Stafræn fingraför Magnúsar í Kýpurlekanum

Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi banka­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, gaf fyr­ir­mæli um til­færslur á eign­ar­hlut eig­in­konu sinnar í arð­sömum lúx­us­fast­eigna­verk­efnum á Spáni. Stafræn fingraför hans eru í kóð­anum á bak við vef­síður sem aug­lýstu eign­irnar.

Stafræn fingraför Magnúsar í Kýpurlekanum

Upp­bygg­ing lúx­us­fast­eigna á Spáni er meg­in­starf­semi og tekju­lind í aflands­fé­laga­neti Önnu Lísu Sig­ur­jóns­dóttur, Lovísu Maríu Gunn­ars­dóttur og Þórhildi Ein­ars­dóttur, sem birt­ist í Kýp­ur­lek­anum. Konurnar virð­ast eiga fátt sam­eig­in­legt annað en að vera giftar þremur fyrr­ver­andi lyk­il­stjórn­endum Kaup­þings á Íslandi og í Lúx­em­borg. 

„Þetta er leik­völlur millj­óna­mær­inga með strand­klúbbum, ofur­snekkjum sem liggja við höfn og langri línu af börum, klúbbum og hönn­un­ar­versl­unum með­fram vatn­inu.“
af vef­síðu fast­eigna­fé­lags­ins Los Flamin­gos Views

Þrjú spænsk félög, sem Azmidi á í gegnum annað Kýp­ur­fé­lag, Coastal View Capital, virð­ast enn starf­andi. La Cala Views I og II hefur verið steypt saman í eitt og stendur fyrir bygg­ingu nútíma­legra lúx­usvilla í „lok­uðu sam­fé­lagi, nálægt strönd­inni og með frá­bært útsýni yfir hafið“, eins og þær eru kynntar á vef­síðu fast­eigna­fé­lags­ins. „La Cala Views er nýtt þró­un­ar­verk­efni stað­sett á hinu ein­staka og eft­ir­sótta svæði La Cala de Mijas (e. Mijas …

Kjósa
38
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sjá meira

Fjárfestingaklúbbur Kaupþingskvenna
RannsóknLeyndarmál Kýpur

Fjár­fest­inga­klúbbur Kaup­þingskvenna

Eig­in­konur þriggja fyrrum stjórn­enda hins fallna Kaup­þings banka eru umsvifa­miklir fjár­festar í fast­eigna­verk­efnum á Spáni og víðar. Peningar sem geymdir eru í félögum á Tortóla og Kýpur eru not­aðir til að byggja lúxus­í­búðir. Hundruð millj­óna króna hagn­aður hefur orðið til í þessum aflands­fé­lögum. Ein þeirra hefur einnig fjár­fest með hópi Íslend­inga í breskum hjúkr­un­ar­heim­ilum.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Það gefur vel í aðra hönd að vera íslenskur glæpamaður. Þeir eru vel varðir af íslenskum stjórnvöldum. En, sértu vesæll smákrimmi, þá skaltu vara þig, réttarríkið hefur ekkert umburðarlyndi fyrir aulum á götunni.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Leyndarmál Kýpur

Kýpurfélag Lovísu sem tók yfir Tortólaeignir fjárfesti í breskum hjúkrunarheimilum
RannsóknLeyndarmál Kýpur

Kýp­ur­fé­lag Lovísu sem tók yfir Tortóla­eignir fjár­festi í breskum hjúkr­un­ar­heim­ilum

Sama félag og tók yfir Tortóla­eignir Lovísu Maríu Gunn­ars­dóttur, eig­in­konu Magnúsar Guð­munds­sonar, fyrr­ver­andi banka­stjóra Kaup­þings í Lúx­em­borg, slóst í hóp með Baldri Guð­laugs­syni, fyrr­ver­andi ráðu­neyt­is­stjóra, og Annie Mist Þór­is­dóttur Crossfit-stjörnu og keypti ráð­andi hlut í breskum hjúkr­un­ar­heim­ilum.
Tortólasnúningur Hreiðars á Íslandi afhjúpaðist í Danmörku
RannsóknLeyndarmál Kýpur

Tortóla­snún­ingur Hreiðars á Íslandi afhjúpað­ist í Danmörku

Sami maður sá um félag Hreiðars Más Sig­urðs­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra Kaup­þings, sem afhjúpað­ist í Panama­skjöl­unum og fyrir Önnu Lísu Sig­ur­jóns­dóttur, eig­in­konu hans, og tvær aðrar konur sem giftar eru fyrr­ver­andi lyk­il­stjórn­endum bank­ans. Ný gögn sýna hvernig pen­ingar úr aflands­fé­lögum á Tortóla flæddu í gegnum sjóðs­stýr­inga­fé­lag Arion banka og inn í íslenska ferða­þjón­ustu.
Hvernig peningaslóð stjórnenda Kaupþings og maka þeirra liggur til Tortólu
Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.
Fjárfestingaklúbbur Kaupþingskvenna
RannsóknLeyndarmál Kýpur

Fjár­fest­inga­klúbbur Kaup­þingskvenna

Eig­in­konur þriggja fyrrum stjórn­enda hins fallna Kaup­þings banka eru umsvifa­miklir fjár­festar í fast­eigna­verk­efnum á Spáni og víðar. Peningar sem geymdir eru í félögum á Tortóla og Kýpur eru not­aðir til að byggja lúxus­í­búðir. Hundruð millj­óna króna hagn­aður hefur orðið til í þessum aflands­fé­lögum. Ein þeirra hefur einnig fjár­fest með hópi Íslend­inga í breskum hjúkr­un­ar­heim­ilum.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár