Sigurður Ingi sker upp herör gegn lóðabraski

Sigurður Ingi Jóhannesson innviða­ráðherra tilkynnti nú fyrir skömmu á Facebook-síðu sinni að hann hafi mælt fyrir frumvarpi sem felur í sér hvata fyrir lóðarhafa til að hefja uppbyggingu á íbúðar­húsnæði án tafa eins og deili­skipulag gerir ráð fyrir. Tilgangur frum­varpsins er meðal annars sá að draga úr lóða­braski sem Sigurður Ingi lýsti sem „ófor­svar­an­legu athæfi“

Sigurður Ingi Jóhannsson
Sigurður Ingi Jóhanns­son lagði fram frum­varp sem hann telur að muni draga úr lóða­braski Mynd: Bára Huld Beck

Sigurður Ingi Jóhannsson innviða­ráðherra telur að stemma þurfi stigu við lóða­braski sem hefur viðgengist hér á landi árum saman. Í Facebook-færslu sem Sigurður Ingi birti nú fyrir skömmu sagði hann lóðabrask gjarnan leiða til hærra fasteigna­verðs og auka verðbólgu. Viðskiptin einkennast af því að lóðar­reitir eru keyptir af einstaklingum eða fyrir­tækjum sem sitji á þeim um tíma og selji síðan lóðirnar á hærra verði. 

Innviða­ráðherra segir raunar að lóðar­reitir séu „keyptir á milljarða króna af aðilum sem selja svo nokkrum vikum síðar á enn fleiri milljarða til bygginga. Einstaklingur sem kaupir íbúð á reit sem hefur lent í lóða­braski stendur uppi með ennþá hærra kaupverð, þarf að taka enn hærra lán og afleiðingarnar verða enn hærra fasteigna­verð sem setur þrýsting á verð­bólguna. Ekki er hægt að kalla þetta annað en lóðabrask og hefur ekkert með húsnæðis­öryggi fólks að gera.“

Í færslunni tilkynnti Sigurður Ingi að hann hafi mælt fyrir frumvarpi í vikunni, „sem felur í sér skýran hvata fyrir lóðarhafa til hefja uppbyggingu íbúðar­húsnæðis eins og deili­skipulag gerir ráð fyrir.“ Þetta sér gert til þess að vinda ofan af „þessu óforsvaranlega athæfi,” að sögn Sigurðar. 

Verði frum­varpið samþykkt á þingi geta sveitar­félög knúið lóðar­eigendur til þess að hefja uppbyggingu í samræmi við samþykkt deili­skipulag.

Sigurður Ingi telur frum­varpið vera „eitt af fjölmörgum þáttum sem geta unnið að því ásamt öðru að koma jafnvægi á húsnæðis­markaðinn þar sem miklar sveiflur hafa verið á húsnæðis­verði og byggingu íbúð.“

Í frum­varpinu sem lagt var fyrir þingið 26. janúar er sveitar­félögum veitt laga­heimild til þess að geta tekið uppbyggingar­heimildir lóðar­eigenda til endur­skoðunar ef framkvæmdir hefjast ekki innan fimm ára frá birtingu samþykkts deili­skipulags.

Sömuleiðis myndu lögin veita sveitar­félögum heimild til þess að kalla eftir skýringum frá lóðar­höfum ef engin umsókn um byggingar­áform hefur borist innan tilskilins frests.

Í greinar­gerð frum­varpsins kemur fram að breytingin sé til þess fallið að veita sveitar­félögum laga­heimild til að knýja á um framgang samþykkts deili­skipulags og tryggja að hraði uppbyggingarinnar sé í samræmi við húsnæðis­þörf.

Forsendurnar baki frum­varpinu er meðal annars sá að frestur á uppbyggingu felur í sér mikinn kostnað fyrir sveitar­félögin. Þá veldur seinagangur við uppbyggingu miklum óþægindum fyrir fólk sem býr í nágrenni við lóðir sem til stendur að byggja á.

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Björg Sverrisdóttir skrifaði
    Hvers vegna 5 àr? Væri ekki nær hámark 2 ár ?
    Það á hætta að teygja á framkvæmdum og byrja strax!
    0
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Sýndarmennska hjá Sigurði því engin eru viðurlaugin né refsingin.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár