Spurði ráðherra hvort til stæði að rannsaka aðdraganda slyssins í Grindavík

Þór­hild­ur Sunna Æv­ars­dótt­ir spurði dóms­mála­ráð­herra á Alþingi í dag hvort til stæði að rann­saka að­drag­anda þess að Lúð­vík Pét­urs­son féll í sprungu í Grinda­vík. „Í kjöl­far slyss­ins hef­ur kom­ið fram ósk að­stand­enda um að far­ið verði í sjálf­stæða og óháða rann­sókn á til­drög­um slyss­ins.“

Spurði ráðherra hvort til stæði að rannsaka aðdraganda slyssins í Grindavík
Þór­hildur spurði dóms­mála­ráð­herra hvort að til greina kæmi „að setja á fót starf­hæfa og sjálf­stæða rann­sókn­ar­nefnd almanna­varna að nýju?“

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, spurði  Guðrúnu Haf­steins­dóttur dóms­mála­ráð­herra, „hvort standi til af hálfu ráð­herra að setja á fót sjálf­stæða og óháða rann­sókn á til­drögum og aðdrag­anda þessa slyss?“ í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi fyrr í dag. Átti hún við slysið í Grinda­vík sem varð þess vald­andi að Lúðvík Pét­urs­son féll ofan í sprungu. 

Heim­ildin hefur fjallað ítar­lega um málið. Fjöl­skylda Lúðvíks hefur kallað eftir óháðri rann­sókn á til­drögum slyss­ins og þykir óboð­legt að yf­ir­völd rann­saki sig sjálf. Elías Pét­urs­son, bróðir Lúðvíks, greindi frá því í við­tali við Heim­ild­ina að enn hafi eng­inn sem bar ábyrgð á ákvörð­unum í aðdrag­anda slyss­ins sett sig í sam­band við fjöl­skyld­una. Þegar boðað var til fundar með fjöl­skyld­unni var hann afboð­aður án skýr­inga og hefur ekki enn farið fram. Þegar fjöl­skyldan leit­aði svara lenti hún á sím­svara.

Elías frétti það frá systur sinni að Lúðvík hefði fallið í sprungu í Grinda­vík. Hann segir að slysið hafi strax vakið upp sárar og áleitnar spurn­ingar, en því meira sem komi fram um atvikið hafi „ósvör­uð­um spurn­ing­um bara fjölg­að.“

Í fyr­ir­spurn sinni nefndi Þór­hildur Sunna gagn­rýni aðstand­enda um sam­skipta­leysi og and­svara­leysi stjórn­valda í sinn garð í kjöl­far slyss­ins. „Í þessu sam­hengi er vert að benda á að stjórn­völd hafa sér­stökum skyldum að gegna gagn­vart rann­sóknum af dauðs­föllum sem bera að með óeðli­legum hætti. Dómafor­dæmi Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu sýnir að slík rann­sókn skal vera sjálf­stæð og óháð og aðstand­endum skuli haldið sér­stak­lega upp­lýstum um gang mála.“

Rannsókn í gangi hjá Vinnueftirlitinu og lögreglunni

Dóms­mála­ráð­herra sagði í svari sínu að mark­mið Almanna­varna og dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins hafi frá upp­hafi verið að koma í veg fyrir mann­tjón. „Þetta slys sýndi okkur að við þurfum stöðugt að vera á varð­bergi og það í þeim anda hafa almanna­varnir starfað síð­ustu vikur og mán­uði.“

Dóms­mála­ráð­herra sagði að sam­kvæmt hennar upp­lýs­ingum liggi fyrir að rann­sókn sé í gangi hjá Vinnu­eft­ir­lit­inu og lög­regl­unni á til­drögum slyss­ins. 

Þór­hildur Sunna hvatti dóms­mála­ráð­herra til að skoða þann mögu­leika að hefja sjálf­stæða óháða rann­sókn varð­andi til­drög slyss­ins, vegna sér­stakrar skyldu sem stjórn­völd hafa þegar kemur að and­látum sem ber að með óeðli­legum hætti. „Það er mjög skýrt að það á að fara af stað sjálf­stæð og óháð rann­sókn þegar það ber að.“

Nýlega var lögum um almanna­varnir breytt. Stjórn­völd lögðu niður nefnd sem ætlað var að rann­saka hvernig yfir­völd almanna­varna færu að og eft­ir­litið fært yfir til almanna­varna sjálfra. Rannsókn í málum líkt og slys­inu í Grinda­vík fer ekki sjálf­krafa af stað eftir atvik heldur þarf sér­staka ákvörðun um að rann­saka þurfi atburði sem almanna­varnir komi að.

„Síðan vil ég taka fram að nefndin, sam­kvæmt frétta­flutn­ingi, var lögð niður vegna þess að henni hefði aldrei verið gert kleift að sinna störfum sínum með full­nægj­andi hætti vegna van­fjár­mögn­unar og skorti á stuðn­ingi frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu,“ sagði Þór­hildur

Hefur ekki tekið ákvörðun hvort að nefndin verði endurvakin

Þór­hildur spurði dóms­mála­ráð­herra hvort að til greina kæmi „að setja á fót starf­hæfa og sjálf­stæða rann­sókn­ar­nefnd almanna­varna að nýju?“

Í við­tali við Helga Seljan í Pressu fyrr í mán­uð­inum sagð­ist dóms­mála­ráð­herra hafa „heim­ild, sam­kvæmt almanna­varna­lögum, til þess að kalla eftir ytri og innri úttekt. Mér finnst mjög eðli­legt að það verði gert, þannig að vita­skuld þegar að svona hörmu­legir atburðir eigi sér stað að þá eigum við að rann­saka þá til hlítar. Hvað gerð­ist? Hefði verið hægt að koma í veg fyrir það eða ekki?“

Í svari dóms­mála­ráð­herra til Þór­hildar fyrr í dag sagð­ist Guðrún ekki þekkja nákvæm­lega hvað olli skorti á aðbún­aði og und­ir­bún­ingi nefnd­ar­innar sem gerði það að verkum að hún hafi ekki getað sinnt sínu hlut­verki. „Allavega var það nið­ur­staðan að nefndin var lögð niður. Ráðherra hefur ekki tekið ákvörðun um það enn sem komið er hvort þessi nefnd verði end­ur­vakin. En ég minni á það að ráð­herra hefur viða­miklar heim­ildir til þess að kalla eftir bæði ytri og innri rýni á þeim almanna­varna­við­brögðum sem beitt hefur verið úti á Reykja­nesi.“

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Féll í sprungu í Grindavík

Ekkert skriflegt áhættumat og skipulag aðgerða „nokkuð óreiðukennt“
FréttirFéll í sprungu í Grindavík

Ekkert skrif­legt áhættu­mat og skipu­lag aðgerða „nokkuð óreiðu­kennt“

Vinnu­eft­ir­litið segir að velta megi fyrir sér hvort að fyll­ing í sprungu við íbúð­ar­hús í Grinda­vík hafi verið áhætt­unnar virði. Þegar áhætta sé metin ætti fyrsta spurn­ingin alltaf að vera hvort „algjör­lega nauð­syn­legt“ sé að fram­kvæma til­tekið verk. Eft­ir­litið hefur lokið rann­sókn sinni á hvarfi Lúðvíks Pét­urs­sonar.
Tilgangsleysi og gáleysi lýst í rannsókn slyssins í Grindavík
AfhjúpunFéll í sprungu í Grindavík

Til­gangs­leysi og gáleysi lýst í rann­sókn slyss­ins í Grinda­vík

Það svar­aði ekki kostn­aði að fara í fram­kvæmdir við að bjarga hús­inu við Vest­ur­hóp 29 í Grinda­vík, sam­kvæmt skýrslu tveggja mats­manna sem skoð­uðu húsið rúmum mán­uði áður en að verk­taki lést við sprungu­fyll­ingu við húsið. Nátt­úru­ham­fara­trygg­ing vísar ábyrgð á und­ir­verk­taka sinn, Eflu, sem segir engar kröfur hafa verið gerðar um áhættu­mat á verk­staðnum. Lögregla hafði lokið rann­sókn en hóf hana aftur, af ókunnum ástæðum.
Leituðu svara en fengu símsvara
ViðtalFéll í sprungu í Grindavík

Leituðu svara en fengu sím­svara

Enginn af þeim sem kom að ákvörð­unum eða bar ábyrgð á málum í Grinda­vík, þegar Lúðvík Pét­urs­son hvarf ofan í sprungu, hefur sett sig í sam­band við börn hans eða systk­ini eftir að leit að honum var hætt. „Ósvöruðum spurn­ingum hefur bara fjölgað,“ segir Elías Pét­urs­son, bróðir hans. Það sé sorg­lega íslenskt að þurfa að stíga fram og berj­ast fyrir óháðri rann­sókn. Óboðlegt sé að yfir­völd rann­saki sig sjálf.
Sprungufyllingar búa til ný og hættulegri vandamál
Fréttir

Sprungu­fyll­ingar búa til ný og hættu­legri vanda­mál

Þrír af reynd­ustu jarð­vís­inda­mönnum lands­ins telja það hafa verið mis­ráðið að reyna að fylla upp í sprungur í Grinda­vík í kjöl­far ham­far­anna í nóv­em­ber. „Ég held að þar hafi menn valið ranga leið,“ segir Páll Ein­ars­son. Ármann Hösk­ulds­son telur hægt að fylla í sprungur en þeir sem taki slíkar ákvarð­anir verði að hafa í huga að ekki dugi að „sturta í gatið og vita ekk­ert hvað maður er að gera“.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár