Hvalveiðiskipin haldin til veiða

Síðdegis í gær héldu skip Hvals hf., Hvalur 8 og Hvalur 9, til veiða frá hval­stöð­inni í Hval­firði. „Von­brigði,“ segir fram­kvæmda­stjóri sjáv­ar­vernd­un­ar­sam­tak­anna Hard to Port. Ljós­mynd­ari frá þeim fylgd­ist með brott­för skip­anna handan raf­magns­girð­ingar.

Hvalveiðiskipin haldin til veiða
Út á miðin Hval­veiði­skipin tvö á leið til veiða síð­degis í gær. Auk áhafna eru eft­ir­lits­menn frá Fiski­stofu um borð sem munu taka upp veið­arnar. Mynd: Boris Niehaus/Hard To Port

Skip Hvals hf., Hvalur 8 og Hvalur 9, héldu til veiða frá hval­stöð­inni síð­degis í gær. Þau sigldu lygnan sjó út Hval­fjörð­inn, hlaðin sprengju­skutlum til veiða á lang­reyðum undan ströndum Íslands. Fyr­ir­tækið hefur leyfi til veiða á 161 dýri í ár.

Á förumKristján Loftsson, for­stjóri Hvals, ekur frá hval­stöð­inni skömmu áður en skip hans tvö héldu til veiða.

Til stóð að ver­tíð Hvals hf. hæf­ist í júní en degi áður en skipin héldu út á miðin ákvað Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra að stöðva veiðar tíma­bundið. Tímann til hausts átti að nýta til að ganga úr skugga um að hægt væri að veiða lang­reyðar í sam­ræmi við lög um dýra­vel­ferð. Fagráð um dýra­vel­ferð hafði nokkru áður kom­ist að því að slíkt væri ómögu­legt með þeim aðferðum og við þær aðstæður sem veið­arnar eru stund­aðar.

Starfs­hópur sem Svandís skip­aði skil­aði skýrslu í lok ágúst og taldi „ekki unnt að úti­loka“ að til­lögur Hvals hf. að umbótum við veið­arnar „verði betur til þess fallnar en eldri aðferðir að fækka frá­vikum“. Umbæt­urnar, sem til­teknar eru í nýrri reglu­gerð, fel­ast m.a. í að nota ljós við mið, að skjóta aðeins á dýrin ef færið er innan við 25 metrar, að stunda veiðar ein­göngu í dags­birtu, að skima eftir kálfum í fylgd dýra sem skyttur hafa í sigt­inu og í hert­ara eft­ir­liti og skrán­ingu frá­vika við veið­arnar.

Svandís ákvað, í ljósi nið­ur­stöðu starfs­hóps­ins, að heim­ila veiðar á ný. Var sú ákvörðun harð­lega gagn­rýnd og komu tvær konur í veg fyrir brott­för skipa Hvals hf. frá Reykja­vík­ur­höfn í byrjun viku með því að koma sér fyrir í tunnum í möstrum skip­anna. Þar dvöldu þær í 33 klukku­stundir.

Við Reykja­vík­ur­höfnTvær konur stöðv­uðu brott­för hval­veiði­bát­anna tveggja frá Reykja­vík­ur­höfn með því að koma sér fyrir í möstrum þeirra í 33 klukku­stundir.

Er þær höfðu komið niður, eftir að lög­regla hafði ítrekað reynt að fá þær til þess, voru vélar skip­anna ræstar og þeim siglt að hval­stöð­inni í Hval­firði þar sem veið­ar­færi og vistir voru teknar um borð. Um klukkan 17 í gær héldu þau svo út á miðin. Auk áhafnar er einnig eft­ir­lits­maður frá Fiski­stofu um borð sem mun líkt og á seinni hluta síð­ustu ver­tíðar taka upp veið­arnar.

Í fyrra­sumar fylgd­ust félagar í Hard to Port náið með í hvert skipti sem lang­reyður var dregin á land í hval­stöð­inni. Þeir mynd­uðu m.a. þegar fóstur voru skorin úr kúm, dýr með marga sprengju­skutla í sér og þegar ósprungnir skutlar voru fjar­lægðir úr skrokkum þeirra.

Sprungu ekkiÁ síð­ustu ver­tíð voru dæmi um að skutlar sprungu ekki og að skjóta hafi þurft dýr ítrekað.

Nú hefur Hvalur hf. komið upp sterk­byggðum raf­magns­girð­ingum umhverfis hval­stöð­ina og ber óvið­kom­andi, þ.e. þeim sem ekki vinna hjá fyr­ir­tæk­inu, að halda sig utan hennar – í meiri fjar­lægð frá hval­skurð­ar­plan­inu en áður.

„Það eru mikil von­brigði og veldur áhyggjum að sjá að tvö eld­gömul skip Hvals hf. hafa fengið leyfi til að veiða hvali á ný eftir allt það sem dregið hefur verið fram í dags­ljósið um starf­semi þeirra und­an­farið ár,“ segir Arne Feu­er­hahn, fram­kvæmda­stjóri Hard to Port, við Heim­ild­ina. „Við getum ekk­ert gert nema vonað að óhag­stætt veður muni vernda hval­ina á kom­andi vikum.“

Leyfi í gildi út árið

Kristján Þór Júl­í­us­son, þáver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, end­ur­nýj­aði leyfi Hvals hf. til veiða á lang­reyðum árið 2019. Fyrstu þrjú árin var ekk­ert veitt en í fyrra voru veiddar 148 lang­reyðar á 100 daga ver­tíð sem lauk 28. sept­em­ber. Leyfið gildir út árið 2023.

Raf­magnaðÍ vor var komið upp ramm­gerðri raf­magns­girð­ingu umhverfis hval­stöð­ina í Hval­firði.

Svandís setti í fyrra­sumar reglu­gerð um hert eft­ir­lit með veið­unum. Var það gert í kjöl­far þess að Hard to Port upp­lýsti um mörg frá­vik líkt og hér að framan er rakið. Við mynda­véla­eft­ir­lit það sem hófst síð­ari hluta ver­tíð­ar­innar kom í ljós að veiðar stóðu í ein­hverjum til­vikum fram í myrkur, að dýr voru skotin marg­sinnis og að dauða­stríð þeirra gat staðið klukku­stundum saman. Í að minnsta kosti einu til­viki sleit dýr sem skotið hafði verið línu og hvarf sært veiði­mönn­unum sjónum.

Ef vel ber í veiði fyrir áhafn­irnar á Hval 8 og Hval 9, má gera ráð fyrir að fyrstu lang­reyð­arnar verði dregnar á land í hval­stöð­inni í Hval­firði í kvöld eða nótt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár