Lífeyrissjóður verzlunarmanna tilkynnti í lok síðustu viku að hann hefði hækkað vexti á íbúðalánum viðskiptavina sinna. Við það fóru breytilegir óverðtryggðir vextir sjóðsins úr 9,77 í 9,99 prósent frá og með næstu mánaðamótum. Þetta er í annað sinn frá síðustu vaxtahækkun Seðlabanka Íslands sem sjóðurinn hækkar vextina. Það gerði hann líka í tilkynningu í byrjun september þegar hann boðaði myndarlega hækkun upp á 0,92 prósentustig sem tók gildi 1. október. Því hafa vextir sjóðsins hækkað samtals um 1,14 prósentustig á sama tíma og stýrivextir Seðlabanka Íslands hækkuðu um 0,5 prósentustig og upp í 9,25 prósent.
Gildi lífeyrissjóður, sem er líka umfangsmikill lánveitandi, tilkynnti líka um hækkanir seint í síðustu viku, en þær taka gildi í byrjun nóvember. Vextir grunnlána munu hækka um 0,5 prósentustig og verða 10,35 prósent. Það var í fyrsta sinn síðan í júlí sem sá sjóður hækkaði vexti sína.
Þrátt fyrir miklar vaxtahækkanir eru lífeyrissjóðirnir enn að …
Athugasemdir