Bjargaði dýrunum í gær, vonast til að ná jólakjötinu fyrir fólkið sitt í dag

Dýrin í Grinda­vík eru Guðmundi Sig­urðs­syni efst í huga. Hann komst inn í bæinn í gær og bjarg­aði fjár­stofni sínum í öruggt skjól, til Kefla­víkur. Í dag von­ast hann til að bjarga verð­mætum, ekki síst jóla­hangi­kjöt­inu sem hann hefur verið að reykja fyrir allt sitt fólk. „Manni líður ekki nógu vel, á meðan það er ekki búið að ná öllum dýr­unum,“ segir Guð­mundur við Heim­ild­ina.

Bjargaði dýrunum í gær, vonast til að ná jólakjötinu fyrir fólkið sitt í dag
Við fjár­húsin Guð­mundur Sig­urðs­son er fyrr­ver­andi sjó­maður í Grinda­vík. Mynd tekin 3. nóv­em­ber, fyrir utan fjár­húsin hans í útjaðri Grinda­vík­ur­bæjar. Hann kom fjár­stofn­inum í skjól í gær. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Grind­vík­ingnum Guðmundi Sig­urðs­syni er létt, eftir að hann náði að halda heim í gær og bjarga flestum dýr­unum sínum og fleirum til, í öruggt skjól. „Ég hef það mjög gott, eftir að ég náði skepn­unum í burtu í gær. Fékk að fara inn á svæðið og taka bæði kindur og hænur og annað,“ segir Guð­mundur, spurður um líðan sína, í sam­tali við Heim­ild­ina. 

Reyndar seg­ist Guð­mundur sama og ekk­ert hafa sofið um helg­ina, eða frá því að hann og kona hans rýmdu heim­ilið við Vest­ur­braut á föstu­dags­kvöld, í kjöl­far jarð­skjálfta­hr­inu sem Guð­mundur lýsir sem hrika­legri. „Það var ekki líft inni í hús­inu. Það lá við að maður hent­ist á milli veggja,“ segir hann.

Sprunga í túninu

Blaða­maður og ljós­mynd­ari Heim­ild­ar­innar hittu Guðmund á ferð sinni um Grinda­vík fyrir tíu dögum, föstu­dag­inn 3. nóv­em­ber. Þá sagði Guð­mundur að hann hefði verið að sturta möl í stærð­ar­innar holur sem …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár