Þessi grein birtist fyrir rúmlega 4 mánuðum.

Lífið er of stutt fyrir vont kaffi

Á Stöðv­ar­firði reka þau Lukasz Stencel og Vala Stef­áns­dótt­ir kaffi­brennslu. Vala seg­ir að lyk­ill­inn að henni sé að vita hvað mað­ur er að gera og er sann­færð um að Lukasz sé fær­ast­ur allra á Ís­landi er kem­ur að því að rista kaffi.

Lífið er of stutt fyrir vont kaffi
Bragð ekki bruni „Við erum svo vön að drekka kaffi sem er dökkt og brennt, að maður finnur meira bragðið af brunanum en ekki af náttúrulega bragðinu af kaffinu,“ segir Vala Stefánsdóttir. Mynd: ÚR VÖR

Það er óhætt að segja að fólkið sem stendur að baki kaffibrennslunni Kvörn hafi frá upphafi farið sínar leiðir er kemur að kaffibrennslu og sölu á kaffi. Það eru þau Lukasz Stencel og Vala Stefánsdóttir sem reka Kvörn og þau eru sammála um að lífið sé of stutt fyrir vont kaffi. Þau Lukasz og Vala kynntust kaffi á ólíkan hátt, Lukasz er pólskur og afi hans var lestarstöðvarstjóri þar í landi. Hann kom heim með poka af kaffibaunum sem þau ristuðu sjálf og smakkaði Lukasz sinn fyrsta kaffibolla þegar hann var 13 ára. Vala kynntist kaffi vel þegar hún bjó í London, hún vann þar á kaffihúsi sem fylgdi mjög ströngum reglum, starfsmönnum var ekki leyft að gera espresso fyrr en eftir ársþjálfun. Sameiginleg vinkona þeirra kynnti þau svo fyrir hvort öðru og síðan þá hafa leiðir þeirra legið saman í gegnum kaffið.

Kaffibrennslan Kvörn er staðsett á Stöðvarfirði, nánar tiltekið í hluta af Sköpunarmiðstöðinni þar. Það á vel við að brennslan sé þar til húsa, því Lukasz var einn af nokkrum sem keyptu gamla frystihúsið og gerðu úr því Sköpunarmiðstöðina fyrir 11 árum síðan en til stóð að rífa húsnæðið. Í dag eru aðrir aðilar sem reka ýmsa starfsemi þar og leigir Lukasz þar aðstöðu til að rista kaffi, en hann flutti aftur austur fyrir tveimur árum síðan. 

„Bestur á landinu að rista kaffi“

Vala segir að lykillinn er kemur að kaffibrennslu sé að vita hvað maður sé að gera, þekkja vöruna og eiginleika hennar og hún vill meina að Lukasz sé færastur á Íslandi er kemur að því að rista kaffi. 

„Já, ég vil meina að Lukasz sé bestur á landinu í að rista kaffi. Hann hefur líka lært mikið af því að vinna á litlar vélar oft og tíðum, sem rista lítið magn og hefur hann fengið góða tilfinningu fyrir kaffibaunum með þeirri aðferð. Til að byrja með hafði Lukasz ekki kaffibrennsluofn, en hann tók sig til og smíðaði einn slíkan, enda handlaginn með eindæmum. Þú þarft hita og þarft að hafa hreyfingu á þessu, og hann var með skál úr djúpsteikingarpotti, var búinn að setja borvél einhvers staðar, var svo með gamlan plötuspilara til að skálin snerist og líka með tvær hitabyssur fyrir ofan. Þannig byrjaði Kvörn, Lukasz að græja eitthvað svona!“ segir Vala og hlær og Lukasz bætir við að græjan hafi dugað í tvær brennslur en svo ekki meira. Eftir það breytti hann gamalli brauðvél í brennsluofn og það virkaði betur að hans sögn.

„Já, ég vil meina að Lukasz sé bestur á landinu í að rista kaffi.“
Vala Stefánsdóttir
annar eigenda Kvarnar.

Vala og Lukasz segja að Kvörn hafi verið frábrugðin flestum öðrum kaffibrennslum frá byrjun. Á meðan aðrir eru oftast með sama kaffið í hillunum allt árið, kaupa þau inn kaffi víðs vegar að sem dugar næstu þrjá til fjóra mánuðina. Svo þegar lagerinn fer að minnka þá kaupa þau inn ferskar vörur og eru því oft með ferskari vörur en aðrir.

Lukasz grípur orðið og segir að sú góða þróun hafi átt sér stað á undanförnum árum að Íslendingar séu farnir að vita meira um kaffi og gera meiri kröfur en áður. 

Kaffi frá KvörnKaffibrennslan Kvörn er staðsett á Stöðvarfirði, nánar tiltekið í hluta af Sköpunarmiðstöðinni þar.

„Fólk á Íslandi er að átta sig meira og meira á því að kaffi er meira en bara koffín. Þetta er sama þróun og í bjór og víni í raun og veru, kaffi er aðeins á eftir með þetta, en þetta er allt að koma. Það er við hæfi að bera saman kaffi og vín að mörgu leyti, fólk myndi aldrei drekka vín nema til þess að finna fyrir áhrifum. Bragðið er bara eitthvað sem þú þróar með þér og uppgötvar. Eins með kaffið, þú drykkir það ekki nema út af koffíninu, en svo með því að nota okkar aðferð við að rista kaffið, þá uppgötvar þú ýmislegt fleira.“ segir Lukasz.

Bragðið af kaffinu frekar en brunanum

Hann talar um þeirra aðferð, eitthvað sem þarfnast frekari útskýringar og Vala tekur það að sér. „Mér finnst skemmtilegt að síðustu ár hefur verið þróun í ræktunarlöndunum varðandi hvernig kaffið er ræktað og unnið og það gefur meiri tækifæri til að rista ljóst og draga fram náttúrulega eiginleika baunanna. Við ristum kaffið líka töluvert ljósar heldur en aðrir og náum með því að draga fram náttúrulega sætu, sýrur og berjatóna sem eru í kaffinu. Svo kaupum við líka gæða kaffi, kaffi sem er að megninu til gallalaust. Ef þú værir með gallaða vöru, þá myndir þú ýkja gallann með því að rista ljóst. Til að útskýra þetta betur finnst mér gaman að líkja kaffi við ristað brauð. Ef þú værir með myglað brauð annars vegar og hins vegar nýbakað brauð og þú myndir rista tvær brauðsneiðar af sitt hvoru brauðinu mjög mikið, alveg út í að vera brennt, þá myndir þú varla finna muninn. Það er sama með kaffi, kaffi er ávöxtur í grunninn, ekki brunarúst. Við erum svo vön að drekka kaffi sem er dökkt og brennt, að maður finnur meira bragðið af brunanum en ekki af náttúrulega bragðinu af kaffinu. En ég segi oft, lífið er of stutt fyrir vont kaffi,“ segir Vala að lokum.

Efnið er unnið í samvinnu við Úr Vör.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Öryggisverðir gæta Bjarna – „Nokkuð góðir í að vera ósýnilegir“
2
Fréttir

Ör­ygg­is­verð­ir gæta Bjarna – „Nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir“

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra vill ekki kalla þá líf­verði, ör­ygg­is­verð­ina sem fylgja hon­um hvert fót­mál. „Þeir eru nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir þannig að ég geti sinnt mín­um störf­um,“ seg­ir hann. Áhættumat vegna ör­ygg­is ráð­herra rík­is­stjórn­ar Ís­lands er í sí­felldri end­ur­skoð­un, sam­kvæmt embætti rík­is­lög­reglu­stjóra.
Þórður Snær Júlíusson
3
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Er það að gefa að minnsta kosti hálf­an millj­arð góð með­ferð op­in­bers fjár?

Fyrr­ver­andi rík­is­lög­reglu­stjóri með sterk flokk­spóli­tísk tengsl tók ákvörð­un um að gera vel við nána sam­starfs­menn sína rétt áð­ur en þeir fóru á eft­ir­laun og rétt áð­ur en hann þurfti að semja um starfs­lok. Kostn­að­ur­inn við þessa ákvörð­un er að minnsta kosti rúm­lega 500 millj­ón­ir króna og skatt­greið­end­ur bera hann. Tveir nú­ver­andi ráð­herr­ar voru kolrang­stæð­ir í yf­ir­lýs­ing­um sín­um um mál­ið að mati Hæsta­rétt­ar og nú­ver­andi dóms­mála­ráð­herra get­ur ekki feng­ið sig til að biðja um rann­sókn á því.
Grátrana sást á Vestfjörðum
4
Fréttir

Grátr­ana sást á Vest­fjörð­um

Grátr­ana sást á túni vest­ur í Djúpi á Vest­fjörð­um. Um er ræða sjald­séð­an flæk­ings­fugl og þyk­ir það tíðund­um sæta að hann hafi sést á þess­um slóð­um en hing­að til hafa þeir að­eins fund­ist á Aust­ur­landi og á Norð-Aust­ur­landi. Fugl­inn varð á vegi hjón­anna Kristjáns Sig­ur­jóns­son­ar og Áslaug­ar Ótt­ars­dótt­ur sem náðu af smella af nokkr­um mynd­um af trön­unni áð­ur en hún flaug á brott.
Ójöfnuður kemur okkur öllum við
10
Viðtal

Ójöfn­uð­ur kem­ur okk­ur öll­um við

Alma Möller land­lækn­ir seg­ir að stjórn­völd og sam­fé­lag­ið allt þurfi að horf­ast í augu við að hér ríki ójöfn­uð­ur í heilsu. Rann­sókn­ir sýna að lífs­gæði og lífs­lík­ur þeirra sem búa við efna­hags­leg­an skort eru minni en þeirra sem ná vel end­um sam­an. Alma seg­ir mik­il­væg­ast að hlúa að börn­um sem al­ist upp í fá­tækt. „Því ef fólk fær vont start í líf­inu þá á það sér kannski ekki við­reisn­ar von.“

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
2
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Skuldir á hvern íbúa í Garðabæ og Hafnarfirði nálgast tvær milljónir króna
6
Greining

Skuld­ir á hvern íbúa í Garða­bæ og Hafnar­firði nálg­ast tvær millj­ón­ir króna

Mik­ið er skegg­rætt um fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þeg­ar horft er á skulda­stöðu þess hluta rekst­urs þeirra sem er fjár­magn­að­ur með skatt­tekj­um er stað­an skást í Kópa­vogi og Reykja­vík en versn­ar hrað­ast í Garða­bæ og á Seltjarn­ar­nesi, þar sem veltu­fé frá rekstri var nei­kvætt í fyrra. Hafn­ar­fjörð­ur er eina sveit­ar­fé­lag­ið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem var með veltu­fjár­hlut­fall, sem seg­ir til um getu sveit­ar­fé­lags til að borga skuld­ir sín­ar, um­fram það sem æski­legt er. Heim­ild­in rýndi í árs­reikn­inga sveit­ar­fé­lag­anna.
Öryggisverðir gæta Bjarna – „Nokkuð góðir í að vera ósýnilegir“
8
Fréttir

Ör­ygg­is­verð­ir gæta Bjarna – „Nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir“

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra vill ekki kalla þá líf­verði, ör­ygg­is­verð­ina sem fylgja hon­um hvert fót­mál. „Þeir eru nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir þannig að ég geti sinnt mín­um störf­um,“ seg­ir hann. Áhættumat vegna ör­ygg­is ráð­herra rík­is­stjórn­ar Ís­lands er í sí­felldri end­ur­skoð­un, sam­kvæmt embætti rík­is­lög­reglu­stjóra.
Hvað gerist í huganum þegar við hreyfum okkur?
9
ViðtalHlaupablaðið 2024

Hvað ger­ist í hug­an­um þeg­ar við hreyf­um okk­ur?

„Mögn­uð“ breyt­ing verð­ur á hug­an­um þeg­ar við hreyf­um okk­ur. Hreyf­ing virk­ar eins og þung­lynd­is­lyf á þau sem glíma við vægt eða miðl­ungs þung­lyndi. Endorfín, sem fást við hlaup, hafa áhrif á túlk­un til­finn­inga, deyfa sárs­auka og valda sælu­til­finn­ingu. Steinn B. Gunn­ars­son íþrótta- og lýð­heilsu­fræð­ing­ur veit­ir inn­sýn í áhrif­in og ráð til að fá hug­ann til að halda sig við hreyf­ing­una.
Katrín eini matvælaráðherra VG sem tekur ekki afstöðu gegn gjafakvótanum í laxeldinu
10
FréttirLaxeldi

Katrín eini mat­væla­ráð­herra VG sem tek­ur ekki af­stöðu gegn gjafa­kvót­an­um í lax­eld­inu

Bæði Bjarkey Gunn­ars­dótt­ir og Svandís Svavars­dótt­ir hafa lýst því yf­ir að þær vilji tíma­binda rekstr­ar­leyf­in í sjókvía­eld­inu. Eini mat­væla­ráð­herra VG á síð­asta og yf­ir­stand­andi kjör­tíma­bili sem ekki hef­ur gert slíkt hið sama er Katrín Jak­obs­dótt­ir for­setafram­bjóð­andi. Hún vann tals­vert að frum­varp­inu, fund­aði með hag­að­il­um um það og lét breyta ein­staka grein­um þess.

Mest lesið í mánuðinum

Skólastjórinn hættir eftir áralanga óánægju foreldra
1
Fréttir

Skóla­stjór­inn hætt­ir eft­ir ára­langa óánægju for­eldra

Móð­ir á Kirkju­bæj­arklaustri ætl­ar að flytja með börn­in sín úr bæn­um þar sem hún tel­ur ástand­ið í Kirkju­bæj­ar­skóla óvið­un­andi. Son­ur henn­ar hef­ur lít­ið mætt í skól­ann í á ann­að ár eft­ir at­vik í skól­an­um sem for­eldr­arn­ir kærðu til lög­reglu. Mál­ið var lát­ið nið­ur falla. Skóla­stjór­inn er nú á för­um en sveit­ar­stjór­inn seg­ir það „eng­um ein­um að kenna þeg­ar tveir deila“.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
3
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
6
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
10
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár