Fær í flestan sjó Að stunda sjó­sund virkjar ótrú­leg­ustu orku innra með manni að sögn Herdísar Önnur Þor­valds­dóttur. Hún var í mörg ár að byrja en er nú for­maður Sund- og sjó­baðs­fé­lags Reykja­víkur. Mynd: Golli

Allt verður auðveldara

Sjósund er vald­efl­andi, hvetj­andi og góður grunnur fyrir alla aðra hreyf­ingu. „Það fer ekk­ert vont fólk í sjó­inn,“ segir Herdís Anna Þor­valds­dóttir, for­maður Sund- og sjó­baðs­fé­lags Reykja­víkur. Félags­skap­ur­inn skiptir líka sköpum, eins og sjó­sunds­vin­kon­urnar Harpa og Sigrún þekkja mæta­vel, en þær hitt­ast bara í sjónum.

Orka. Kraftur. Virkni. Þannig lýsir Herdís Anna Þor­valds­dóttir, for­maður Sund- og sjó­baðs­fé­lags Reykja­víkur, SJÓR, áhrifum sjó­sunds. „Mér líður það mikið betur og fæ auk­inn kraft að allt annað sem mér dettur í hug að vilja gera verður bara miklu aðgengi­legra, auð­veld­ara og yfir­stíg­an­legra.“

Sjósund hefur verið stundað hér á landi í rúma öld en tekur sífelldum breyt­ingum. Blaða­kona mælti sér mót við Herdísi Önnu á köldum jan­ú­ar­degi, sem reynd­ist vera kald­asti dagur vetr­ar­ins í Reykja­vík hingað til; loft­hiti var mínus sex gráður og sjáv­ar­hiti 1,9 gráður. „Hefur þú farið í sjó­inn sjálf?“ spurði Herdís Anna. Þegar blaða­kona sagð­ist alltaf vera á leið­inni að prófa, eins og svo mörg, brást for­mað­ur­inn við með ein­faldri spurn­ingu: „Þarftu ekki að prófa?“

Hönd í höndÞað er alls ekk­ert vit­laust að byrja í sjó­sundi í jan­úar eins og blaða­kona Heim­ild­ar­innar fékk að kynn­ast af eigin raun. Þá verður hvert skipti eftir það ekki eins kalt.

Var nokkur ár að byrja  

Morg­unn­inn var ískaldur og það gekk á með dimmum éljum, en þegar fór að birta og sólin fór að gægj­ast fram rann upp fyrir blaða­konu að þetta var að fara að ger­ast: Ég var að fara í sjó­inn. „Skamm­degið verður ekki eins ógn­vekj­andi,“ segir Herdís Anna um ástæður þess að hún velji að stunda sjó­sund. Hún var hins vegar  mörg ár að láta til skarar skríða. „Vá, ég held að ég hafi verið nokkur ár að byrja. Ég var oft að hugsa um þetta en þá var þetta ekk­ert orðið svo vin­sælt.“

„Skamm­degið verður ekki eins ógn­vekj­andi“

Herdís Anna starf­aði í Háskól­anum í Reykja­vík fyrir 13 árum og leiddi hug­ann oft að sjónum. Hana lang­aði ofan í. „En ég vissi ekki alveg hvernig ég átti að gera það. Það er hægt að fara á nám­skeið eða finna sér vin sem er til­bú­inn að gera þetta með manni. Eða bara mæta og hengja sig á fólk. Ég gerði það. Ég mætti bara, hér var alltaf ein­hver, ég fékk að vera sam­ferða. Það eru bara allir næs hérna. Það er líka það sem maður upp­götvar. Ég hengdi mig bara á ein­hverja og fór með þeim út í. Það þarf ekk­ert annað en sjó­sund­skó og hanska, að minnsta kosti þegar sjór­inn er undir átta gráðum. Og sund­föt.“

OrkaSkamm­degið verður ekki eins ógn­vekj­andi þegar þú stundar sjó­sund, svo ekki sé talað um þegar vetr­ar­sólin lætur sjá sig. Herdís Anna Þor­valds­dóttir hefur stundað sjó­sund í nokkur ár en var lengi að koma sér af stað.

Sjórinn var vel undir átta gráðum þegar Herdís Anna leiddi mig í gegnum gadd­inn niður á strönd­ina í Naut­hóls­vík. Leið­bein­ing­arnar voru í raun ein­faldar: Anda hægar út en inn og kross­leggja hendur yfir bringu til að fá örygg­is­til­finn­ingu.

VelkominKaldasti dag­ur­inn hingað til þennan vet­ur­inn.

„Kanntu að syngja? Hvað er upp­á­halds­lagið þitt? Ég syng alltaf Smile,“ sagði Herdís Anna. Með 20 ára kór­reynslu gat ég ekki annað en kinkað kolli og upp­á­halds­lagið, það hlýtur að vera upp­á­halds­lagið hennar ömmu, Maí­stjarnan. Saman gengum við í sjó­inn og ótrú­legt en satt þá var þetta bara ekki svo slæmt, það var hvort sem er svo kalt áður en tás­urnar snertu sjó­inn. Ofan í fórum við og sungum hástöfum: „Ó, hve létt er þitt skó­hljóð, og hve lengi ég beið þín, það er vor­hret á glugga, napur vindur sem hvín.“ Það er kannski enn tölu­vert í vor­hretið en vind­ur­inn var svo sann­ar­lega napur. En það kom ekki að sök. Þetta gat ég. Í jan­úar. Sig­ur­til­finn­ingin hrísl­að­ist um mig alla. Álengdar var önnur kona í sjónum, alein, sem bað­aði út hönd­unum. Hún var örugg­lega líka með sig­ur­til­finn­ingu.

Að sigrast á sjálfri sér

„Það er jafn­vel bara betra að byrja í jan­úar,“ segir Herdís Anna. „Svo verður alltaf betra þegar fer að hlýna.“ Hún hlær. Eftir góðar 4–5 mín­útur í sjónum förum við í gufu til að fá hita í kropp­inn. Herdís Anna skellir í eina hand­stöðu í leið­inni. Í sjó­sund­inu sækir hún jákvæða orku og fær auk­inn kraft til að stunda frek­ari hreyf­ingu og takast á við alls konar verk­efni. „Ég er bara viss um það að þetta hefur ein­hver áhrif á hormón í lík­am­anum sem gerir það að verkum að hlutir verða yfir­stíg­an­legri. Þar af leið­andi, þá fór ég að hreyfa mig meira eftir að ég fór að fara í sjó­inn. Ég var komin með verki úti um allt, slit­gigt hér og þar. Svo bara þegar ég fór að fara í sjó­inn kom svo mik­ill kraftur. Allt í einu var ekk­ert mál að hlaupa upp á Móskarðs­hnjúka.“

Orkan nær líka til athafna dag­legs lífs. Og rúm­lega það. „Ég er búin að gera upp hús, fárán­lega stórt hús, ég fór allt í einu að múra svalir og flytja grjót­hnull­unga, mér myndi aldrei detta þetta í hug, en við það að sigr­ast á sjálfri þér við þessar krefj­andi aðstæður, miklar áskor­anir eins og að takast á við kuld­ann og þann sárs­auka sem oft því fylgir, þá verður allt annað aðgengi­legra. Maður verður kraft­meiri og hreyf­an­legri.“

Perla í höfuðborginni

Sjósund hefur verið stundað um ára­bil í Naut­hóls­vík. Sum hafa það fyrir reglu að synda að kaðl­inum í vík­inni og til baka. Það er um það bil 500 metra vega­lengd, en það fer aðeins eftir því hvernig er í sjó­inn. Herdís Anna hefur farið þá vega­lengd þegar sjó­hiti var mínus 2,2 gráður, sem er það kaldasta sem hann hefur mælst. 

„Hann hefur gert það nokkrum sinnum. Stundum hélar hann og stundum ekki, ef það er hreyf­ing á honum þá hélar hann ekki. Ef hann frýs þarftu að brjóta þér leið og þá getur þú skorið þig svo­lítið ef hann er þunnur. Við vorum þarna tvær, við þekkt­umst ekk­ert, og þetta fór ekk­ert illa með okkur. Það var alveg stillt, okkur leið ágæt­lega, bara vanar, og ég segi: „Eigum við kannski bara að synda?“ Svo við syntum, alveg að kaðli. Á leið­inni sjáum við fugl sporð­renna ein­hverjum stærsta fisk sem ég hef séð. Þú tekur ekk­ert eftir kuld­anum. Svo eru stundum selir hérna. Að höf­uð­borg eigi svona perlu inni í miðri borg þar sem þú verður svona nátengd nátt­úr­unni, það er rosa­legur fjár­sjóður.“

GleðiFjöldi fólks kemur saman í Naut­hóls­vík, fimm daga vik­unnar þegar aðstaðan er opin, og stundar sjó­sund. Hér má sjá hóp kvenna sem sækir sjó­sund­s­leikja­nám­skeiðið Glaðari þú.

Sjó­sunds­að­staðan er opin þriðju­daga til laug­ar­daga milli 11 og 19. Lokað er á sunnu­dögum og mánu­dögum. Herdís Anna og SJÓR hvetja borg­ina ein­dregið til að end­ur­skoða afgreiðslu­tím­ann, en mánu­dagslok­unin er frekar ný til­komin. „Auðvitað á að vera opið á sunnu­dögum. Þetta er frí­stunda­iðkun, hvenær á fólk oft­ast lausa stund?“ Spurn­ing­arnar halda áfram: „Hvað kostar það sam­fé­lagið ef fólk nær ekki að stunda sína lík­ams­rækt? Ef þú gerir lýð­heils­una aðgengi­lega þá kemur það bara í bakið á þér. Þetta er for­vörn.“

Herdís Anna þekkir mörg dæmi um ágæti sjó­sunds. „Það er alls konar fólk að kljást við alls konar kvilla, bæði and­lega og lík­am­lega. Líka fólk sem er að kljást við fíkn. Hér finnur þú ein­hvers konar „kick“. Ég veit um fullt af fólki sem dílar við fíkn með því að nota sjó og mjög erfið and­leg áföll, mik­inn missi. Ég sé aldrei neitt nema plús við að halda þessu opnu.“

Kuldinn, eftir allt saman, er nefni­lega „svo­lítið geggj­aður. Þetta er margs konar. Þetta er kraft­ur­inn í sjónum og alls konar stein­efni, þetta er nátt­úran og kæl­ingin. Svo bara gleðin, fólk er svo glatt. Áran yfir fólk­inu sem er hérna er svo jákvæð. Það fer ekk­ert vont fólk í sjó­inn.“

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Thordis Arnadottir skrifaði
    Meira svona um hvar konur hittast og eru saman 💪❤️✨Innileg og falleg umfjöllun!
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár