Ráðgátan um holurnar í Geirþjófsfirði upplýst

Nátt­úru­leg öfl eru talin hafa myndað hol­urnar djúpu og dul­ar­fullu í Geir­þjófs­firði inn af Arn­ar­firði. En höf­undar nýrrar rann­sóknar á til­urð þeirra úti­loka hins vegar ekki með algjörri vissu að skrímsli hafi komið þar við sögu.

Ráðgátan um holurnar í Geirþjófsfirði upplýst
Dul­ar­fullt Á dýpt­ar­korti sem Köf­un­ar­þjón­ustan vann eftir leið­angur sinn í fyrra má sjá hol­urnar djúpu í Geir­þjófs­firði vel. Mynd: Náttúrufræðingurinn

Rækju­sjó­menn höfðu lengi tekið eftir mis­dýpi inn­ar­lega í Geir­þjófs­firði sem er einn af suð­ur­fjörðum Arn­ar­fjarðar. Í reglu­bundnum dýpt­ar­mæl­ingum Árna Frið­riks­sonar, rann­sókn­ar­skips Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar, í upp­hafi ald­ar­innar var ákveðið að und­ir­lagi Guð­mundar Bjarna­sonar skip­stjóra rann­sókn­ar­skips­ins að mæla langt inn eftir Geir­þjófs­firð­inum. Í ljós kom að um mið­bik fjarð­ar­ins var að finna holur í botns­et­inu.

Þetta eru engar smá­vegis holur, sú stærsta er 280 metrar í þver­mál og 20 metrar á dýpt. Botninn umhverfis hol­urnar er á rúm­lega 70 metra dýpi. Þessar nið­ur­stöður hafa vakið áhuga margra og ýmsar kenn­ingar verið settar fram um upp­runa þeirra. „Það voru ein­hver kvik­indi þarna sem maður sá ekki almenni­lega, eitt­hvað sem var eldsnöggt að forða sér þegar komið var nálægt því,“ sagði Árni Kópsson kaf­ari sem fór sum­arið 2011 í skrímsla­rann­sókn­ar­leið­angur í Geir­þjófs­fjörð í Arn­ar­firði. Með í för var skrímsla­fræð­ing­ur­inn Þor­valdur Frið­riks­son en hann safnar skrímsla­sögum og sagði í sam­tali við Frétta­blaðið eftir leið­ang­ur­inn, sem Skrímsla­setrið á Bíldudal stóð að, að margar þeirra væru tengdar svæðum í námunda við hol­urnar.

Fjörður í fjalla­salGeir­þjófs­fjörður er einn af Suð­ur­fjörðum í Arn­ar­firði, langur og mjór fjörður, um 10 km frá Ófæru­nesi þar sem hann mætir Trostans­firði. Há fjöll liggja að firð­inum á báða bóga og brattar hlíðar niður í sjó.

Árni sagði að afrakstur ferð­ar­innar renndi stoðum undir þá kenn­ingu frekar en að afsanna hana. Í frétt Vísis voru raktar nokkrar skríma­slögur. Meðal slíkra sagna sem til eru úr Arn­ar­firði er frá­sögn frá fyrri hluta síð­ustu aldar af skrímsli sem gekk á land og gerði árás á bæinn Krók sem var æsku­heim­ili Árna Frið­riks­sonar snemma á síð­ustu öld.

Árni varð síðar frum­kvöð­ull í fiski­fræðum á Íslandi og er skip Haf­rann­sókna­stofn­unar, sem kort­lagði hol­urnar í upp­hafi ald­ar­innar, nefnt eftir honum. „En það eru ekki allar sög­urnar svo gamlar, til dæmis er til til­tölu­lega nýleg frá­sögn af skrímsli með rautt fax sem sást þarna í Arn­ar­firð­inum,” sagði nafni hans Kópsson við Frétta­blaðið.

Og nú hefur svæðið verið rann­sakað enn frekar og nið­ur­stöður þeirrar rann­sóknar eru birtar í nýjasta hefti Nátt­úru­fræð­ings­ins.

Ná niður á 97 metra dýpi

Köf­un­ar­þjón­ustan ehf., fyr­ir­tæki í eigu Árna Kóps­sonar, kann­aði hol­urnar nánar síð­asta haust. Á dýpt­ar­korti sem unnið var með fjöl­geisla­mæli og set­þykkt­ar­mæli, má sjá þrjár stórar holur og þrjár minni. Allt eru þetta holur sem Haf­rann­sókn­ar­stofnun hafði einnig séð í sínum leið­angri fyrir tæpum ald­ar­fjórð­ungi.

Botninn á mæl­inga­svæð­inu, sem er um mið­bik fjarð­ar­ins, er nokkurn veg­inn sléttur á 69 til 74 metra dýpi, en hol­urnar ná niður á allt að 93 metra dýpi. Mynd­irnar gefa til kynna að hliðar hol­anna séu brattar og háar. Þegar kort Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar og kort Köf­un­ar­þjón­ust­unnar eru borin saman, segir í grein Nátt­úru­fræð­ings­ins, virð­ist ljóst að hrun hafi orðið eftir að Árni Frið­riks­son fór um svæðið árið 2002.

Hér varð hrunHola 4 árið 2002 til vinstri og árið 2022 til hægri. Ljóst virð­ist að efni úr hrygg í suð­ur­jaðri stóru hol­unnar hefur flætt til norð­urs inn í hol­una og skilið eftir sig nokkurn veg­inn hring­laga brotsár.

Setlögin á botni Geir­þjófs­fjarðar eru einkum talin hafa mynd­ast við upp­hleðslu fín­korn­aðs fram­burðar frá landi eftir ísöld. Setið hefur, að því er segir í grein Nátt­úru­fræð­ings­ins, sléttað það lands­lag sem fyrir var og myndað flatan og til­tölu­lega sléttan botn í dýpri hluta fjarð­ar­ins. Holurnar dul­ar­fullu hafa síðan mynd­ast í þess­ari set­sléttu.

Vökvi, en hvaða vökvi?

„Hvað veldur því að holur graf­ast í stafla af set­lögum á 70 metra dýpi í þröngum og kyrrum firði? Og hvað veldur því að gröft­ur­inn virð­ist hafa átt sér stað eftir að setið hafði hlað­ist upp á botn­inum? Spyrja höf­undar grein­ar­innar, jarð­fræð­ing­arnir Kjartan Thors og Guðbjörn Mar­geirs­son.

Ljóst virð­ist að vökva­flæði af ein­hverju tagi komi við sögu. En hvers kyns vökva? Þeir segja í grein sinni að erfitt sé að ímynda sér að hreyf­ingar sjávar í Geir­þjófs­firði hafi á ein­hverjum tíma, seint á nútíma, byrjað að mynda hvirfla um mið­bik fjarð­ar­ins, svo öfl­uga að þeir gætu borað sig niður í gegnum setið. Slíkir hvirf­lar hefðu að auki þurft að vera stað­bundnir um langt skeið og á mörgum stöðum.

„Miklu lík­legra er að vökva­streymi hafi borist upp í gegnum setið,“ skrifa þeir í nið­ur­stöðum sínum. Slíkt streymi hefði komið fín­korna botns­et­inu í svif­lausn sem hefði borist burt með straumum, aðal­lega sjáv­ar­falla­straumum. Vökvinn hefði getað verið vatn, heitt eða kalt. „Hér verður ekki ráð­ist í hugs­an­legar skýr­ingar á vatns­upp­sprettu á mörgum stöðum í miðjum Geir­þjófs­firði,“ halda þeir áfram. Þess megi þó geta að heitt vatn finnst á nokkrum stöðum í nágrenn­inu. Til dæmis finnst það í Dufans­dal, og einnig í Reykj­ar­firði, þar sem það er meðal ann­ars notað í sund­laug. Þá nefna þeir einnig að við rann­sókn­ar­bor­anir í kalk­þör­unga­set­lög árið 2000 fékkst volgur kjarni af botni í vest­an­verðum Trostans­firði.

Helsta búsvæði skrímsla

Sú stað­reynd að umtals­vert magn efnis hefur færst til í einni hol­unni bendi til þess að kerfið sé virkt. Ástæða hruns­ins í og við hol­una gæti hafa verið sú að ný upp­spretta vökva hafi mynd­ast við brún hol­unnar sem fyrir var. Hring­laga jaðar hrun­svæð­is­ins gæti hafa orsakast af upp­sprettu í miðjum „hringnum“.

„Hér að framan er leitað að þekktum nátt­úru­legum öflum sem gætu skýrt myndun holn­anna í Geir­þjófs­firði,“ skrifa þeir Kjartan og Guðbjörn að end­ingu. „Skylt er þó að nefna að svæðið um mið­bik Geir­þjófs­fjarðar má telja helsta búsvæði skrímsla á land­inu (Þor­valdur Frið­riks­son, munnl. uppl.), og því verður ekki full­yrt með algjörri vissu að myndun holn­anna sé tengd „nátt­úru­legum“ ferlum.“

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Haraldur Sigurdsson skrifaði
    Merkilegt er að höfundar taka ekki til greina þá skýringu, sem er sennilegust til að túlka þessa pytti. Sú skýring er að þetta séu katlar sem eftir verða þegar mjög stórir borgarísjakar festast í mjúku sjávarseti á botni í firðinum, bráðna og hverfa.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár