Bæta nýju svæði á hættumatskortið

Hætta er á jarð­falli í sprungur og sprungu­hreyf­ingum vestan við Grinda­vík, á svæði sem Nesvegur liggur um sem er nú orð­inn helsta sam­göngu­æðin að bæði Grinda­vík og starf­semi Svarts­engi. Doktor í jarð­skorpu­hreyf­ingum hefur vikum saman varað við hættum á þessum slóðum og loks er það komið inn á hættu­mat­skortið.

Bæta nýju svæði á hættumatskortið
Skemmdir Nesvegur fór illa út úr jarð­hrær­ing­unum miklu í nóv­em­ber. Miklar sprungur mynd­uð­ust í veg­inum og voru þær fylltar af möl og sandi. Mynd: Vegagerðin

Á upp­færðu hættu­mat­skorti af Grindvík og nágrenni, sem gefið var út í dag en tekur gildi á morgun, þriðju­dag, hefur Veð­ur­stofan bætt við nýju svæði, svæði 7. Það liggur vestan þétt­býl­is­ins, á slóðum sem ein fyrsta sprungan opn­að­ist í jarð­hrær­ing­unum miklu 10. nóv­em­ber. 

Gregory Paul De Pascale, doktor í jarð­skorpu­hreyf­ingum og dós­ent við Háskóla Íslands, hefur ítrekað bent á nauð­syn þess að vara við hættum á einmitt þessu svæði. Það hefur hann gert innan sam­ráðs­hóps vís­inda­manna sem er Veð­ur­stof­unni til ráð­gjafar við mat á hættu á svæð­inu. Hann var spurður út í málið í við­tali við Heim­ild­ina og sagði sprungur á þessu svæði, sem m.a. rifu í sundur golf­völl­inn og vegi, ekk­ert öðru­vísi en þær sem opn­uð­ust inni í Grinda­vík.

Svæðið hefur loks fengið númer lit á hættu­mat­skort­inu. Guli lit­ur­inn er merki um að nokkra hættu sem þar að finna og varað er sér­stak­lega við jarð­falli ofan í sprungu og sprungu­hreyf­ingar. Um svæðið liggur Nesvegur sem gestum Bláa lóns­ins er nú beint um enda Grinda­vík­ur­vegur og hluti Bláa­lóns­vegar far­inn undir hraun. Unnið er að úrbótum hvað það varðar að sögn Vega­gerð­ar­innar. 

Grinda­vík sjálf og hennar allra næsta nágrenni er merkt í app­el­sínu­gulum lit sem táknar „tölu­verða hættu“ og þar er varað sér­stak­lega við jarð­falli ofan í sprungu og sprungu­hreyf­ingum. Bláa lónið hefur hins vegar gulan lit og þar er varað við hraun­flæði.

Svæði 7Nýtt hættu­svæði hefur verið merkt inn á hættu­mat­skort Veð­ur­stof­unnar. Svæðið er vestan þétt­býl­is­ins í Grinda­víkur og Nesvegur liggur um það.

Veð­ur­stofan upp­færð síð­ast hættu­mat­skort sitt á fimmtu­dag­inn í síð­ustu viku. En ákvað að upp­færa það enn á ný í kjöl­far þess að rík­is­lög­reglu­stjóri féll frá til­mælum um brott­flutn­ing úr Grinda­vík og vegna ákvörð­unar lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum um breyttar heim­ildir íbúa og fyr­ir­tækja hvað varðar aðgengi að bænum. Hið upp­færða hættu­mat tekur þó ekki gildi fyrr en kl. 7 í fyrra­málið, 20. febr­úar, á sama tíma og nýjar aðgeng­is­reglur lög­reglu­stjór­ans taka gildi. 

Í til­kynn­ingu Veð­ur­stof­unnar vegna upp­færsl­unnar segir að svæði 7 hafi verið bætt við „í sam­ráði við almanna­varnir“. Innan þess svæðis sé Nesvegur en auk­inni umferð er nú beint um hann vegna aðgengis að Svarteng­is­svæð­inu sem og Grinda­vík.

Nesvegur yfir sprungu­svæðiHjáleið til Bláa lóns­ins var kynnt fyrir helgi og þá var svæðið vestan Grinda­víkur, sem Nesvegur liggur um, ekki skil­greint sem hættu­svæði. Engu að síður höfðu sprungur um það loks verið merktar á kortið.

Veð­ur­stofan bendir á að hættu­mat­skortið sýni mat á hættu sem er til staðar hættu sem gæti skap­ast með litlum fyr­ir­vara. „Eingöngu er lagt mat á hættu innan þess­ara svæða, en hætta getur leynst utan þeirra.“ Þá varar stofn­unin við því að aðstæður innan og utan hættu­svæða geta breyst með litlum fyr­ir­vara. Hættur geti leynst utan merktra svæða.Úlfar Lúð­víks­son, lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum, hefur ákveðið að rýmka veru­lega aðgengi fólks að Grinda­vík og frá og með morg­un­deg­inum má dvelja þar næt­ur­langt. Hann varar fólk þó við og segir það fara inn á svæðið á eigin ábyrgð. „Hver og einn verður að bera ábyrgð á eigin athöfnum eða athafna­leysi“. Innviðir séu í lama­sessi og sprungur að finna víða. 

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Reykjaneseldar

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár