Hjól verði niðurgreidd með skattaafslætti í eitt ár enn

Fjár­laga­nefnd hefur ákveðið að leggja til að afsláttur af virð­is­auka­skatti fyrir hjól verði áfram í gildi út næsta ár, en áður stóð til að hætta öllum nið­ur­greiðslum ann­arra öku­tækja en hrein­orku­bíla. Fjár­laga­nefnd segir að um sé að ræða umhverf­is­væn far­ar­tæki sem séu til þess fallin að draga úr bíla­um­ferð og fjölga í hópi þeirra sem ferð­ast með vist­vænum hætti.

Hjól verði niðurgreidd með skattaafslætti í eitt ár enn
Hjól Rafhjól hafa selst mjög vel á und­an­förnum árum og breytt því hvernig margir fara ferða sinna, enda eyða þau sumum vankönt­unum við hjól­reiðar í íslensku veð­ur­fari. Áfram verður hægt að fá skatt­afslátt af hjól­unum, sam­kvæmt breyt­ingu fjár­laga­nefndar. Mynd: Golli

Í fjár­laga­frum­varpi kom­andi árs, eins og það kom fyrir þingið frá fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, var lagt upp með að hætta sér­stökum skattaí­viln­unum vegna reið­hjóla og raf- eða vetn­is­drif­inna hjóla og bif­hjóla. Það hefði haft þær afleið­ingar að reið­hjól og raf­hjól hefðu hækkað tölu­vert í verði um ára­mót.

Þessu hefur fjár­laga­nefnd hins vegar kosið að breyta, sam­kvæmt því sem fram kemur í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta nefnd­ar­innar sem birt var á vef Alþingis í gær. Þar segir að nefndin mælist til þess að virð­is­auka­skatt­sí­vilnun vegna hjól­anna verði fram­lengd um eitt ár. 

Ástæðan sem meiri­hlut­inn nefnir fyrir þessu er sú að um sé að ræða umhverf­is­væn far­ar­tæki sem séu til þess fallin að draga úr bíla­um­ferð og fjölga í hópi þeirra sem ferð­ast með vist­vænum hætti. 

Var ekki á áætlun hjá ríkisstjórninni

Umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráðu­neytið hafði áður svarað fyr­ir­spurn frá mbl.is um þetta efni með þeim hætti að ekki …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár