Viðskipti ríkisins við fyrirtæki konu ráðuneytisstjórans nema tæpum 220 milljónum

Arki­tekta­stofan Yrki hefur unnið verk­efni fyrir íslenska ríkið í gegnum Fram­kvæmda­sýsl­una fyrir rúmar 200 millj­ónir króna á síð­ustu þremur árum. Fyr­ir­tækið er í eigu Sól­veigar Berg Emils­dóttur, eig­in­konu Guð­mundar Árna­sonar, ráðu­neyt­is­stjóra í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Fram­kvæmda­sýslan segir að þau verk­efni Yrki sem keypt hafi verið í gegnum hana hafi verið eftir útboð.

Viðskipti ríkisins við fyrirtæki konu ráðuneytisstjórans nema tæpum 220 milljónum
Rúmar 200 millj­ónir Við­skipti fyr­ir­tækis eig­in­konu Guð­mundar Árna­sonar ráðu­neyt­is­stjóra við íslenska ríkið nema rúm­lega 200 millj­ónum á síð­ustu þremur árum. Mynd: MBL / Kristinn Magnússon

Við­skipti íslenska rík­is­ins við arki­tekta­stofu eig­in­konu ráðu­neyt­is­stjóra fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, Guð­mundar Árna­sonar, nema tæp­lega 220 millj­ónum króna. Eig­in­kona Guð­mundar heitir Sólveig Berg Emils­dóttir og hefur hún átt og rekið Yrki arki­tekta frá árinu 1997. Stærsti hluti við­skipt­anna hefur verið á síð­ustu þremur árum, rúm­lega 200 millj­ónir króna. Þessi við­skipti snú­ast um vinnu fyr­ir­tæk­is­ins, Yrki arki­tekta, við end­ur­bætur á hús­næði nokk­urra ráðu­neyta á Skúla- og Sölv­hóls­götu í miðbæ Reykja­víkur. Arki­tekta­stofan fékk umrædd verk­efni á grund­velli útboða í gegnum Rík­is­kaup þar sem til­boð fyr­ir­tæk­is­ins voru lægst. Þetta kemur fram í svörum frá Fram­kvæmda­sýsl­unni Rík­is­eigna (FSRE) um umfang við­skipta Yrki arki­tekta við íslenska ríkið. 

Heim­ildin greindi frá því nú í októ­ber að arki­tekta­stofan ynni verk­efni fyrir íslenska ríkið sem næmu tug­millj­ónum króna á ári og að í ljósi umfangs verk­efn­anna hefði Guð­mundur Árnason …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár