uð­ina fjóra sem liðnir eru síðan hár­greiðslu­meist­ar­inn Guðrún Krist­jana Jóns­dóttir, Lillý, flúði Grinda­vík. Fjöl­skyldan ætlar ekki að flytja þangað aftur. „Það gerð­ist eitt­hvað innra með mér þegar mað­ur­inn féll ofan í sprung­una,“ segir hún. Sprungan sem klauf svo íþrótta­húsið, annað heim­ili sona hennar, gerði að end­ingu úts­lagið.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár