Tilboð Leós til Tómasar: „Ég er líka eiginlega bara sorgmæddur“

Bæjar­fulltrúarnir sem störfuðu með Tómasi Ellert Tómassyni í meiri­hlut­anum í Árborg segjast hafa orðið misundrandi þegar þeir sáu fréttir af tilboðinu sem hann fékk. Enginn þeirra fékk viðlíka tilboð, frá Leó Árnasyni fjárfesti eða öðrum.

Undrun og sorg
Undrun og sorg Bæj­ar­full­trú­arnir sem voru í meiri­hlut­anum með Tómasi Ellert Tómassyni í Árborg 2018 til 2022 eru misundr­andi á til­boð­inu sem hann greindi frá að hann hefði fengið fyrir helgi. Einn, Sigurjón Vídalín Guð­munds­son úr Sam­fylk­ing­unni, seg­ist vera sorg­mæddur yfir mál­inu. Frá vinstri úr efri röð Arna Ír Gunn­ars­dóttir, Eggert Valur Guð­munds­son og Tómas Ellert. Neðri röð frá vinsti Sigurjón Vídalín Guð­munds­son og Helgi Sigurður Har­alds­son.

„Meinarðu hvort þetta hafi komið mér á óvart? Ég veit ekki hvað ég að segja en jú: Þetta kom mér á óvart,“ segir Eggert Valur Guðmundsson, fyrr­verandi bæjar­fulltrúi Samfylkingarinnar í Árborg, aðspurður um hvað honum fannst þegar hann sá fréttir af tilboðinu sem Tómas Ellert Tómasson, fyrr­verandi bæjar­fulltrúi Miðflokksins í Árborg, segist hafa fengið frá fjár­festinum Leó Árnasyni árið 2020. Heimildin greindi frá málinu fyrir helgi. 

Tómas sagði frá því að hann hefði fengið tilboð frá Leó þegar hann var bæjar­fulltrúi í meirihlutanum á Selfossi árið 2020. Tilboðið gekk út á það, sagði Tómas, að hann og flokkur hans, Miðflokkurinn, áttu að fá fjárhags­lega aðstoð í sveita­stjórnar­kosningunum árið 2022 gegn því að hann stuðlaði að því að sveitar­félagið Árborg félli frá kaupum á húsi Lands­bankans á Selfossi. Enginn af hinum bæjar­fulltrúunum í Árborg, sem voru í meirihlutanum með Tómasi, sögðust í greininni hafa fengið sambærileg tilboð og Tómas vegna sölunnar á Lands­bankahúsinu. 

Leó neitar að hafa gert Tómasi skilyrt tilboð um fjárhags­aðstoð gegn því að fá pólitíska fyrir­greiðslu frá honum. 

„Það eru stórir pen­ingar í húfi, hvort sem það eru lóðir eða aðrar eignir.“

Eggert Valur, sem í dag er sveita­stjórnar­maður í Rangár­þingi ytra á Suður­landi, segist aldrei hafa séð eða heyrt af slíku tilboði áður. „Ég er oddviti Rangár­þings ytra og er búinn að vera í sveita­stjórnar­málum meira eða minna frá árinu 1998 og þetta er alveg unique fyrir mér. Ég held að það eigi nú við um fleiri í kringum mig sem hafa unnið í þessum geira.“

Heimildin greindi frá því fyrr í dag að Tómas hefði verið boðaður í skýrslu­töku hjá héraðs­saksóknara vegna málsins. 

Sigurjón upplifir sorg

Sigurjón Vídalín Guðmundsson, sem var bæjar­fulltrúi Á-listans en er í dag bæjar­fulltrúi fyrir Samfylkinguna, segist hafa orðið mjög undrandi. „Þetta kom mér verulega á óvart; ég átti ekki von á þessu.“

Hann segir við Heimildina að hann hafi upplifi sorg út af málinu. „Ég hef alveg upplifað það að svona stórir aðilar hafa reynt að þrýsta á mann til að láta mál ganga hratt fyrir sig. Þá gildir að standa í lappirnar. Ég var alltaf mjög skýr á því að ekkert yrði þvingað í gegnum mig. Ég var nú bæði bara mjög hugsi og ég er líka eiginlega bara sorg­mæddur ef þetta er eins og þetta lítur út fyrir að vera. Ef þetta orðið þannig að stórir aðilar séu farnir að bera fé á kjörna fulltrúa til að reyna að fá sitt í gegn.“

Helgi ekki alveg eins undrandi 

Helgi Sigurður Haraldsson úr Framsóknar­flokknum var ekki alveg eins undrandi og Eggert Valur og Sigurjón. „Ég eiginlega veit það ekki. Já, að hluta til. Kannski með þetta tiltekna dæmi en það kemur ekkert á óvart að eitthvað svona hafi verið í gangi einhvers staðar. Mér kemur ekkert á óvart að það sé verið í svona fyrir­greiðslu til að reyna að hafa áhrif á kjörna fulltrúa. Heimurinn er lítill. Svo er spurning hvort farið sé alla leið eða þetta bara reynt. Það eru stórir peningar í húfi, hvort sem það eru lóðir eða aðrar eignir.“

Helgi Sigurður segist furða sig á því að einhverjum detti í hug að gera slíkt tilboð og halda að það komi ekki upp á yfir­borðið. 

Ekki náðist í Örnu Ír Gunnars­dóttur úr Samfylkingunni til að fá viðbrögð hennar við umfjölluninni. 

Hinir fengu engin tilboð 

Heimildin spurði hina bæjar­fulltrúana í þáverandi meirihluta að því í síðustu viku, áður en umfjöllunin um tilboð Leós var birt, hvort þeir hefðu einhvern tímann fengið sambærileg tilboð og Tómas  lýsir á sínum ferli í stjórn­málum. Spurning Heimildarinnar til bæjar­fulltrúanna var almenn og var þeim ekki sagt frá máli Tómasar þegar spurningin var borin upp við þá.   

Bæjar­fulltrúarnir fjórir sögðu allir nei við þessari spurningu. „Ég segi bara nei við spurningunni hvað mig snertir,“ sagði Eggert Valur  úr Samfylkingunni.

Samflokks­kona hans, Arna Ír Gunnars­dóttir, sagði að slíkt tilboð hafi aldrei verið lagt fyrir hana. „Mig rekur ekki minni til þess og held að ég geti sagt bara nei. Kannski er það út af því að ég er kona og þeir, karlarnir, hringja minna í konur. Mögulega hefur þetta líka eitthvað með það að gera hvaða strauma maður sendir frá sér.“

Sigurjón Vídalín, sagðist aldrei hafa fengið boð frá neinum sem snýst um óeðlilega fyrir­greiðslu. 

Helgi Sigurður úr Framsókn tók í sama streng. „Ég hef aldrei upplifað slíkt.“ 

Miðað við þetta var Tómas eini bæjar­fulltrúinn sem fékk tilboð frá Leó og Sigtúni. Ástæðan fyrir þessu kann meðal annars að liggja í persónu­legum tengslum þeirra sem ná áratugi aftur í tímann en þeir eru æsku­félagar frá Selfossi og fyrr­verandi samstarfs­menn í Sjálfstæðis­flokknum. 

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sigtún, Selfoss og nýi miðbærinn

SkýringSigtún, Selfoss og nýi miðbærinn

Leyndin um innan­húss­deilurnar í Sjálfstæðis­flokknum í Árborg

Dramatísk atburðarás átti sér stað í Árborg í lok maí þegar fráfar­andi bæjar­stjóri, Fjóla Kristins­dóttir, sagði sig úr flokknum þegar hún átti að gefa eftir bæjarstjóra­starfið til Braga Bjarna­sonar. Deilurnar á milli Fjólu og Braga ná meira en tvö ár aftur í tímann til prófkjörs­baráttu í flokknum fyrir síðustu sveitar­stjórnar­kosningar.
ViðtalSigtún, Selfoss og nýi miðbærinn

Bauð kjörnum fulltrúa fjárhags­aðstoð í skiptum fyrir pólitískan stuðning

Leó Árnason, fjár­festir og forsvars­maður fasteigna­félagsins Sigtúns á Selfossi, gerði bæjar­fulltrúa tilboð árið 2020. Bæjar­fulltrúinn, Tómas Ellert Tómasson, átti að beita sér fyrir því að sveitar­félagið hætti við að kaupa hús Lands­bankans. Tilboðið fól í sér að Sigtún myndi greiða fyrir kosninga­baráttu Miðflokksins.

12 mín. lestur

ÚttektSigtún, Selfoss og nýi miðbærinn

Svona eignast útgerðar­maður bæ

Nýr miðbær hefur risið á Selfossi á síðustu árum og stendur til að stækka hann enn frekar. Á bak við fram­kvæmd­irnar eru Leó Árnason athafna­maður og Kristján Vilhelmsson, stofnandi Samherja. Umsvif þeirra á Selfossi eru mun meiri og snúa meðal annars að áformum um byggingu 650 íbúða í bænum. Bæjar­fulltrúi minni­hlutans, Arna Ír Gunnars­dóttir, segir erfitt fyrir sveitar­félagið að etja kappi við fjár­sterka aðila og lýðræðis­hallinn sé mikill.

17 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár