Vísindanefndin: Sambúð fólks við náttúruna þarf að breytast

Umbylt­ingar er þörf í lífs­háttum og umgengni við nátt­úr­una, segir í skýrslu vís­inda­nefndar um áhrif lofts­lags­breyt­inga á Íslandi. Snark í gróð­ur­eldum, suð í moskítóflugum og smit frá skóg­armítlum gæti orðið hvers­dags­legt áður en langt um líður og sjáv­ar­flóð, skriðu­föll og lægða­gangur tíð­ari.

Vísindanefndin: Sambúð fólks við náttúruna þarf að breytast
Fram­tíðin Tíðari skriðu­föll og skemmdir á vegum vegna flóða og umhleyp­inga bíða okkar. Við þurfum að aðlag­ast, segir vís­inda­nefndin, en jafn­framt draga veru­lega úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Mynd: Shutterstock

Lofts­lags­breyt­ingar eru, svo ekki verður um villst, byrj­aðar að breyta nátt­úru­fari og lífs­skil­yrðum fólks á Íslandi. Og þetta er rétt að byrja. „Veðurfar og nátt­úru­að­stæður á land­inu og í haf­inu umhverfis það verða í lok ald­ar­innar án for­dæma frá upp­hafi byggðar á Íslandi.“

Hún er ansi dökk, fram­tíð­ar­sýnin sem vís­inda­nefnd um áhrif lofts­lags­breyt­inga á Íslandi dregur upp í fjórðu mats­skýrslu sinni er gefin var út í morgun. En hún er þó ekki án vonar – ef rétt verður haldið á spil­unum.

„Þegar sam­fé­lög standa frammi fyrir lofts­lagsvá geta við­brögðin verið af þrennum toga: Að þjást, draga úr losun eða aðlag­ast afleið­ing­unum,“ segir í skýrsl­unni. Mik­il­vægt sé að draga sem mest úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og aðlag­ast þeim breyt­ingum sem óum­flýj­an­legar eru. Til þess verk­efnis þarf skýra stefnu, ríka sam­stöðu, jafn­ræði, traust á stofn­anir og síð­ast en ekki síst: Hug­ar­fars­breyt­ingu fólks­ins sem þetta land byggir. Því til að tryggja að áskor­an­irnar sem við stöndum frammi fyrir verði ekki meiri en við verður ráðið „þarf umbylt­ingu í lífs­háttum og umgengni við nátt­úr­una“.

Ísland um næstu aldamót

Börn sem fædd eru í ár verða 76 ára um næstu alda­mót. Það Ísland sem mun blasa við þeim og þeirra afkom­endum verður á margan hátt öðru­vísi en það sem við þekkjum í dag ef ekki tekst að draga veru­lega úr losun. Veðurfar verður „gjör­ó­líkt“ því sem það hefur að jafn­aði verið frá land­námi, „hugs­an­lega án for­dæma síðan síð­asta jök­ul­skeiði lauk fyrir tíu þús­und árum,“ segir í skýrslu vís­inda­nefnd­ar­innar.

HlýnunVæntar hita­breyt­ingar miðað við sviðs­myndir mats­skýrslu vís­inda­nefnd­ar­innar.

Fyrst ber að nefna hita­stigið. Um miðja öld­ina, þegar ´23 árgang­ur­inn verður búinn að stíga sín fyrstu skref inn í heim full­orð­inna, verður lík­lega um 1-1,7 gráðum hlýrra en nú er. En þegar þau kom­ast á átt­ræð­is­ald­ur­inn í ald­ar­lok verður mögu­lega orðið 3,5 gráðum hlýrra. Þessum hlý­ind­unum verður ekki jafn­d­reift um landið. Líkur eru á því að hlýnun verði meiri norðan lands­ins en sunnan þess. Það er heldur ekki ólík­legt að ákveðnir staðir verði tíma­bundið kald­ari en nú er.

Ákefð í úrkomu verður orðin meiri og aftaka­úr­koma tíð­ari með til­heyr­andi skriðu­föllum og öðrum ham­förum. Jökl­arnir verða búnir að tapa að minnsta kosti 40-50 pró­sent af massa sínum og sjáv­ar­staðan allt að 1,2 metrum hærri við suð­aust­ur­strönd­ina en um 1,5 metrum lægri við suð­vestan- og vest­an­vert landið.

Þetta mun hafa áhrif á hvar fólk býr. Hvar það velur að búa og hvar það getur búið.

Færri vaðfuglar, fleiri hnúðlaxar

Ýmsar skor­dýra­teg­undir sem í dag þekkj­ast ekki á Íslandi, munu hafa náð hér fót­festu. Skóg­armítlum kemur til með að fjölga og moskítófl­ugur gætu hæg­lega gert sig heima­komnar.

í hættuSpóar koma sér fyrir á gömlum girð­ing­ar­staur. Þeir eru vað­fuglar og búsvæði þeirra kunna að vera í hættu vegna lofts­lags­breyt­inga. Spóar eru ábyrgð­ar­teg­und á Íslandi enda verpur yfir þriðj­ungur stofns­ins á heims­vísu hér á landi.

Við alda­mótin gæti íslenska fuglaflóran verið breytt og vað­fuglum t.d. fækkað vegna búsvæða­taps. Bleikjan mun á sama tíma eiga erfitt upp­dráttar en urrið­inn jafn­vel hafa sótt í sig veðrið. Hnúðlax upp­runn­inn í eld­iskvíum í öðrum löndum, mun lík­lega njóta sín vel í hlýn­andi sjó og ám en afkoma hans er þó óljós, rétt eins og ann­arra lax­fiska, þar sem nýrna­sýk­ing eykst með hækk­andi vatns­hita og getur valdið miklum afföllum.  

Og hafið, líf­ríki þess allt, verður öðru­vísi. Sumar teg­undir verða útbreidd­ari en aðrar á und­an­haldi. Sumar teg­undir fiska hafa fært sig, flúið undan hækk­andi sjáv­ar­hita og súrnun hafs­ins. Og kannski munu Íslend­ingar eiga í úti­stöðum við aðrar þjóðir vegna svo­kall­aðra deilistofna.

Meiri ræktun en fleiri sníkjudýr

Þegar ung­börn dags­ins í dag verða komin að átt­ræðu mun landið okkar líka líta allt öðru­vísi út. Skógar verða útbreidd­ari og öll rækt­un­ar­skil­yrði gjör­breytt. Að lík­indum verður korn og ýmis­legt annað ræktað í stórum stíl til dýra- og mann­eldis. En það er óþarfi að fagna því of snemma. Ýmislegt gæti sett þar strik í reikn­ing­inn. Þurrkar, flóð, gróð­ur­eldar, sníkju­dýr og önnur leið­indi gætu fylgt.

MeindýrNý mein­dýr á trjám og runnum á Íslandi frá 1900. Rauð tákn eru teg­undir sem valda miklu tjóni. Blá tákn eru teg­undir sem valda tölu­verðu eða litlu tjóni. Svört tákn eru teg­undir sem hafa numið land en tek­ist hefur að útrýma.

Allt mun þetta hafa áhrif á alla þætti sam­fé­lags­ins, hvort sem það eru inn­viðir á borð við vegi og brýr, öflun neyslu­vatns og frá­veitur, heilsa og atvinna, hvað fólk borðar og hvar það býr.

Afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga og við­bragða gegn þeim munu einnig hafa áhrif á menn­ingu, listir, menntun og gild­is­mat, segir vís­inda­nefndin. „Menntun og skap­andi greinar geta stuðlað að nauð­syn­legum breyt­ingum á gild­is­mati og hegðun fólks í átt að auk­inni sjálf­bærni.“

Því það er einmitt aðlögun að breyttum heimi sem nefndin leggur ríka áherslu á. Lofts­lags­breyt­ingar eru orðnar að veru­leika og munu auka áhrif sín, sama hvað. Spurn­ingin er hins vegar hversu mikil áhrifin verða.

Ríka fólkið mengar mest

Vís­inda­nefndin minnir á að efna­meira fólk, bæði inn­an­lands og á alþjóða­vísu, losar meira en þeir sem minna hafa á milli hand­anna. Afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga bitna auk þess meira á þeim sem fátæk­ari eru. „Ljóst er að lofts­lags­breyt­ingar munu auka áþján og að þær munu hafa dauðs­föll í för með sér,“ segir í skýrsl­unni. Sið­ferð­is­leg ábyrgð þeirra sem mest losi sé því veru­leg.

„Lofts­lags­breyt­ingar velta einnig upp spurn­ingum um stöðu manns­ins í nátt­úr­unni og þeim djúpu gild­is­mats- og við­horfs­breyt­ingum sem þurfa að eiga sér stað til að vinna á lofts­lags­vánni,“ segir nefndin. „Ljóst er að gild­is­mat, við­horf og sam­búð fólks við nátt­úr­una þarf að breyt­ast til þess að hægt sé að bregð­ast við lofts­lags­vand­anum.“

Óvissu­þættir eru margir og þess vegna dregur nefndin upp nokkrar sviðs­myndir í skýrslu sinni. Þær byggja m.a. á lofts­lags­lík­önum og grein­ingu ýmissa gagna. Nokkur vissa er með lík­legar breyt­ingar til næstu ára og jafn­vel ára­tuga en þegar lengra er horft fram í tím­ann, t.d. fram yfir næstu alda­mót, eru spárnar óljós­ari og sviðs­mynd­irnar ólík­ari. Allt er þetta svo háð því hversu mikið tekst að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Og þótt miklu máli skipti hver árang­ur­inn verður á Íslandi er allur heim­ur­inn undir, allar hans þjóðir.

ÞotuliðRíkt fólk mengar almennt meira en þeir sem minna hafa á milli hand­anna.

Örfá dæmi úr sviðsmyndum skýrslunnar:

  • Aftaka­úr­koma gæti auk­ist um 5-15 pró­sent. Í sumum sviðs­myndum má ætla að miklir úrkomu­at­burðir verði ekki á 100 ára fresti eins og verið hefur heldur um það bil á 12-17 ára fresti.
  • Jöklar lands­ins munu rýrna um að minnsta kosti 40-50 pró­sent, jafn­vel þótt mark­mið Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins um að halda hlýnun undir 2 gráðum náist.
  • Til­kynn­ingum um skóg­armítla, sem geta borið með sér smit­sjúk­dóma, hefur fjölgað á Íslandi og tíma­spurs­mál hvenær smit berst í fólk hér á landi. Moskítófl­ugur eru annað dæmi um smit­ferjur sem hafa til þessa ekki náð að nema land á Íslandi.
  • Lofts­lags­breyt­ingar ógna heilsu fólks og vist­kerfum um allan heim. Þær eru í vax­andi mæli ástæða þving­aðra fólks­flutn­inga og átaka.
  • Íslenskt þjóð­fé­lag kann að verða fyrir afleið­ingum lofts­lags­breyt­inga erlendis, sem m.a. getur birst í komu lofts­lags­flótta­fólks.
  • Ójöfn­uður í heilsu og aðgengi að heil­brigð­is­þjón­ustu er stað­reynd á Íslandi, líkt og ann­ars staðar í heim­inum.
  • Lofts­lags­breyt­ingar auka nátt­úruvá, t.d. vegna aftaka­úr­komu, hvass­viðra, hættu á flóðum í ám og úr jað­ar­lónum, skriðu­falla, sjáv­ar­flóða, tíð­ari eld­gosa og gróð­ur­elda.
  • Gróð­ur­fars­breyt­ingar auka tíðni þurrka og hafa í för með sér aukna hættu af gróður- og skóg­ar­eldum. Einungis virð­ist tíma­spurs­mál hvenær útbreiddur gróð­ur­eldur veldur alvar­legu tjóni í byggð.
  • Tíðni og ákefð sjáv­ar­flóða mun aukast með hækk­andi sjáv­ar­stöðu.
  • Er jöklar bráðna dregur úr fargi á jarð­skorp­unni sem eykur kviku­myndun sem kann að leiða til stærri og eða tíð­ari eld­gosa.
  • Hnattræn hlýnun kann að draga úr tíðni fyr­ir­stöðu hæða yfir Græn­landi að vetri, sem gæti aukið tíðni lægða­gangs til Íslands.

Veikur lagagrunnur

„Aðlögun er lyk­il­þáttur í því að tryggja lang­tíma við­brögð við lofts­lags­breyt­ingum með það að mark­miði að vernda fólk, lífs­við­ur­væri og vist­kerfi,“ segir í skýrslu vís­inda­nefnd­ar­innar. Áhrifa lofts­lags­breyt­inga sé þegar farið að gæta á Íslandi og sam­fé­lagið stendur frammi fyrir mögu­legum afleið­ingum, svo sem fyrir efna­hag, inn­viði, atvinnu­greinar, öryggi og lýð­heilsu.

Nefndin telur íslenskan laga­grunn varð­andi aðlögun að lofts­lags­breyt­ingum almennt veikan og að lög­bundið umboð ríkis og sveit­ar­fé­laga hvað varði lofts­lags­mál taki nán­ast ein­göngu til mót­væg­is­að­gerða. Fjár­mögnun lofts­lags­að­gerða vantar til að hraða aðlög­un­ar­að­gerðum. Þetta fjár­magn þurfi að tryggja. Hvatar þurfi að vera til staðar fyrir aðlögun og sam­drátt í nettólosun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

„Lofts­lags­breyt­ingar velta einnig upp spurn­ingum um stöðu manns­ins í nátt­úr­unni og þeim djúpu gild­is­mats- og við­horfs­breyt­ingum sem þurfa að eiga sér stað til að vinna á lofts­lags­vánni.“

Áhættu­mat og áhættu­stýr­ing er mik­il­vægur hluti af aðlögun en skipu­lag og umhverf­is­mat eru lyk­il­stjórn­tæki þegar kemur að því að vinna far­sæl­lega að aðlögun byggða og sam­fé­lags. Sem dæmi munu sjáv­ar­stöðu­breyt­ingar verða mikil áskorun fyrir strand­sam­fé­lög í náinni fram­tíð. Sömu­leiðis þarf að skipu­leggja alla ræktun vel, t.d. í nýjum frí­stunda­byggðum, land­bún­aði og skóg­rækt. „Við mat á nýjum svæðum þarf að taka til­lit til nágranna­svæða þeirra, dreif­ingar aðfluttra teg­unda og áhrifa á líf­fræði­lega fjöl­breytni.“

Þá bendir nefndin á að það sé hlut­verk stjórn­valda að tryggja að hægt sé að byggja ákvarð­anir varð­andi aðlögun á áreið­an­legum gögnum og rann­sóknum. „Slíkt krefst auk­ins fjár­magns til rann­sókna og vökt­unar á áhrifum lofts­lags­breyt­inga á íslenska nátt­úru og sam­fé­lag.“

Afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga fara vax­andi og því mik­il­vægt, segir í skýrslu vís­inda­nefnd­ar­innar, að „aðlögun sé í brennid­epli hjá ríki og sveit­ar­fé­lögum“.

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Loftslagsbreytingar

Hitabylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur
Umhverfið

Hita­bylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur

„Það er mjög lík­legt að árið í ár verði eitt heitasta árið á öld­inni og næsta ár líka,“ segir Halldór Björns­son, haf- og veð­ur­fræð­ingur á Veð­ur­stofu Íslands. Sól­þyrstir Íslend­ingar þurfa að huga að því að skipu­leggja sum­ar­frí sín út frá hita­bylgjum. Yfir­stand­andi hita­bylgju í Evrópu má tengja við AMOC-velti­hringrás­ina segir vís­inda­mað­ur­inn Stefan Rahms­torf.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár