„Ég held að það sé mikilvægt að sveitarfélagið standi ekki í skuld við fyrirtæki“

Ásrún Mjöll Stef­áns­dóttir, sveit­ar­stjórn­ar­kona VG í Múla­þingi, segir að það sé mik­il­vægt að settar verði reglur á sveita­stjórn­ar­stig­inu um gjafir frá fyr­ir­tækjum. Nýlega gaf Fiskeldi Aust­fjarða 6 til 8 millj­óna króna gjöf í formi meng­un­ar­varna til Seyð­is­fjarð­ar­bæjar. Yfir­hafn­ar­vörður segir málið verið storm í vatns­glasi þar sem höfnin hafi upp­haf­lega ætlað að kaupa bún­að­inn af Fiskeldi Aust­fjarða.

„Ég held að það sé mikilvægt að sveitarfélagið standi ekki í skuld við fyrirtæki“
Sveit­ar­fé­lög standi í skuld við fyr­ir­tæki Ásrún Mjöll Stef­áns­dóttir, sveita­stjórn­ar­kona úr VG, segir að það sé mik­il­vægt að íbúar sveit­ar­fé­laga geti treyst þeim og að þau standi í skuld við fyr­ir­tæki sem stunda eða vilja stunda atvinnu­starf­semi þar.

„Það er mjög mik­il­vægt að skoða þetta: Að settar verði reglur á gjafir til sveit­ar­fé­lags­ins. Ég held að það sé mik­il­vægt að sveit­ar­fé­lög standi ekki í skuld við fyr­ir­tæki sem hafa svona hags­muna að gæta. Ég held að það sé mik­il­vægt að fólk geti treyst því að sveit­ar­fé­lagið sé ekki í svona sam­skiptum við hags­muna­að­ila,“ segir Ásrún Mjöll Stef­áns­dóttir, sveita­stjórn­ar­kona úr VG sem situr í sveit­ar­stjórn Múla­þings, aðspurð um gjöf sem Múlaþing fékk frá lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Fiskeldi Aust­fjarða fyrr í sumar.

Gjöfin, 6 til 8, millj­ónir króna fólst í greiðslu á meng­un­ar­vörnum í Seyð­is­firði, nánar til­tekið akk­erum til að stöðva olíu­leka úr flakki skips­ins El Grilló.

Heim­ildin greindi frá gjöf­inni í morgun. Hún kom fram í fund­ar­gerð frá Umhverfis- og fram­kvæmda­nefnd Múla­þings frá því á mánu­dag­inn. Gjöfin fólst í að Fiskeldi Aust­fjarða gaf sveit­ar­fé­lag­inu fjögur akk­eri og setti þau niður til að halda niðri olíu­gildru sem er yfir flaki skips­ins El Grilló og olía lekur úr. 

„Okkur var boðin aðstoð til að bregð­ast við bráða­vanda.“
Rúnar Gunn­ars­son,
yfir­hafn­ar­vörður á Seyð­is­firði

Ákvörðunin fór ekki fyrir sveitastjórn

Ásrún segir að það sé mik­il­vægt að ásýnd sveit­ar­fé­laga sé þannig að íbú­arnir geti treyst þeim. „Ég held bara að til þess að fólk beri traust til stjórn­sýsl­unnar í sveit­ar­fé­lögum hér á landi þá þurfi að setja reglur um þetta. Þetta þarf að vera þannig,“ segir Ásrún Mjöll.

Fjallað er um gjöf­ina í fund­ar­gerð Umhverfis- og fram­kvæmda­ráðs Múla­þings frá því á mánu­dag­inn. Fram kemur í fund­ar­gerð­inni, undir liðnum „ábyrgð fylgj­andi því að gefa og þiggja“ að full­trúar minni­hlut­ans spyrji sig spurn­inga um gjöf­ina frá lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu. „Við, full­trúar V-lista og M-lista, köllum eftir því að settar verði skýrar reglur um gjafir til sveit­ar­fé­lags­ins í ljósi umræðna á fund­inum.“

Ásrún segir aðspurð að ákvörð­unin um að þiggja gjöf­ina hafi ekki farið fyrir sveita­stjórn Múla­þings. 

Ætlaði að kaupa bún­að­innRúnar Gunn­ars­son, yfir­hafn­ar­vörður á Seyð­is­firði, ætl­aði upp­haf­lega að kaupa bún­að­inn af Fiskeldi Aust­fjarða en fyr­ir­tækið bauðst þá til að gefa hann.

Yfirhafnarvörður: Brugðist við bráðavanda

Rúnar Gunn­ars­son, yfir­hafn­ar­vörður á Seyð­is­firði, tók ákvörð­un­ina um að þiggja gjöf­ina frá Fiskeldi Aust­fjarða. Hann segir að hann hafi haft sam­band við lax­eld­is­fyr­ir­tækið til að kaupa akk­erin til að halda olíu­gildrunni niðri en að fyr­ir­tækið hafi þá ein­fald­lega boð­ist til að gefa þau. „Þetta voru bara akk­eri sem þeir voru að fara að henda. Þeir sögðu bara: Þið getið fengið þau fyrir ekki neitt. Þeir ætl­uðu að henda þeim hvort sem var. Svo áttu þeir leið hér um hjá Fiskeldi Aust­fjarða og þeir buð­ust til að setja akk­erin niður og ég þáði það. Land­helg­is­gæslan ætl­aði að gera þetta en komst ekki í þetta strax. Við vorum að glíma við olíu­leka og það þurfti að bregð­ast við. Við gátum ekk­ert beðið lengur.“

Rúnar segir að ákvörð­unin um að þiggja aðstoð Fisk­eldis Aust­fjarða hafi alfarið verið hans. „Ég ber algjör­lega ábyrgð á þessu og eng­inn annar og var ekki að gera neitt sem ég mátti ekki gera. Okkur var boðin aðstoð til að bregð­ast við bráða­vanda. Við ætl­uðum að kaupa þennan búnað af þeim og Gæslan ætl­aði að setja þetta niður.“

Rúnar segir að talið um verð­mæti á gjöf­inni, 6 til 8 millj­ónir, sé byggt á get­gátum. „Ég hef ekki hug­mynd um hvað þetta kostar og hef engar for­sendur til að tjá mig um það.“

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár