Prestur innflytjenda líkaði við færslu Bjarna

Annar starf­andi prestur inn­flytj­enda og flótta­fólks hjá þjóð­kirkj­unni lík­aði við Facebook-færslu Bjarna Bene­dikts­sonar utan­rík­is­ráð­herra þar sem fram kom að herða þyrfti reglur um hæl­is­leit­enda­mál og auka eft­ir­lit á landa­mærum. Núver­andi fyr­ir­komu­lag væri alger­lega komið úr bönd­unum og inn­viðir sprungnir. Prest­ur­inn seg­ist hafa verið sam­mála ummælum Bjarna um tjald­búð­irnar.

Prestur innflytjenda líkaði við færslu Bjarna
Tjald­búðum var slegið upp á Aust­ur­velli vik­unum saman til að mót­mæla skorti á aðgerðum stjórn­valda í mál­efnum dval­ar­leyf­is­hafa á Gaza. Mynd: Golli

Pétur Ragn­hild­ar­son, annar prestur inn­flytj­enda og flótta­fólks hjá þjóð­kirkj­unni, lík­aði við umdeilda Facebook-færslu Bjarna Bene­dikts­sonar utan­rík­isáð­herra sem birt­ist í síð­asta mán­uði. Færslan var birt í kjöl­far mót­mæla Palest­ínu­manna sem kröfð­ust aðgerða rík­is­stjórn­ar­innar í mál­efnum dval­ar­leyf­is­hafa á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar sem fastir eru á Gaza.

Í færsl­unni gagn­rýndi utan­rík­is­ráð­herra tjald­búðir mót­mæl­enda á Aust­ur­velli, kall­aði þær „hörm­ung“ og taldi það ólíð­andi að öðrum þjóð­fána væri flaggað fyrir framan Alþingi svo vikum skipti. Í því sam­hengi sagði hann að herða þyrfti reglur um hæl­is­leit­enda­mál.

„Núver­andi fyr­ir­komu­lag er alger­lega komið úr bönd­unum, bæði varð­andi kostnað og fjölda umsókna. Innviðir okkar eru komnir að þol­mörkum,“ skrif­aði Bjarni.

Á vegum þjóð­kirkj­unnar starfa prestar sem þjón­usta sér­stak­lega inn­flytj­endur og flótta­fólk. Prest­arnir vinna sem almennir ráð­gjafar, ekki sem …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EGT
    Einar G Torfason skrifaði
    "Ömurlegt"!
    0
  • Helga Ögmundardóttir skrifaði
    Þvílíkur fulltrúi kærleika og umburðarlyndis. Skömm að þessu.
    1
  • Árni Guðnýar skrifaði
    Er það rétt skilið hjá mér að þessi greyn sé skrifuð í þeim eina tilgangi að sá sá efa um hollustu og góðvild umræds prest?
    -4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár