Að verða ónæm fyrir hatrinu

Arna Magnea Danks var fjögurra ára þegar hún vissi að hún væri stelpa í líkama stráks. Hún er stolt trans kona og vegna þess er ráðist á hana persónu­lega á samfélags­miðlum og hún nafn­greind þar sem reynt er að niður­lægja hana og henni jafnvel óskað dauða. Fulltrúar Samtak­anna 22 mættu á fyrir­lestur sem Arna hélt um málefni trans fólks og reyndu að sannfæra fundar­gesti um hvað trans fólk væri hættulegt.

Finnur styrkinn
Finnur styrk­inn Arna Magnea hóf bar­átt­una fyrir sjálfri sér þegar hún var fjög­urra ára gömul og finnur í dag styrk í því að geta verið hún sjálf. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Það er eins og pottlokið sé farið af en það er búið að krauma og sjóða ansi lengi,“ segir Arna Magnea Danks, 53 ára trans kona, um þá haturs­fullu umræðu um hinsegin fólk, sér í lagi trans fólk, sem hefur farið stig­vaxandi að undan­förnu. 

En Arna er ekki bara trans kona; hún er móðir, leikkona, áhættu­leikstjóri, grunn­skóla­kennari og meistara­nemi. Hún er baráttu­kona, talar skýrt fyrir réttindum hinsegin fólks en hefur að undan­förnu ekki síst þurft að tala skýrt fyrir eigin tilvist; ráðist er á hana persónu­lega á samfélags­miðlum og hún nafn­greind þar sem reynt er að niður­lægja hana og henni jafnvel óskað dauða.

Kom út úr skápnum 47 ára

„Ég ólst upp við töluvert ofbeldi. Eins ömurlegt og það er þá er ekkert af því sem þetta fólk segir neitt sem ég hef ekki fengið að heyra áður. Ég er líka að verða svolítið ónæm fyrir hatrinu. …

Kjósa
48
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Sjá meira

GreiningHinsegin bakslagið

Ef börnum verður ekki breytt með ofbeldi, verður þeim ekki breytt með fræðslu

Sérfræðingar í hinsegin fræðum kryfja atburði síðast­lið­inna daga og aðdrag­andann að því, sem hefur átt sér stað bæði hér heima og erlendis. Þetta eru þær Gyða Margrét Péturs­dóttir prófessor, Arna Magnea kennari, Birta Ósk Hönnu­dóttir meistara­nemi og Jessica Lynn, baráttu­kona fyrir réttindum trans fólks. Þær segja íhaldsöfl standa frammi fyrir vanda og þá þurfi að leita að blóra­bögglum.

11 mín. lestur

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • "Í stóra samhenginu skiptir þetta fólk ekki neinu máli. Þeirra álit á mér skiptir engu. Ég er ekki að berjast við þau út af þeim heldur fólkinu sem er þarna mitt á milli, sem kannski þekkir engan sem er trans, þannig að við missum það ekki yfir í hatrið."
    Þá væri kannski réttast að Arna þessi væri ekki að fara um alla samfélagsmiðla og saka fólk um hatur, ofbeldi, að vera nasistar og þaðan af verra. Ég held að sú taktík sé ekki í samræmi við þetta yfirlýsta markmið. Það sé frekar gert til að fá stundarfróun sem fæst með því að refsa fólki.
    -14
    • Anna Óskarsdóttir skrifaði
      þá skilur þú ekki óþverraaskapinn sem hún á við að glíma. Þá finnst þér allt í lagi að fólk eins og þetta lið sem farið hefur með himinskautum undanfarnar vikur sé bara allt i lagi. Það sé bara allt í lagi að traðka á þeim börnum og ungmennum sem upplifa sig trans
      7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hinsegin bakslagið

ViðtalHinsegin bakslagið

„Þetta var ég. Ég er ekki með typpi, ég var ekki nakin og ég er ekki karlmaður“

Veiga Grétars­dóttir er trans konan sem fór í sund í Grafar­vogslaug í síðustu viku og nýtti sér kvenna­klefann á sama tíma og stúlkur í skóla­sundi. Nokkrar stúlknanna hlógu að henni og leið Veigu eins og hún væri sirkusdýr. Hún ákvað að gera athugasemd við kennara þeirra og hélt að þar með væri málið úr sögunni en hávær orðrómur, byggður á lygum, fór af stað.
ViðtalHinsegin bakslagið

„Ég er hrætt við að fólk finni mig í fjöru“

„Sjá þau ekki að heimurinn minn er að hrynja?“ hefur Mars M. Proppé spurt sig síðastliðna viku, á meðan hán kennir busabekk stærð­fræði í Mennta­skólanum í Reykjavík, spjallar við kollega sína á kaffi­stofunni og mætir á fyrir­lestra í Háskóla Íslands. Það fylgir því óraunveruleika­tilfinning að sinna venjulegu lífi á sama tíma og samfélags­miðlar loga í deilum um hinsegin fræðslu og kynfræðslu í skólum. Deilum sem hafa farið að beinast að fólki eins og Mars.

Mest lesið undanfarið ár