Annar sigdalur hefur myndast í Grindavík

Um kíló­metra breiður sigdalur er að mynd­ast í aust­ur­hluta Grinda­víkur, til við­bótar við annan sig­dal frá því í nóv­em­ber.

Annar sigdalur hefur myndast í Grindavík
Jarð­skorpu­hreyf­ingar Frá Grinda­vík í gær. Myndin er tekin í göt­unni Norð­ur­hópi. Mynd: Golli

Á þess­ari stundu er nýr sigdalur að mynd­ast í aust­ur­hluta Grinda­víkur. Mörk hans liggja við vest­ur­enda Efrahóps í vestri, nákvæm­lega þar sem hrauntunga rann inn í bæinn um helg­ina, og liggja eystri mörk hans við Þór­kötlu­staða­hverfi. Hann er um 800 til 1.000 metra breiður. Mesta sig í dalnum er um 30 sentí­metrar, en eins og Veð­ur­stofan greinir frá er „svæðið enn að síga og dal­ur­inn að víkka“.

Sprungur sem liggja gegnum þveran og endi­langan bæinn úr norðnorð­austri til suðsuð­vest­urs eru mörk þessa sigdals og ann­ars sigdals sem mynd­að­ist 10. nóv­em­ber, þegar kviku­gangur braut sér leið undir bæinn og hann var síðan rýmdur að kvöldi. 

Nýtt kort frá Veð­ur­stof­unniNýja hraunið er grá­litað og nýju gossprung­urnar tvær sýndar með svartri línu. Mörk nýs sigdals liggja við Efrahóp, þar sem hrauntungan rann inn í bæinn um helg­ina og lagði í rúst þrjú ein­býl­is­hús.

Sá sigdalur var um tveggja kíló­metra breiður og mun dýpri en þessi sem nú er í myndun, eða mest um 1,3 metrar að dýpt. Veð­ur­stofan varar við aðstæðum í bænum vegna sprung­anna í til­kynn­ingu nú undir kvöld:

„Innan þessa nýja sigdals var áður búið að kort­leggja sprungur sem höfðu mynd­ast og voru sýni­legar á yfir­borði. Þær sprungur hafa stækkað og nýjar mynd­ast. Hætta í tengslum við sprungur og að jarð­vegur hrynji ofan í þær hefur því auk­ist í aust­ur­hluta Grinda­víkur frá því sem áður var.“

Þá er lík­legt að enn sé að hlað­ast í nýtt eld­gos á svæð­inu. „Kviku­söfnun heldur áfram undir Svarts­engi með svip­uðum hraða og fyrir tvö síð­ustu gos. Þetta er nið­ur­staða sam­ráðs­fundar vís­inda­manna sem hald­inn var í morgun. Líkt og í gos­inu 18. des­em­ber hljóp kvika frá söfn­un­ar­staðnum undir Svarts­engi, til aust­urs og mynd­aði kviku­gang sem teygir sig frá Stóra Skógs­felli og suður undir Grinda­vík,“ segir í til­kynn­ingu Veð­ur­stof­unnar.

Með­fylgj­andi myndir sýna aðstæður í Grinda­vík eftir að sigdal­ur­inn tók að mynd­ast.

Nýja hrauniðVestari mörk sigdals­ins liggja undir hrauntung­unni sem braust inn í Efrahóp.
Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár