Vildi að húsið sitt hefði brunnið

Til­finn­ing­ar­þrung­inn íbúa­fundur fyrir Grind­vík­inga hefur farið fram í Laug­ar­dals­höll í kvöld.

Mikill hiti var í Grindvíkingum
Mikill hiti var í Grind­vík­ingum Sem sóttu íbúa­fund­inn í dag. Margir kröfðu ráð­herra um skýr­ari svör um ráð­staf­anir stjórn­valda Mynd: Golli

Íbúa­fundur Grind­vík­inga hófst seinni part­inn í dag og eftir að fram­sögu­menn frá stjórn­völdum og almanna­vörnum höfðu lokið sínum erindum tóku þau við spurn­ingum úr sal. Mikill hiti var í Grind­vík­ingum sem spurðu margir ráð­herra sem sátu fyrir svörum um vænt­an­legar aðgerðir stjórn­valda.

Margir fund­ar­gestir lýstu óánægju með svör ráð­herra, sögðu svör þeirra ómark­viss og óljós. Þá krefj­ast margir taf­ar­lausra svara um það hvort að ríkið muni greiða íbú­ana út úr sínum hús­næði.

Í einni spurn­ingu úr sal vakti Bryndís Gunn­laugs­dóttir, íbúi í Norð­ur­hópi í Grinda­vík, athygli þegar hún sagði að erf­ið­asti dag­ur­inn í lífi hennar hafi verið sá dagur þegar eld­gos­inu lauk og hún sá að húsið hennar var ekki brunnið.

„Vegna þess að ef húsið mitt hefði brunnið, hefði ég fengið fjár­hags­legt sjálf­stæði, ég hefði fengið vissu og ég hefði getað byggt upp nýtt heim­ili og þessi snara sem er utan um mig væri farin,“ sagði Bryndís og kjöl­farið stóðu allir upp í salnum og klöpp­uðu fyrir henni. 

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Þarf ekki að flytja inn "viðlagasjóðshús" eins og raðhúsin í Mosfellsbæ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár