Meiri orkuframleiðsla ekki forsenda orkuöryggis almennings

Hættan á að almenn­ingur verði undir í sam­keppni um raf­orku verður til staðar óháð fjölda virkj­ana hverju sinni, segir Halla Hrund Loga­dóttir orku­mála­stjóri. Samtök iðn­að­ar­ins ali á sundr­ung sem geti vart talist gott vega­nesti fyrir frek­ari upp­bygg­ingu orku­mála hér á landi.

Meiri orkuframleiðsla ekki forsenda orkuöryggis almennings
Upp úr skot­gröf­unum Halla Hrund Loga­dóttir orku­mála­ráð­herra segir að til að kom­ast upp úr þeim skot­gröfum sem orku­málin séu í þurfi metnað í sam­skikptum og úthald í verk­efni í stað upp­hrópana. Mynd: Anton Brink/Orkustofnun

Umræðan um raf­orku­ör­yggi fer stundum í þær öfgar að engin raf­orka sé til í land­inu, skrifar Halla Hrund Loga­dóttir orku­mála­stjóri í aðsendri grein sem birt­ist á Vísi á nýársmorgun. „Það rétta er að stór hluti orkunnar er bund­inn í samn­ingum fyr­ir­tækja á milli sem stjórn­völd hlut­ast ekki til um. Það að tryggja öryggi raf­orku til almenn­ings gengur því út á að tryggja að almenn­ingur sitji ekki uppi með Svarta Pétur, sé tekið af sneið­inni hans án nokk­urra varna.“

Mikil umræða hefur verið í sam­fé­lag­inu um orku­mál að und­an­förnu. Í henni hafa verið notuð orð á borð við „tafa­póli­tík“ þegar komi að því að reisa nýjar virkj­anir og því haldið fram að með þeim hætti sé orku­ör­yggi almenn­ings stefnt í hættu. Ekki sé næg orka til að upp­fylla óskir allra og stórnot­endur hafi seilst inn á heild­sölu­markað raf­orku og þar með í þá orku sem venju­leg fyr­ir­tæki og heim­ili lands­ins nota. 

„Meiri orku­fram­leiðsla, eða ný köku­sneið til sölu, er ekki for­senda orku­ör­yggis almenn­ings þó að hún geti skapað svig­rúm og tæki­færi því sneiðin getur verið seld annað enda er samn­ings­staða og bol­magn stórnot­enda og almenn­ings af ólíkum toga,“ bendir orku­mála­stjóri hins vegar á í grein sinni.

Hún rifjar upp að í  kjöl­far orku­krís­unnar í Evrópu og auk­innar áherslu heims­ins á grænni orku hafi tíma­bil umfram­eft­ir­spurnar eftir end­ur­nýj­an­legri orku hér á landi gengið í garð. Í slíku umhverfi sé stöðug hætta á að heim­ili og venju­leg fyr­ir­tæki verði undir í sam­keppni við stærri raf­orku­not­endur. „Ólíkt því sem víða þekk­ist eru stórir orku­kaup­endur, svo­kall­aðir stórnot­endur, ráð­andi í raf­orku­notk­un­inni. Þeir nota um 80 pró­sent af raf­orkunni á Íslandi, önnur fyr­ir­tæki um 15 pró­sent og heim­ili um 5 pró­sent,“ skrifar Halla Hrund. „Ef hugsað er um þessi hlut­föll í köku­sneiðum má í raun segja að áhættan á orku­skorti hjá almenn­ingi sé sú að stærri orku­not­endur ásælist köku­sneiðar heim­ila og venju­legra fyr­ir­tækja.“

Innleiða þarf öryggisventla

Fram til árs­ins 2003 bar Lands­virkjun laga­lega ábyrgð á orku­ör­yggi almenn­ings en sú skylda var afnumin með inn­leið­ingu raf­orku­til­skip­ana Evr­ópu­sam­bands­ins í íslensk lög og er í dag ekki á hendi neins. Á ábyrgð­ina reynir hins vegar fyrst og fremst þegar umfram­eft­ir­spurn er eftir orku líkt og nú er. Þá geti skap­ast hvati hjá ólíkum orku­fyr­ir­tækjum til að selja meira til stórra orku­not­enda á kostnað almenn­ings þegar eng­inn ber ábyrgð á þeim hópi eða hefur það hlut­verk að bregð­ast við í neyð.

„Í landi eins og Íslandi þar sem orku­fram­leiðsla byggir á auð­lindum nátt­úr­unnar er sér­lega mik­il­vægt að inn­leiða örygg­is­ventla til að vernda almenn­ing þar sem orku­fram­leiðsla sveifl­ast eftir tíð­ar­fari hverju sinni,“ heldur Halla Hrund áfram. „Hætta á að almenn­ingur verði undir í sam­keppni um raf­orku verður til staðar óháð fjölda virkj­ana hverju sinni og þá sér í lagi ef nýir stærri orku­kaup­endur bjóða betur og tryggja sér þannig mikið magn raf­orku til lengri tíma.“

Nýtt frumvarp um raforkuöryggi

Til að bæta raf­orku­ör­yggi almenn­ings lagði atvinnu­vega­nefnd fyrir hönd ráð­herra orku­mála fram frum­varp til Alþingis í lok nýlið­ins árs. „Á meðan að háværir hags­muna­hópar tók­ust á af hörku um málið var lyk­il­að­il­inn sem frum­varpið snýst um, almenn­ingur, hins vegar hljóð­látur við vinnu og at hvers­dags­leik­ans að und­ir­búa komu jóla­há­tíðar,“ skrifar orku­mála­stjóri. „Fólk mætti ekki á þing­pall­ana heldur treysti því að allir ynnu saman að far­sælli lausn.“

Sama megi segja um þann mikla fjölda venju­legra fyr­ir­tækja eða rekstr­ar­ein­inga sem frum­varp­inu var ætlað að vernda fyrir áhrifum orku­skorts og til­heyr­andi verð­hækk­unum. Hér seg­ist Halla Hrund til dæmis eiga við fjöl­breytt fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu og bændur um land allt, líf­tækni­fyr­ir­tæki, versl­anir Kringl­unnar og Gler­ár­torgs og svo mætti lengi telja.

Frumvarp nefnd­ar­innar fól í sér heim­ild til ákvörð­unar um við­brögð þar sem orku í magni á hnífsoddi af orku­fram­leiðslu lands­ins væri tíma­bundið beint til almenn­ings þegar gögn og grein­ingar frá aðilum á orku­mark­aði sýndu fram á slíka þörf – og ein­göngu sem tíma­bundið neyð­ar­við­bragð. „Hún fól því langt í frá í sér handa­hófs­kennda hand­stýr­ingu á mark­aðnum með inn­gripum í núver­andi lang­tíma­samn­inga stórnot­enda eins og látið var í skína.“

Að mati Höllu Hrundar er þessi útfærsla þó ekki yfir gagn­rýni hafin. Rými sé því fyrir umbætur en mik­il­væg­ast sé, óháð leiðum, að bregð­ast við nú í byrjun árs með laga­breyt­ingu fyrir almenn­ing.

„Opinber umræða og mál­efna­leg gagn­rýni er mik­il­væg fyrir þróun laga- og reglu­verks og eng­inn í sam­fé­lag­inu okkar er yfir gagn­rýni haf­inn. Í hags­muna­bar­áttu getur hins vegar verið fín lína á milli þess að fara í mann­inn og bolt­ann.“ Tiltekur hún sér­stak­lega Samtök iðn­að­ar­ins í þessu sam­bandi sem hafi hafnað frum­varpi með öllu og gagn­rýndu meðal ann­ars sér­stak­lega ummæli orku­mála­stjóra um að „almenn­ingur fái að njóta raf­orku“.

Til skýr­ingar, skrifar orku­mála­stjóri, er mik­il­vægt að átta sig á að skýrt er kveðið á um for­gang heim­ila umfram aðra hags­muni í Orku­stefnu Íslands og Orku­stofnun hefur laga­lega skyldu til að vera rík­is­stjórn til ráð­gjafar um mál­efni stofn­un­ar­innar svo sem um raf­orku­ör­yggi.

„Þegar meg­in­mark­mið frum­varps­ins er algjör­lega virt að vettugi, líkt og gert var í umsögn Samtaka iðn­að­ar­ins, er ekki aðeins hags­munum heim­il­anna ýtt til hliðar heldur einnig rekstr­ar­hags­munum fjölda venju­legra fyr­ir­tækja í land­inu sem falla undir gild­is­svið laga­breyt­ing­ar­innar,“ skrifar Halla Hrund. „Með afdrátt­ar­lausri synjun á til­gangi frum­varps­ins er sömu­leiðis verið að etja saman almenn­ingi; venju­legum fyr­ir­tækjum og heim­ilum á móti orku­frekum iðn­aði í land­inu. Slíkt er óþarfi enda vel vitað að orku­ör­yggi Íslend­inga í dag er ekki síst afrakstur orku­frekrar iðn­að­ar­upp­bygg­ingar fyrri kyn­slóða.“

Sú hugsun fyr­ir­renn­ara að byggja upp iðnað, en á sama tíma hlúa ætíð um leið að orku­ör­yggi almenn­ings, hafi lagt mik­il­vægan grunn að þeim lífs­gæðum sem við búum við í dag. „Flestum er ljóst að fjöl­breyttur iðn­aður á Íslandi er mik­il­vægur fyrir nútíð og fram­tíð lands­ins. Að stuðla að sundr­ung og skipa í fylk­ingar getur vart talist gott vega­nesti fyrir frek­ari upp­bygg­ingu orku­mála hér á landi.“

70 prósent vindorkunnar fór í orkufrekan iðnað

Nýlegt dæmi um sundr­ung sem geti skap­ast ef almenn­ingi þykir á hags­munum þeirra troðið sé að finna í Noregi. „Þar sner­ist almenn­ingur á móti orku­mál­unum þegar orku­verð til heim­ila hækk­aði upp úr öllu valdi í orku­krís­unni og vernd var ekki til staðar,“ rifjar Halla Hrund upp. Einnig hafi skap­ast miklar deilur um þróun vind­orku í Noregi, meðal ann­ars vegna þess að allt að 70% af raf­orku­fram­leiðslu vind­orku­vera hefur farið í stækkun orku­freks iðn­aðar og almenn­ingur upp­lifi að á honum sé troðið með fölskum lof­orðum um að upp­bygg­ingin myndi bæta orku­ör­yggi hans. „Örygg­is­ventlar sem skapa almenn­ingi skjól draga hins vegar úr líkum á aðstæðum og átökum sem þessum en sam­lyndi og til­lits­semi við íbúa lands­ins hlýtur að vera hags­muna­mál allra.“

Frum­varpið um orku­ör­yggi almenn­ings verður aftur tekið til afgreiðslu nú í byrjun nýs árs og segir Halla Hrund að þá gef­ist tæki­færi til að finna sam­eig­in­legan flöt á skrefi fram á við. „Orku­málin hafa allt of lengi verið föst í skot­gröfum. Til að kom­ast upp úr þeim og leysa mál þarf nýjan tón og metnað í sam­skiptum og úthald í verk­efnin í stað upp­hrópana.“

Kjósa
65
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • K Hulda Guðmundsdóttir skrifaði
    Frábært að hafa orkumálastjóra sem ver heimilin og almenning - nú er óskandi að Alþingi geri það sama þegar frumvarpið verður tekið til afgreiðslu. Almenningur ætti að láta í sér heyra!
    3
  • JÞM
    Jóhann Þór Magnússon skrifaði
    Algjör negla hjá Höllu Hrund. Þvælan í Samtökum Iðnaðarins og ýmsum í orkugeiranum varðandi glórulausa tvöföldun orkuframleiðslu á örskömmum tíma er það heimskulegasta sem ég hef séð á tæpri hálfri öld við störf í orkubransanum hérlendis og erlendis. Stjórnlaus frekjan og staurblind hagsmunagæslan er svo önnur mjög ógeðfeld hlið á málflutningi SI og ýmissa í orkugeiranum.
    15
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár