Vill leyfi til hvalveiða næsta áratuginn

Kristján Loftsson, framkvæmda­stjóri Hvals hf., vill að tryggður verði „eðlilegur fyrir­sjá­an­leiki“ í rekstri og starfsemi fyrir­tækisins. Það verði m.a. gert með því að veita fyrir­tækinu leyfi til veiða á lang­reyðum til næstu 5–10 ára.

Aðgerð
Aðgerð Hval­veiðar fara þannig fram að sprengiskutli er skotið á dýrin. Töluvert var um það á verk­tíð­inni 2022 að skutl­arnir sprungu ekki og þurfti þá að skjóta dýrin aftur. Og jafn­vel aftur. Og aftur. Mynd: Hard to port

Hvalur hf. „óskar hér með eftir endurnýjun leyfis til heimildar til veiða á lang­reyðum“, segir í bréfi sem Hvalur hf., eina fyrir­tækið sem stundar hval­veiðar á Íslandi, sendi matvæla­ráðuneytinu í lok janúar. Telur framkvæmda­stjóri fyrir­tækisins, Kristján Loftsson, sem skrifar undir umsóknina, „rétt og eðlilegt“ að leyfið verði til 5 ára en fram­lengist sjálf­krafa um eitt ár við lok hvers starfsárs, „eða þá hitt að leyfið sé a.m.k. til 10 ára“. Með því yrði tryggður „eðlilegur fyrirsjáanleiki“ í rekstri og starfsemi Hvals. 

Dúi Landmark, upplýsinga­fulltrúi ráðuneytisins, segir umsóknina til meðferðar og að hún verði afgreidd svo fljótt sem unnt er. Ekki sé hins vegar hægt að segja til um hvenær ákvörðun liggi fyrir.

Í leyfis­umsókninni vísar fyrir­tækið til laga um hval­veiðar frá árinu 1949 og að markmið þessara 75 ára gömlu laga sé „að tryggja verndun, þróun og hámarks­nýtingu hvala­auðlindarinnar“. Beri m.a. að taka tillit til hagsmuna „neytenda hvala­afurða“ og hvalveiða sem atvinnu­greinar. 

Hvalur fékk fyrst leyfi til veiða árið 1947 og hefur stundað þær með hléum síðan. Vertíð síðasta sumars var þó með þeim hætti að matvæla­ráðherra setti tíma­bundið bann á veiðarnar áður en hún hófst í kjölfar niður­stöðu fagráðs um að þær samræmdust ekki lögum um velferð dýra. Engin lang­reyður var því veidd fyrr en í september. Þá hafði matvæla­ráðherra kynnt til sögunnar nýja reglugerð sem hafði það markmið að bæta umgjörð veiðanna. Byggði reglu­gerðin m.a. á niður­stöðum eftirlits­skýrslu Matvæla­stofnunar, sem sýnt hafði fram á lang­dregin dauðdaga margra dýra við veiðar sumarið áður. Í hinni nýju reglugerð voru gerðar ítarlegar og hertari kröfur til veiði­búnaðar, veiði­aðferða og eftirlit með veiðunum aukið.

Ekki gætt að meðalhófi

Samkvæmt áliti umboðs­manns Alþingis, sem gefið var út í upphafi árs, gætti Svandís Svavars­dóttir matvæla­ráðherra ekki að meðalhófi eða hafði til þess nægilega skýra lagastoð þegar hún frestaði upphaf vertíðarinnar síðasta sumar.

„Und­ir­bún­ingur að kom­andi ver­tíð er í fullum gangi og miðar með ágætum“
Kristján Loftsson,
fram­kvæmda­stjóri Hvals hf.

Um þetta er fjallað í umsókn Hvals hf. um endurnýjun leyfis til veiða á lang­reyðum í ár. Segist fyrir­tækið vilja minna á, í ljósi stjórn­sýslu matvæla­ráðherra þegar hagsmunir og réttindi Hvals og starfs­fólk þess eru annars vegar, sem og vegna ummæla sem ráðherra hefur látið falla á opinberum vettvangi í kjölfar álits umboðs­manns, að samkvæmt fyrstu málsgrein stjórnar­skrárinnar sé öllum frjálst að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa. „Verður þessu frelsi aðeins settar skorður með lögum“, segir í umsókninni. „Leiðir af þessu að skerðingar á atvinnu­frelsi þurfa að styðjast við sett lög Alþingis“.

Svandís sagði í janúar síðastliðnum að hún hygðist fela óháðum aðila að fara yfir stjórn­sýslu og laga­umgjörð hvalveiða. Framkvæmda­stjóri Hvals hf. telur að vel geti farið á því að færa regluverk um hval­veiðar til nútíma­legs horfs. „Um afgreiðslu erindis Hvals fer þó að sjálfsögðu eftir gildandi lögum.“ Sé þess vænst að afgreiðslu leyfisins verði hraðað enda undir­búningur að komandi vertíð „í fullum gangi og miðar með ágætum“.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kolbrún Karldsdóttir skrifaði
    Í fyrsta lagi, ef það er svona mikið atvinnufrelsi á landinu að fólk geti bara valið sér hvað það gerir, hvers vegna eru strandveiðar þá skertar svona hressilega? Í öðru lagi þá er KL eini maðurinn í öllum heiminum sem hefur haft ríkisstjórnina sína í vasanum og út á frekjugang og fjármagn fengið að veiða stórhveli. KL er eini maðurinn í heiminum sem hefur verið að veiða stórhveli síðustu árin! Japan og Noregur veiða smáhveli (ekki að það sé eitthvað réttlætanlegt) sem er mun einfaldara að skjóta markvisst og kjötið af þeim er ætt. Það góða við þetta stríð hans er að fólk er farið að kynna sér málin betur og skilja um hvað þessi mál snúast.
    3
  • Steinþór Grímsson skrifaði
    Menn eiga að leyfa veiðar á dýrum á meðan það er áhugi og gæta skynsemi.
    -3
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Ef nauðsýnlegt er að veiða hvaði þá á að bjóða veiðarnar út. Enginn á að geta tryggt sér einkarétt árum saman þótt við höfum því miður slæmt fordæmi. Skip Hvals eru komin til ára sinna, ættu að vera á safni eða í brotajárni.
    2
    • Steinþór Grímsson skrifaði
      Þá ætti að bjóða allar veiðar út! Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af skipunum.
      -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár