Samfylkingin tapaði 52 milljónum króna á árinu 2022 og 58 milljónum króna árið 2021. Samanlagt tap hennar á tveimur árum var því 110 milljónir króna. Þetta kemur fram í ársreikningi flokksins vegna ársins 2022 sem birtur var á vef Ríkisendurskoðunar nýverið.
Bæði umrædd ár fóru fram kosningar. Síðustu alþingiskosningar kostuðu Samfylkinguna 89 milljónir króna og sveitarstjórnarkosningarnar ári síðar kostuðu 71 milljón króna. Flokkurinn tapaði fylgi og einum þingmanni í þingkosningunum 2021 og tapaði samtals þremur sveitarstjórnarfulltrúum í kosningunum 2022.
„Lítill hluti lána Samfylkingarinnar er hjá bönkum“
Vegna verra gengis í kosningum drógust tekjur Samfylkingarinnar saman, en opinber framlög eru langstærsti hluti tekna flokksins líkt og hjá öðrum flokkum í landinu, að Sjálfstæðisflokknum undanskildum sem hefur verið að selja byggingarétti og haft af því mörg hundruð milljóna tekjur á undanförnum árum. Framlög úr opinberum sjóðum drógust saman um 19 milljónir króna milli ára og voru 119 milljónir króna. Framlög lögaðila tvöfölduðust …
Athugasemdir