„Láttu engan troða á tilfinningum þínum“

Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, seg­ist slegin yfir bakslagi í rétt­inda­bar­áttu hinsegin fólks. Baráttan hafi kostað per­sónu­legar fórnir, blóð, svita og tár. Nú verði að gera allt til að stöðva hat­urs­fulla orð­ræðu. Hún treystir því að sam­staða þjóð­ar­innar með hinsegin sam­fé­lag­inu bresti ekki þótt lít­ill hópur reyni að koma inn rang­hug­myndum hjá fólki.

„Láttu engan troða á tilfinningum þínum“
Dap­ur­legt að fylgj­ast með bakslag­inu í umræð­unni Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir var fyrst íslenskra kvenna til að gegna emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra og fyrsti ráð­herr­ann sem átti maka af sama kyni. Það vakti heims­at­hygli. Hún segir mjög dap­ur­legt að fylgj­ast með því bakslagi sem sé að eiga sér stað í umræð­unni. Hinsegin fólk sé ekki að biðja um neitt annað en að til­finn­ingar þeirra séu virtar í sam­fé­lag­inu. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Berðu höf­uðið hátt og láttu engan troða á til­finn­ingum þínum.“ Þannig hljóða skila­boð Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, til ungs hinsegin fólks sem líður illa yfir þeirri orð­ræðu sem dunið hefur á þeim und­an­farna daga og vikur.

Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir hefur að mestu haldið sig til hlés í opin­berri umræðu síð­ustu ár. Hún og eig­in­kona hennar, Jónína Leós­dóttir, hafa allar götur frá því þær kynnt­ust reynt að halda einka­lífi sínu fyrir sig. Ef frá eru taldar ævi­saga Jóhönnu, Minn tími, sem Páll Valsson skrif­aði og kom út árið 2017 og bókin Við Jóhanna, eftir Jónínu Leós­dóttur, sem kom út árið 2013, hafa þær skýlt einka­lífi sínu fyrir kast­ljósi fjöl­miðla. 

„Dapurlegt að fylgjast með þessu“

Jóhanna og Jónína kynnt­ust árið 1985, hófu sam­búð fimmtán árum síðar og giftu sig árið 2010. Þeim gekk ágæt­lega að halda einka­lífi sínu að mestu frá opin­berri umræðu þar …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sjá meira

Ef börnum verður ekki breytt með ofbeldi, verður þeim ekki breytt með fræðslu
GreiningHinsegin bakslagið

Ef börnum verður ekki breytt með ofbeldi, verður þeim ekki breytt með fræðslu

Sér­fræð­ingar í hinsegin fræðum kryfja atburði síð­ast­lið­inna daga og aðdrag­and­ann að því, sem hefur átt sér stað bæði hér heima og erlendis. Þetta eru þær Gyða Margrét Pét­urs­dóttir pró­fessor, Arna Magnea kenn­ari, Birta Ósk Hönnu­dóttir meist­ara­nemi og Jessica Lynn, bar­áttu­kona fyrir rétt­indum trans fólks. Þær segja íhalds­öfl standa frammi fyrir vanda og þá þurfi að leita að blóra­bögglum.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hinsegin bakslagið

„Þetta var ég. Ég er ekki með typpi, ég var ekki nakin og ég er ekki karlmaður“
ViðtalHinsegin bakslagið

„Þetta var ég. Ég er ekki með typpi, ég var ekki nakin og ég er ekki karl­maður“

Veiga Grét­ars­dóttir er trans konan sem fór í sund í Graf­ar­vogs­laug í síð­ustu viku og nýtti sér kvenna­klef­ann á sama tíma og stúlkur í skóla­sundi. Nokkrar stúlkn­anna hlógu að henni og leið Veigu eins og hún væri sirk­us­dýr. Hún ákvað að gera athuga­semd við kenn­ara þeirra og hélt að þar með væri málið úr sög­unni en hávær orðrómur, byggður á lygum, fór af stað.
Varð fyrir líkamsmeiðingum „en útilokunin var verst“
ViðtalHinsegin bakslagið

Varð fyrir lík­ams­meið­ingum „en úti­lok­unin var verst“

Anna Krist­jáns­dóttir segir að úti­lokun frá félags­legum sam­skiptum hafi valdið henni mestu van­líð­an­inni eftir að hún kom fram opin­ber­lega sem trans kona fyrir þrjá­tíu árum. Hún var líka beitt lík­am­legu ofbeldi. „Einu sinni var keyrt vilj­andi yfir tærnar á mér, fólk hrinti mér og það var hellt úr glösum yfir höf­uðið á mér á skemmti­stöðum.“
„Ég er hrætt við að fólk finni mig í fjöru“
ViðtalHinsegin bakslagið

„Ég er hrætt við að fólk finni mig í fjöru“

„Sjá þau ekki að heim­ur­inn minn er að hrynja?“ hefur Mars M. Proppé spurt sig síð­ast­liðna viku, á meðan hán kennir busa­bekk stærð­fræði í Mennta­skól­anum í Reykja­vík, spjallar við kollega sína á kaffi­stof­unni og mætir á fyr­ir­lestra í Háskóla Íslands. Það fylgir því óraun­veru­leika­til­finn­ing að sinna venju­legu lífi á sama tíma og sam­fé­lags­miðlar loga í deilum um hinsegin fræðslu og kyn­fræðslu í skólum. Deilum sem hafa farið að bein­ast að fólki eins og Mars.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár