Óljóst hvort samningur Ríkiskaupa við Rapyd verði framlengdur

Ramma­samningur um færslu­hirðingu ísraelska fjár­tækni­fyrir­tækisins Rapyd fyrir A-hluta stofnanir rennur út 19. febrúar næst­komandi. Sara Lind Guðbergs­dóttir, forstjóri Ríkis­kaupa, segir að ekki sé búið að ákveða hvort samningurinn verði fram­lengdur en samkvæmt skilmálum er Ríkis­kaupum heimilt að fram­lengja samninginn um eitt ár í viðbót.

Sara Lind Guðbergsdóttir, settur forstjóri Ríkiskaupa,
Sara Lind Guð­bergs­dóttir, settur for­stjóri Rík­is­kaupa, segir að ákvörð­unin um hvort fram­lengja eigi þjón­ustu­samn­ing Rík­is­kaupa við Rapyd muni meðal ann­ars taka mið af mark­aðs­að­stæðum Mynd: Samsett / Heimildin

Forstjóri Ríkis­kaupa, Sara Lind Guðbergs­dóttir, segir að enn eigi eftir að taka ákvörðun um það hvort ramma­samningur við greiðslu­miðlunar­fyrirtækið Rapyd verður fram­lengdur. 

Í skriflegu svari við fyrir­spurn Heimildarinnar segir Sara að „ekki liggur fyrir hvort heimild til fram­lengingar verði nýtt eða hvort samningurinn verði boðinn út að nýju.“

Ramma­samningur um færslu­hirðingu fyrir A-hluta stofnanir tók gildi 19. febrúar 2021. Samningurinn gilti í tvö ár og var fram­lengdur um eitt ár og mun því renna út eftir tæpan mánuð. Samkvæmt samningnum er heimilt að fram­lengja hann aftur til eins árs. 

Spurð um til hvaða sjónar­miða sé litið til í endur­skoðunar­ferlinu, segir Sara Lind að lagt sé „mat á það hvort forsendur til fram­lengingar séu fyrir hendi eða hvort markaðs­aðstæður hafi breyst með þeim hætti að rétt sé að falla frá þeirri heimild og bjóða samninginn út að nýju. Hluti af því ferli er að leggja mat á það hvort ástæður til útilokunar eigi við, eins og þeim er lýst í lögum um opinber innkaup.“

Hávær krafa um sniðgöngu 

Harðnandi átök fyrir botni Miðjarða­hafs og skæðar loft­árásir Ísraels­hers hafa leitt til þess að margir hafa hér á landi hafa hvatt til þess að sniðganga vörur og þjónustu frá ísraelskum fyrir­tækjum.

Í þeirri umræðu hefur ísraelska greiðslu­miðlunar­fyrirtækið Rapyd gjarnan verið nefnt. Sérstak­lega eftir að ummæli forstjóra Rapyd, Arik Shtilman, komust í hámæli hér landi í lok október í fyrra.

Í nokkrum færslum á samfélags­miðlinum LinkedIn sagði Arik að hann og fyrir­tækið styðji árásir Ísrael á Gasa. Í kjölfarið hefur víða verið hvatt til sniðgöngu fyrir­tækja sem eru í viðskiptum við Rapyd og þrýstingur settur á þau til að færa viðskipti sín annað. Á meðal þeirra sem hafa nýverið sagt upp samningi við Rapyd vegna umræðunnar hérlendis er Rauði krossinn á Íslandi.

 Fyrirtæki í sterkri stöðu

Í júlí 2021 náði Rapyd samkomu­lagi við Arion banka um kaup á Valitor fyrir um 100 milljónir Bandaríkja­dala. Samkvæmt skýrslu Samkeppnis­eftirlitsins sem birt var 2022 kaupunum jókst markaðs­hlutdeild Rapyd talsvert með kaupunum, en fyrir kaupin hafði Valitor verið í markaðs­ráðandi stöðu. Á sama tíma hafi markaðs­hlutdeild SaltPay, sem hét áður Borgun, dregist verulega saman.

Sem fyrr er í gildi þjónustu­samningur Ríkis­kaupa við Rapyd um færslu­hirðingu fyrir A-hluta stofnanir. Samningurinn var upphaf­lega gerður við Valitor hf. eftir að hafa boðið upp á hagstæðasta tilboðið í útboði sem var haldið árið 2021. 

Undir A-hluta stofnanir flokkast um 160 stofnanir ríkisins. Sem dæmi eru heilbrigðis­stofnanir, sjúkrahús, framhalds­skólar, háskólar og Áfengis­verslun ríkisins A-hluta stofnanir.

Setning forstjóra Ríkiskaupa rennur líka út í febrúar

Samkvæmt heimasíðu Ríkis­kaupa kemur fram að tíma­bundin setning forstjóra Ríkis­kaupa rennur út 29. febrúar næst­komandi. Sara tók við starfinu eftir að Björgvin Víkingsson sagði upp starfi sínu og var ráðinn innkaupa­stjóri Bónus í maí 2023. 

Sara Lind var skipuð af þáverandi fjármála­ráðherra, Bjarna Benedikts­syni, sem tíma­bundinn forstjóri Ríkis­kaupa til 31. ágúst. Skipunar­tími hennar var síðar fram­lengdur til lok febrúar á þessu ári. 

Í svari sínu við fyrir­spurn Heimildarinnar um það hvort hún ætli að sækja um starfið þegar það verður auglýst svarar Sara blaða­manni með því benda honum á að beina fyrir­spurn sinni til fjármála- og efnahags­ráðuneytisins „sem hefur umsjón með mála­flokknum og skipar í embættið.“

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár