Allt að 35 prósent arðbærara að eiga heilsugæslustöð á landsbyggðinni

Fyrir­tækið Heilsu­vernd hyggst opna einka­rekna heilsu­gæslustöð á Akureyri. Forstjóri Heilbrigðis­stofnunar Norður­lands, Jón Helgi Björnsson, hefur áhyggjur af því að slík stöð grafi undan rekstri opinberrar heilbrigðis­þjónustu í dreifðari byggðum. Hann segir að hingað til hafi rekstrar­afgangur frá þjónustunni á Akureyri verið notaður til að halda úti heilbrigðis­þjónustu í þorpum eins og Þórshöfn og Kópaskeri.

Fyrsta einkarekna heilsugæslustöðin utan suðvesturhornsins
Fyrsta einka­rekna heilsu­gæslu­stöðin utan suð­vest­ur­horns­ins Fyr­ir­tæki Teits Guð­munds­sonar læknis, Heilsu­vernd, ráð­gerir að opna einka­rekna heilsu­gæslu­stöð á Akureyri. Um væri að ræða fyrstu einka­reknu heilsu­gæslu­stöð­ina á Íslandi utan suð­vest­ur­horns­ins.

Nær tvöfalt arðbærara getur verið að reka einka­rekna heilsu­gæslustöð á lands­byggðinni en á höfuð­borgar­svæðinu. Þetta er staðan eftir að breytingar voru gerðar á fjár­mögnun heilsu­gæslunnar á lands­byggðinni. Svokallað heilsugæsluval var innleitt í fjár­mögnunar­líkan heilsu­gæslunnar utan höfuð­borgar­svæðisins. Þessar sömu breytingar voru gerðar innan heilsu­gæslu höfuð­borgar­svæðisins í tíð Kristjáns Þórs Júlíussonar í heilbrigðis­ráðuneytinu árið 2015.

„Ég hef áhyggjur af því að við missum fjár­muni út og að við munum þurfa að hag­ræða á þessum minni stöðum.“
Jón Helgi Björns­son,
for­stjóri Heil­brigð­is­stofn­unar Norð­ur­lands

Með heilsugæslu­valinu, sem byggir á forskrift frá Svíþjóð sem innleidd var þar árið 2009, fylgir tiltekið fjármagn hverjum sjúkra­tryggðum einstaklingi til þeirrar heilsgæslustöðvar sem hann velur að skipta við, hvort svo sem hún er einka­rekin eða ekki. Í þessu kerfi fylgir meira fjármagn, 25 til 35 prósent, hverjum sjúkra­tryggðum einstaklingi sem búsettur er utan höfuð­borgar­svæðisins. Þá er …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SH
    Sigurður Halldórsson skrifaði
    Ömurlegt að láta einkaaðila GRÆÐA á því sem er auðveldast og hagkvæmast í rekstri og láta það sem dýrast er og erfiðast að reka sitja eftir hjá ríkinu!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkra­trygginga með einka­rekstri í heilbrigðis­kerfinu

Willum Þór Þórsson heilbrigðis­ráðherra hefur staðið fyrir stór­aukinni einka­væðingu í heilbrigðis­kerfinu frá því að hann tók við starfinu. Eftirlit með þeim fjármunum sem fara frá ríkinu til einka­aðila hefur samhliða því ekki verið aukið. Willum Þór svaraði spurningum um meðal annars á Alþingi um miðjan mánuðinn.
Fréttir

Hjúkrunar­heimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu

Frá árinu 2009 hefur hjúkrunar­heimilið Sóltún fengið tæplega 20 milljarða króna frá íslenskra ríkinu. Um 90 prósent af tekjum Sóltúns koma frá ríkinu. Eigendurnir hafa tekið á þriðja milljarð króna út úr rekstrinum með því að selja fasteignir og lóðir og lækka hlutafé fyrir­tækisins. Allur reksturinn byggir hins vegar á umdeildum samningi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár