Myndir sauðfjárbónda slógu í gegn fyrir jólin

Síðustu 10 ár hefur Ragnar Þor­steins­son myndað lömb og kindur fyrir Lamba­daga­talið. Ragnar nálg­ast dýrin af virð­ingu enda segir hann þau miklar vits­muna­verur og það er hans mark­mið að breiða út feg­urð og fjöl­breytni íslensku sauð­kind­ar­innar.

Myndir sauðfjárbónda slógu í gegn fyrir jólin
Lömb Þema daga­tals­ins í ár eru mæður og lömb þeirra í bland við myndir af „nýlega fæddum lömbum í sínu nátt­úru­lega umhverfi.“ Mynd: Ragnar Þorsteinsson

„Þetta eru heims­ins mestu krútt,“ segir sauð­fjár­bónd­inn Ragnar Þor­steins­son um kind­urnar og lömbin sem prýða Lamba­daga­tal árs­ins 2024. „Þau bræða mann svo og lífga mann upp þegar maður er orð­inn dauð­upp­gef­inn í sauð­burði og þessu amstri öllu sem fylgir þeim tíma.“

Ragnar hóf útgáfu Lamba­daga­tals­ins fyrir 10 árum síðan. Meg­in­mark­mið Ragnars með útgáf­unni er að breiða út feg­urð og fjöl­breytni íslensku sauð­kind­ar­innar. 

Ragnar Þor­steins­sonBýr til lamba­daga­töl á hverju ári og njóta þau mik­illa vin­sælda.

Mikil eftirspurn

„Mig lang­aði bæði að fá ein­hverja útrás fyrir ljós­myndun og list­sköpun, og ekki yrði það nú verra ef það væri hægt að fá fyrir kostn­aði í það eða slíkt. Þannig að ég bara stökk út í djúpu laug­ina eins og maður gerir stundum. Í stuttu máli sagt komst ég til lands,“ segir Ragnar en hann myndar lömbin þegar þau eru enn ómörkuð og ómerkt.

Hann tekur mynd­irnar sjálfur, …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina Fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár