Lýsir skelfilegri upplifun af akstursþjónustu fatlaðra: „Það eru margir sem geta ekki talað“

Kona, sem not­ast við hjóla­stól, segir farir sínar ekki sléttar af akst­urs­þjón­ustu fatl­aðra. Hún hefur lent í því að bíl­stjórar gleymi henni, valdi henni lík­am­legum skaða og telji að hún kunni ekki að tala. „Ég keypti bíl því akst­urs­þjón­ustan var ekki að standa sig,“ segir hún.

Lýsir skelfilegri upplifun af akstursþjónustu fatlaðra: „Það eru margir sem geta ekki talað“
Fanney Ósk Eyj­ólfs­dóttir keypti sér bíl til þess að þurfa ekki að nýta sér akst­urs­þjón­ustu fatl­aðra. Mynd: Golli

„Það lá við að þeir drápu mig einu sinni,“ segir hin 31 árs gamla Fanney Ósk Eyj­ólfs­dóttir um akst­urs­þjón­ustu fatl­aðra. Fanney Ósk er með cerebral palsy hreyfii­hömlun, eða fjór­lömun, sem hefur það í för með sér að hún þarf að not­ast við hjóla­stól. 

Atvikið sem um ræddi fólst í því að bíl­stjóri á vegum akst­urs­þjón­ustu fatl­aðs fólks, sem var þá rekin undir merkjum Strætó en heitir í dag Pant, gleymdi að setja bremsu á hjóla­stól Fann­eyjar með þeim afleið­ingum að hún keyrði á vegg. Fanney hlaut höf­uð­högg við þetta og þrátt fyrir að nokkur ár hafi liðið frá atvik­inu hefur hún þjáðst af krónískum höf­uð­verk síðan. Í annað skipti var belti sett vit­laust um Fanneyju þannig að það þrengdi að hálsi hennar og hún átti erfitt með að anda. 

„Þeir töl­uðu við mig eins og ég væri ekki talandi,“ segir Fanney. En hún er aðeins með lík­am­lega fötlun, …

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Fanney Osk Eyolfsdottir skrifaði
    Ég er ekki að setja alla undir sama flokk en margir eiga ekki að vera í þessari vinnu. Þetta segir kona með með reynslu af Pant.
    0
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Þannig verður þjónustan þegar hún er boðin út til hagnaðardrifinna fyrirtækja. Starfsfólk vinnur væntanlega á lægstu mögulegum kaupum, fær enga umbun fyrir gott starf og einhverjir huldumenn fara með gróðann burt úr hagkerfinu í eitthvert skattaskjól.
    Næst á lista er heilbrigðiskerfið.
    1
  • Thordis Malmquist skrifaði
    Ég vann lengi með fötluðum fyrir nokkrum árum og verð að segja að þetta er dapurleg þróunn að þjónustan sé orðin svona kaldranaleg og óábyrg að sumu leyti . Hversvegna vilja þeir ekki þjálfun og bæta sig? Við sem erum í umönnun og hjúkrun, ég er sjúkraliði, þurfum sífellt að sækja námskeið til að hressa upp á kunnáttu og að vanda til verka. Blessað fólkið sem er háð ökuþjónustu og hjálpartækjum á betra skilið en svona. Vandið valið við að ráða fólk og gerið líka starfið eftirsóknarvert með því að þjálfa fólk til að umgangast þjónustuþega af umhyggju og virðingu. Lágmarkskrafa.
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár