Ragnar Þór Ingólfsson: „Mótmælin beindust að stjórnendum Gildis, ekki starfsfólki“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son segir ásakarn­inar í bréfi, sem stjórn­endur líf­eyr­is­sjóðs­ins Gildi sendu til stjórnar VR, koma sér á óvart. Hann seg­ist sjálfur ekki hafa haft sig mikið frammi á mót­mæla­fund­inum sem hafi farið frið­sam­lega fram. Þá vísar ásök­unum um árásir gegn eigin félags­mönnum á bug. Mótmælin hafi ekki beinst að starfs­fólki Gildis, heldur stjórn­endum sjóðs­ins.

Ragnar Þór Ingólfsson: „Mótmælin beindust að stjórnendum Gildis, ekki starfsfólki“
Ragna Þór Ing­ólfs­son for­maður VR vísar ásök­unum stjórn­enda Gildis á bug. Mynd: Bára Huld Beck

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður stétt­ar­fé­lags­ins VR, hafnar full­yrð­ingum um fram­göngu og hegðun hans á mót­mæla­fundi sem átti sér stað í húsa­kynnum Gildis líf­eyr­is­sjóðs, sem birt­ust í kvört­un­ar­bréfi sem Gildi sendi stjórn VR. Í sam­tali við Heim­ild­ina segir Ragnar engum hafi stafað ógn eða hætt af þeim sem voru að mót­mæla. Mótmælin hafi farið „mjög frið­sam­lega fram“ sem aðrir sem voru við­staddir mót­mælin geti stað­fest. 

„Þarna voru börn, eldra fólk, Grind­vík­ingar sem eru í mik­illi óvissu og í skelfi­legri stöðu. Þarna voru for­menn ann­arra verka­lýðs­fé­laga eins og verka­lýðs­fé­lag Grinda­víkur og sömu­leiðis vél­stjóra og sjó­manna­fé­lag Grinda­víkur,“ segir Ragnar Þór.

Til­gangur mót­mæl­anna var að þrýsta á líf­eyr­is­sjóð­inn að koma betur til móts við íbúa Grinda­víkur sem eiga hús­næð­is­lán hjá sjóðnum.  

Ragnar segir yfir­lýs­ing­una um fram­ferði sitt koma sér á gríð­ar­lega á óvart og sig hafa farið á farið á „fjölda funda með fólki úr póli­tík­inni þar sem skoð­ana­skipti eru mun hvass­ari og harka­legri heldur en þau sem fóru þarna fram“.

Þá tekur hann fram sjálfur hafi hann nán­ast ekk­ert tekið til máls. Fundinum hafi að mestu verið stýrt af Herði Guð­brands­syni, for­manni Verka­lýðs­fé­lags Grinda­víkur og hafi sam­skiptin nán­ast ein­göngu farið fram við Árna Guð­munds­son. 

Gildi Líf­eyr­is­sjóður sendi fyrir stuttu bréf til stjórnar stétt­ar­fé­lags­ins VR þar sem kvartað er undan fram­göngu Ragnars á mót­mæla­fund­inum. Í bréf­inu er hann sagður hafa verið einn helsti hvata­maður þess að mót­mælin færu ekki frið­sam­lega fram. 

Þá kemur einnig fram í kvörtun Gildis að sjóð­ur­inn hafi virkjað svo­kall­aða EKKO-áætlun sem sé notuð til að bregð­ast við, og koma í veg fyrir, ofbeldi og áreiti á vinnu­staðnum. Í bréf­inu er því haldið fram að mörgum starfs­mönnum sjóðs­ins hafi þótt mót­mælin ógn­andi og fram­ferði mót­mæl­anda, þar á meðal for­manns VR, verið ígildi and­legs ofbeldis. 

Til­gangur bréfs­ins hafi einnig verið að vekja athygli á því að lang­flest starfs­fólk Gildis séu félags­menn VR og þar með hljóti það skjóta skökku við að for­maður stétt­ar­fé­lags­ins beiti sér gegn eigin félags­mönnum með slíkum hætti.

Spurður út þetta atriði bréfs­ins seg­ist Ragnar hafna því alfarið. „Mótmælin beindust ekki að starfs­fólki Gildis, hvort sem það voru félags­menn í VR eða ekki. Þessi mót­mæli beindust gegn stjórn­endum sjóð­anna sem hafa tekið afstöðu með því að nýta sér ákveðna óvissu sem er um heim­ild líf­eyr­is­sjóð­anna til að veita þessum þrönga hópi ívilnun á þessum erf­iðu tímum.“

Stéttarfélögin hafna ásökunum stjórnenda Gildis 

Fjöl­margir aðilar sem komu að mót­mæl­unum hafa stigið fram og mót­mælt yfir­lýs­ing­unum í bréfi Gildis og full­yrð­ingum um að Ragnar Þór Ing­ólfs­son hafi hvatt til þess að mót­mælin færu fram ófrið­sam­legum hætti. Í yfir­lýs­ingu Harðar Guð­brands­sonar vísar hann þeim ávirð­ingum, að for­mað­ur­inn hafi farið fram með offorsi, til föð­ur­hús­anna og segir Ragnar hafa komið fram á „mál­efna­legan og kurt­eisan hátt“.

Í nýlegri yfir­lýs­ingu stjórn­ar­manna Eflingar, eru ásak­anir fram­kvæmda­stjóra og skrif­stofu­stjóra Gildis gegn Ragnari Þór for­dæmdar. Lýs­ing­arnar sem birtar eru í bréfi þeirra séu fullar af ósann­indum róg­burði til þess föllnum að vega að mann­orði Ragnars. Þá túlka stjórna­mernn Eflingar bréfið sem árás á Ragnar, sem sé „um leið árás á okkur, á sjóð­fé­laga frá Grinda­vík og aðra þá sem tóku þátt í umræddum mót­mælum“.

Þingmaður Flokks Fólksins kemur Ragnari til varnar

Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir, vara­for­maður þing­flokks Flokks fólks­ins, sem var við­stödd mót­mælin á skrif­stofu Gildis, hefur einnig tjáð sig um málið í tveimur færslum á Facebook-síðu sinni. Þar hafnar hún frá­sögn­inni og ásök­un­unum komu  fram í bréf­inu frá Gildi. Ekkert ofbeldi hafi átt sér stað og allir hafi haldið ró sinni, þar á meðal Ragnar Þór.  Í færsl­unni varpar hún þeirri spurn­ingu fram hvort það sé „núna orðið „ofbeldi“ að boða til mót­mæla?“

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár