Mynd: Golli

Tómt fjárhús í Götu getur rúmað allt fé í Grindavík

Fjárhús í Selvogi sem stóð tómt rúmar nú stóran hluta fjár í Grinda­vík. 157 kindur voru fluttar í fjár­húsið í dag. Formaður og vara­for­maður Fjár­eig­enda­fé­lags Grinda­víkur finna fyrir miklum létti. „Nú fer ég kannski að hugsa um sál­ar­tetrið,“ segir Grétar Jónsson, for­mað­ur­inn.

Fjárhús á jörð­inni Götu í Selvogi skammt frá Stranda­kirkju hýsir nú stóran hluta fjár í Grinda­vík. Fjár­húsið hefur staðið tómt síð­ast­liðin þrjú ár eftir að eig­andi fjár­húss­ins ákvað að setj­ast í helgan stein þegar hann var kom­inn á átt­ræð­is­aldur. 

Georg Sylvíu­son, sonur jarð­eig­and­ans, var í óða önn að gera og græja og moka hænsna­skít þegar ljós­mynd­ara Heim­ild­ar­innar bar að garði en hænur og endur hafa hreiðrað um sig í tómu fjár­hús­inu und­an­farið. „Þær fara núna í sitt gamla rými,“ segir Georg. Pláss er fyrir 560 kindur í fjár­hús­inu og Georg er full­viss um að hann kæmi öllu sauðfé á Suð­ur­nesjum fyrir í fjár­hús­inu. Faðir hans hætti búskap fyrir um þremur árum og Georg fann sig ekki knú­inn til að halda búskapnum áfram. „Það var ekk­ert upp úr þessu að hafa, það var málið sko.“

Í fjár­hús­inuGeorg Sylvíu­son bauð fjár­hús föður síns í Götu í Selvogi undir fé sem koma þarf í var vegna jarð­hrær­inga. Pláss er fyrir 560 kindur í fjár­hús­inu og því ætti það að rúma allt fé í Grinda­vík.

En það mun ekki væsa um kind­urnar í fjár­hús­inu í Götu. „Við þurfum að laga girð­ing­arnar ef við ætlum að hleypa þeim eitt­hvað út. Þar er nóg að bíta og brenna.“ Hann segir það skemmti­lega til­hugsun að þurfa að hugsa um 500 kindur. „Það er bara smá gaman. Ég held nú að fólkið vilji vera með putt­ana í þessu, þeim þykir það vænt um þessi grey. Hér er nóg pláss.“

Bíl­stjór­innHalldór Magn­ús­son keyrði féð í fjár­húsið. Hann er ekki Grind­vík­ingur en var boð­inn og búinn til að ferja féð.

Grétar Jónsson, for­maður fjár­eig­enda­fé­lags Grinda­víkur, stóð fyrir flutn­ingi fés­ins í dag ásamt Hönnu Sig­urð­ar­dóttur, vara­for­manni fjár­eig­enda­fé­lags­ins. Hann tekur ekki í mál að Georg sjái einn um að hugsa um féð. 157 kindur eru nú komnar í fjár­húsið og vel gekk að smala þeim í morgun og tók það aðeins um klukku­stund.

„Ég fann bara eina dauða í fjör­unni,“ segir Grétar. Kind­urnar eru í eigu tíu „hobbý­bænda“ eins og Hanna kemst að orði og Grétar segir að bænd­urnir muni skipt­ast á að hugsa um hóp­inn, annað komi ekki til greina. 

Fjár­eig­enda­fé­lagið Hanna Sig­urð­ar­dóttir, vara­for­maður fjár­eig­enda­fé­lags Grinda­víkur, og Grétar Jónsson, for­maður félags­ins gerðu allt klárt fyrir komu fjár­ins.

Hanna segir það mik­inn létti að vita af fénu öruggu. „Venju­lega myndum við smala um miðjan nóv­em­ber, taka það allt heim á hús, við ætl­uðum að smala næstu helgi. Það var nauð­syn­legt að kom­ast inn á hús, ég er mjög fegin að kom­ast hér inn. Mjög þakk­lát.“

Fé enn fast á sprungusvæði

Enn á eftir að sækja um 120 kindur, að minnsta kosti, sem eru í fjár­hólfi vestan við Grinda­vík hjá Stað. Fjöldi sprungna hefur mynd­ast á því svæði síð­ustu vikur. „Það er svo mikið sprungu­svæði þar að við treystum okkur eig­in­lega ekki að fara á eftir þeim þar. Ef þeir ætla að ná þeim er helst að björg­un­ar­sveitin hjálpi okkur með dróna og komi þeim nær höfn­unum til að ná þeim en við náum þeim ekki eins og er,“ segir Hanna. 

Senn líður að fengi­tíma og Hanna segir að geri þurfi ýmsar ráð­staf­anir vegna þess. „Ætli það verði ekki bara til­hleyp­ingar hér, allir saman, það verður bara gaman hjá okkur,“ segir Hanna og hlær. Hún býst því við auk­inni fjöl­breytni þegar sauð­burður verður með vor­inu. „Bara á okkar bæ erum við með 12 eða 15 hrúta og um 60-65 ær. Þessu verður örugg­lega öllu blandað eitt­hvað skemmti­lega saman.“

Móðir Hönnu og Grétar eru par og dvelur stór­fjöl­skyldan saman í sum­ar­bú­stað eftir að bær­inn var rýmdur á föstu­dag, átta full­orðin, fimm börn, tveir hundar og sex kettir. „Þetta er kósý,“ segir Hanna. 

Fjöl­skyldanHanna Sig­urð­ar­dóttir og eig­in­maður hennar, Morten Szmiedowicz, ásamt tík­inni Khaleesi.

Óvissan er samt sem áður enn mikil þó svo virð­ist sem staða jarð­hrær­ing­anna hafi hald­ist óbreytt síð­asta sól­ar­hring­inn. Veð­ur­stofan telur enn veru­lega hættu á eld­gosi, helst þar sem kviku­gang­ur­inn er breið­astur norð­austur af Grinda­vík við Sundhnúk og Hagafell. Þá er talið að kvika flæði inn í gang­inn á fleiri en einum stað. 

Grétar seg­ist vera hálf haus­laus eftir síð­ustu daga. Staðan sé súr­r­eal­ísk og hann hafi lítið sem ekk­ert sofið. Hann sé þó aðeins rórri nú þegar búið er að finna fénu skjól í góðu fjár­húsi. „Nú fer ég kannski að hugsa um sál­ar­tetrið.“

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár