Spara 346 milljónir vegna minni hækkunar á fiskeldisgjaldi

Á loka­metrum þing­starfa ákváðu stjórn­ar­liðar í efna­hags- og við­skipta­nefnd að milda hækkun á fisk­eld­is­gjaldi sem leggst á íslensk sjó­kvía­eld­is­fyr­ir­tæki. Þetta er annað árið í röð sem slíkt ger­ist.

Spara 346 milljónir vegna minni hækkunar á fiskeldisgjaldi
Vildu fara hægar í sak­irnar Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar, sem Teitur Björn Ein­ars­son er for­maður yfir, mælti með lægri gjald­töku en kveðið var á um í fjar­laga­frum­varpi næsta árs. Mynd: Heimildin / Davíð Þór


Sú ákvörðun meiri­hluta efna­hags- og við­skipta­nefndar að lækka fisk­eld­is­gjald frá því sem áður var áformað sparar íslenskum sjó­kvía­eld­is­fyr­ir­tækjum 346 millj­ónir króna á næsta ári. Breyt­ingin felst í því að í stað þess að hækka fisk­eld­is­gjaldið úr 3,5 í fimm pró­sent, líkt og lagt var til, á hvert slátrað kíló af eld­is­fiski verður það hækkað í 4,3 pró­sent.

Þetta kemur fram í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta fjár­laga­nefndar vegna fjár­laga­frum­varps næsta árs sem var afgreitt laug­ar­dag­inn 16. des­em­ber.

Þeir sem stóðu að breyt­ing­ar­til­lög­unni sem leiddi af sér þessa lækkun á fisk­eld­is­gjald­inu voru þing­menn­irnir Teitur Björn Ein­ars­son og Vil­hjálmur Árnason úr Sjálf­stæð­is­flokki, Ágúst Bjarni Garð­ars­son og Jóhann Friðrik Frið­riks­son úr Fram­sókn­ar­flokki og Steinunn Þóra Árna­dóttir, þing­maður Vinstri grænna. 

Að uppistöðu í eigu Norðmanna

Þetta er í annað sinn á einu ári sem meiri­hluti nefnd­ar­innar grípur í taumana rétt fyrir þing­lok og mildar þær álögur sem til stóð að leggja á sjó­kvía­eld­is­fyr­ir­tæki. …

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Teitur Björn er beintengdur Einari Kristni, helsta lobbýista laxeldisins. Hafa lengi verið saman á lista fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Einar Kristinn er hér að vinna fyrir kaupinu sínu, sparar þeim á fjórða hundrað milljóna.
    2
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Er ekki fallega hugsað að vera miskunnsamur við menn, sem missa drjúgan hluta tekna sinna út um rifu á neti, og stefna í leiðinni villtum laxastofnum landsins í voða?
    1
  • Sigurður Sigurðsson skrifaði
    Hneyksli og undirlægjuháttur. Kannsk einhver spostla í vasann líka? Þvílíkt drasl sem kenst á þing. Siðlaust pakk!!!
    2
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    ☻g hefur engin innt neina úr nefndinni um ástæðu og eða um réttlætingu þeirra á ákvörðun meirihluta efnahags- og viðskiptanefndar um þennan gjafagjörning uppá 700 milljónir til auðrónana á tvemur árum ?
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár