Elliði bjó í húsi Einars og Hrólfs í rúm tvö ár án þess að eiga það

Ellliði Vign­is­son bæj­ar­stjóri varð ekki raun­veru­legur eig­andi húss­ins á Hjalla fyrr en í blá­lok síð­asta árs. Þetta kemur fram í gögnum sem Skatt­ur­inn sendi Heim­ild­inni.

Elliði bjó í húsi Einars og Hrólfs í rúm tvö ár án þess að eiga það
Klárað í lok árs 2023 Gengið var frá eig­enda­skipt­unum á eign­ar­halds­fé­lag­inu sem á húsin á Hjalla í lok síð­asta árs. Þá eign­uð­ust Elliði Vign­is­son, bæj­ar­stjóri Í Ölfusi, og eig­in­kona hans húsin.

Elliði Vign­is­son, bæj­ar­stjóri í Ölfusi, og eig­in­kona hans, Berta Johansen, urðu raun­veru­legir eig­endur eign­ar­halds­fé­lags­ins sem á húsið á jörð­inni Hjalla í blá­lok síð­asta árs. Nánar til­tekið gerð­ist þetta þann 29. des­em­ber með til­kynn­ingu til fyr­ir­tækja­skrár Skatts­ins þar sem upp­lýst var að Elliði og Berta hefðu keypt allt hlutafé í félag­inu LB-10 ehf.

Eig­enda­skiptin höfðu átt sér stað einum degi áður og und­ir­rit­aði annar af fyrri eig­endum LB-10 ehf., Hrólfur Ölvisson, eig­enda­skiptin á félag­inu raf­rænt. Samhliða þessu varð sonur þeirra Elliða og Bertu, Nökkvi Elliða­son, fram­kvæmda­stjóri LB-10 ehf.

Þetta kemur fram í PDF-gögnum frá fyr­ir­tækja­skrá Skatts­ins sem stofn­unin sendi Heim­ild­inni að beiðni mið­ils­ins. Í gagna­grunni Láns­trausts var ein­ungis hægt að sjá að þau Elliði og Berta væru orðnir eig­endur félags­ins LB-10 ehf. en ekki hvernig eða hvenær þetta gerð­ist. Þess vegna óskaði Heim­ildin eftir und­ir­liggj­andi gögnum frá fyr­ir­tækja­skrá. Kaupverð eign­ar­halds­fé­lags­ins kemur hins vegar ekki fram í gögn­unum og hefur Elliði aldrei …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Elliði er ekki fyrsti sjálfstæðismaðurinn sem nýtir aðstöðu sína í opinberu starfi í eiginhagsmunaskyni. Eyjamenn voru heppnir að losna við hann.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðefnaiðnaður í Ölfusi

Velgjörðarmenn Elliða hafa bæði hagsmuni af námum í sjó og á landi
SkýringJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Vel­gjörð­ar­menn Elliða hafa bæði hags­muni af námum í sjó og á landi

Einar Sig­urðs­son og Hrólfur Ölvisson námu­fjár­festar hafa fjöl­þættra hags­muna að gæta af því að möl­un­ar­verk­smiðja Heidel­berg rísi í Ölfusi og að fyr­ir­tækið fái að vinna efni af hafs­botni við Land­eyjar. Elliði Vign­is­son segir til­gátur um hags­muna­á­rekstra tengda námu­fjár­fest­unum langsóttar. Harðar deilur eru um verk­smiðj­una og efn­is­tök­una.
Stóriðja og landeldi takast á í eitruðu andrumslofti í Ölfusi
SkýringJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Stóriðja og land­eldi takast á í eitr­uðu andrums­lofti í Ölfusi

Miklar deilur eru komnar upp í við­skipta- og stjórn­mála­líf­inu í sveit­ar­fé­lag­inu Ölfusi um möl­un­ar­verk­smiðju þýska fyr­ir­tæk­is­ins Heidel­berg. Íbúa­kosn­ingu um möl­un­ar­verk­smiðj­una hefur verið frestað vegna gagn­rýni frá land­eld­is­fyr­ir­tæk­inu First Water sem telur verk­smiðj­una skað­lega fyrir starf­semi þess.
Heidelberg reyndi að beita Hafró þrýstingi fyrir opinn íbúafund í Ölfusi
FréttirJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Heidel­berg reyndi að beita Hafró þrýst­ingi fyrir opinn íbúa­fund í Ölfusi

Lög­manns­stofan Logos sendi tölvu­póst fyrir hönd Heidel­berg með beiðni um að starfs­maður Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar tæki ekki þátt í opnum íbúa­fundi í Ölfusi. Starfs­mað­ur­inn hafði unnið rann­sókn um áhrif námu­vinnslu fyr­ir­tæk­is­ins á fiski­mið og hrygn­ing­ar­svæði nytja­stofna úti fyrir strönd Ölfuss. Skylda Hafró að upp­lýsa almenn­ing segir for­stjór­inn.
Hafró gagnrýnir „fordæmalausa framkvæmd“ Heidelberg í Ölfusi
FréttirJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Hafró gagn­rýnir „for­dæma­lausa fram­kvæmd“ Heidel­berg í Ölfusi

Haf­rann­sókn­ar­stofnun hefur skrifað gagn­rýna umsögn um fyr­ir­hug­aða efn­is­töku þýska sem­ents­fyr­ir­tæk­is­ins Heidel­berg í Ölfusi. Fyr­ir­tækið ætlar að taka tæp 12 þús­und tonn af efni á dag, eða sem nemur 358 ful­lest­uðum flutn­inga­bílum, af hafs­botni. Hafró telur fram­kvæmd­ina geta haft slæm áhrif á fiski­stofna sem hrygna á svæð­inu og að efn­istakan geti breytt strand­lengj­unni til fram­búðar.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár