Heillandi hrímheimur

Góð og trú­verðug heims­sköpun er ein af frum­for­sendum góðrar fantasíu og í þess­ari bók tekst Hildi Knúts­dóttur svo sann­ar­lega að skapa eft­ir­minni­legan heim.

Heillandi hrímheimur
Heims­sköpun „Í þess­ari bók tekst Hildi Knúts­dóttur svo sann­ar­lega að skapa eft­ir­minni­legan heim.“ Mynd: Davíð Þór
Bók

Hrím

Höfundur Hildur Knútsdóttir
Mál og menning
338 blaðsíður
Gefðu umsögn

Jófríður Karka­dóttir er dóttir kenni­manns í Mývatns­skar­anum. Hún er eins og aðrir ung­lingar, hefur áhuga á fötum, perlu­saum­uðum yfir­skyrtum úr kópa­skinni, ást­inni, en um hjarta hennar takast á æsku­vinur hennar Bresi og hinn fram­andi Suðri úr Ljósa­vatns­skar­anum, og svo veltir hún því líka fyrir sér hvað fram­tíðin ber í skauti sér og hvaða verk­efni innan skar­ans munu falla henni í skaut þegar hún verður full­orðin. Við hittum Jófríði fyrst úti í hólma á Skjálf­anda­fljóti, nálægt sum­ar­dval­ar­stað skar­ans hennar, þar sem hún er að safna ull af svoköll­uðum hað­nautum áður en haldið er til Húsa­víkur í sum­ar­lok þar sem allir skar­arnir hitt­ast, veiða saman, halda hátíð og skipt­ast á varn­ingi áður en haustið rekur öll í vetr­ar­búðir úti á ísi­lögðum vötnum.  

Góð og trú­verðug heims­sköpun er ein af frum­for­sendum góðrar fantasíu og í þess­ari bók tekst Hildi Knúts­dóttur svo sann­ar­lega að skapa eft­ir­minni­legan heim. Ekki síst vegna þess að hann er byggður á Suður-Þing­eyj­ar­sýslu með vötnum og ám og hæðum sem heita sömu nöfnum og í okkar heimi, lands­lagi sem er til í alvöru og mörg þekkja vel. Sá heimur sem hún skapar í nýj­ustu bók sinni, Hrím, er bæði kunn­ug­legur og fram­andi og fram­kall­aður af mik­illi sköp­un­ar­gáfu og skálda­gleði. 

Hildur Knúts­dóttir hefur skrifað nokkrar bækur og bóka­flokka þar sem fantasían vefst saman við þá heims­mynd sem við þekkjum og má þar nefna verð­launa­bæk­urnar þrí­leik­inn Ljónið, Nornin og Skóg­ur­inn og tví­leik­inn Vetr­ar­frí og Vetr­ar­hörkur. Í þess­ari bók er gengið lengra, les­endur kann­ast við landa­fræði og stað­ar­heiti, mögu­lega hluta dýra- og jurta­lífs, en sjón­ar­hornið er fram­andi, sam­fé­lagið er safn­ara og veiði­manna sem ferð­ast um í nokkrum hópum sem kall­ast skarar, trú­ar­brögðin eru sam­tal við nátt­úr­una sem er bæði lík og ólík þeirri nátt­úru sem við þekkjum á þessu svæði í dag, lífs­bar­áttan er ekki bænda og búaliðs heldur fer mun aftar í sög­unni. Til­finn­ingin er að ein­hverju leyti for­sögu­leg, dýrin eru til að mynda bæði fjöl­breytt­ari og miklu stærri en við eigum að venj­ast eða fólkið er miklu minna. Refir gegna hlut­verki hunda og ná fólki upp að mitti, fjórar mann­eskjur þarf til að draga einn selkóp og laxar geta hæg­lega gleypt með­al­mann­eskju. Risa­vaxnir birnir og mór­hirtir sem gætu verið það sem við köllum hrein­dýr leika lausum hala, að ógleymdum hinum skelfi­legu ófreskjum, hrím­svelgj­unum. 

Bak­grunnur sög­unnar og sú þjóð- og mann­fræði sem gerir sög­una lif­andi er ein­stak­lega skemmti­lega unnin.

Bak­grunnur sög­unnar og sú þjóð- og mann­fræði sem gerir sög­una lif­andi er ein­stak­lega skemmti­lega unnin. Lífi fólks­ins í skör­unum er lýst á lif­andi og áhuga­verðan hátt, hvernig dagar þess líða við veiðar og söfnun, hvernig  fólk verslar og slúðrar og skemmtir sér, hvað er borðað, hvernig þau hita híbýli sín og lýsa þau, hvað er í mat­inn, hvernig húsa­skipan er, hvað er dýr­mætt og hvernig er hag­kerfið og svo fram­vegis. Allt þetta er ljós­lif­andi fyrir hug­skots­sjónum les­and­ans sem sekkur sér niður í lífið í tjöldum og lang­húsum, og hvernig það býður þrátt fyrir harð­ræði upp á ýmsar gjafir og gleði. 

Hildur nýtir sér íslensk­una og orða­forða hennar í Hrími enda dýr­mætt að geta kafað í sjóði Snorra-Eddu og þjóð­sagna Jóns Árna­sonar þegar íslensk fantasía er skrifuð. Per­són­urnar heita nöfnum eins og Kneif, Eirfinna og Auðni, ætt­bálk­arnir kall­ast skarar og for­eldrar kalla börn sín „jóðið mitt“ á elsku­legan hátt en fyrir þau sem ekki vita þá er skari orð yfir hóp og jóð þýðir barn, alla­vega í kross­gátum. Íslenskan er full af skemmti­legum orðum og sam­heitum og nákvæm­lega engin ástæða til að láta þau liggja óbætt hjá garði. 

Þótt heims­sköp­unin taki tölu­vert pláss í Hrími er bókin þó fyrst og fremst þroska­saga Jófríðar og hvernig hún tekst á við ýmis hlut­verk er fylgja því að vaxa úr grasi. Rómantík fær sinn skerf með stjörnust­ari og leyni­fundum í heitum laugum og hún lendir í þeirri sígildu klemmu að þurfa að velja milli tveggja stráka, æsku­vin­ar­ins Bresa og hins meira fram­andi Suðra, sem báðir hafa ýmis­legt sér til ágætis en setja henni þó ákveðna afar­kosti. Sambandi hennar við bestu vin­kon­una Eirfinnu eru líka gerð góð skil og Eirfinna með skemmti­legri per­sónum í bók­inni. Á meðan kallar fram­tíðin og þau hlut­verk sem bjóð­ast þar ekki endi­lega þau sem Jófríður myndi velja sér sjálf. Hún leggur í eins konar kven­dóms­vígslu­ferð, ein í hríð­ar­byl að sinna lífs­nauð­syn­legum erindum og fær á meðan tæki­færi til að hugsa sinn gang, hlusta á sína innri rödd og velja sjálf þá leið sem hún ætlar sér að feta. 

Eins og ég sagði áðan þá er höf­undur Hríms þekkt fyrir að láta ekki eina bók nægja þegar hún kafar á annað borð í aðra heima og það má vissu­lega hugsa sem svo að það væri synd að láta þessa nost­ur­sam­legu heims- og per­sónu­sköpun ekki teygja sig í fleiri bækur. Sagan af Jófríði stendur þó alveg sjálf­stætt og fyrir sínu þó ég hefði samt ekk­ert á móti því að heim­sækja Hrímland aftur. 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár