Sorpkvarnir alls engin töfralausn

Umhverfis­stofnun, Heilbrigðis­eftirlit Reykja­víkur og Veitur leggjast öll gegn notkun sorp­kvarna til að losa sig við lífrænan úrgang. Áhugi á sorp­kvörnum hefur aukist í kjölfar nýs sorp­flokkunar­kerfis þar sem lífrænn úrgangur er flokkaður sér. Sérfræðingur hjá Umhverfis­stofnun segir að setja megi spurningar­merki við lögmæti þess að nota kvarnirnar frekar en að flokka. Söluaðili neitar að tjá sig.

Vesen
Vesen Sumum finnst vesen að flokka líf­rænan úrgang. En notkun sorp­kvarna gæti skapað enn meira vesen. Mynd: Shutterstock

Flestir kannast við að hafa horft á bandarískar bíómyndir þar sem matar­leifarnar eru einfald­lega settar í vaskinn þar sem þær eru síðan maukaðar og renna út í fráveitu­kerfið. Ýmsum hefur því þótt freistandi tilhugsun að fá sér sorpkvörn í vaskinn nú þegar flokka þarf lífrænan úrgang sérstak­lega, sem sumum finnst tómt vesen. 

Samkvæmt Umhverfis­stofnun, Heilbrigðis­eftirliti Reykja­víkur og Veitum er það hins vegar alls ekki góð hugmynd að senda matar­leifarnar í íslenskt veitu­kerfi, jafnvel þótt þær séu niður­hakkaðar í vatns­mauki. 

Sorp­kvarnir eru raunar ekki algengar á íslenskum heimilum. Um er að ræða rafmagns­tæki sem er sett undir eldhús­vask og malar það sem í hana er látið. Nauðsynlegt er að láta vatn renna samhliða því að matar­leifar eru settar í sorp­kvörnina, og úrgangurinn rennur síðan út í frárennslið. 

Sorp­kvörn undir vaski

Söluaðili vill ekki tjá sig

RÚV greindi frá því í liðinni viku að Stein­grímur Örn Ingólfsson, framkvæmda­stjóri fyrir­tækisins Kvarna, segi áhuga og eftir­spurn eftir sorp­kvörnum hafa aukist með nýju sorp­flokkunar­kerfi þar sem lífrænn úrgangur er flokkaður sér. Hins vegar bendi Veitur á að fráveitu­kerfið sé ekki í stakk búið til að taka á móti úrgangi úr sorp­kvörnum.

Þegar blaða­maður Heimildarinnar hafði samband við Steingrím Örn vildi hann hins vegar ekkert tjá sig um sorp­kvarnir, sagði að fyrir­tækið sem þau kaupa kvarnirnar af í Banda­ríkjunum hafi ráðlagt þeim að fara ekki í rökræður um kvarnirnar í fjöl­miðlum, og vísaði einfald­lega á aðsenda grein frá eiganda Kvarna sem birtist í Morgun­blaðinu árið 2017. 

Hætta á stíflum og tæringu lagna

Fyrr það sama ár, 2017, gaf skrif­stofustjóri skrif­stofu umhverfis­gæða hjá Reykja­víkurborg út að hann teldi æskilegt að banna sorp­kvarnir sem þá voru sagðar vera að ryðja sér til rúms undir eldhús­vöskum á heimilum borgarbúa og hakka þar niður matar­leifar í holræsa­kerfið. Sagði hann kvarn­irn­ar auka veru­lega álag á frá­veitu­kerfið, álag sem það sé ekki hannað fyr­ir. Úrgang­ur­inn safn­ist fyr­ir í kerf­inu og valdi mikl­um kostnaði við hreins­un og jafn­vel skemmd­um.

Í framhaldi af þessu sendi Heilbrigðis­eftirlit Reykja­víkur frá sér yfir­lýsingu þar sem sagði að fráveitu­kerfinu sé ekki ætlað að ferja malaðar matar­leifar. „Því leggst það alfarið á móti eldhús­kvörnum í vöskum, hvort sem er í heima­húsum eða hjá matvæla­fyrirtækjum“, sagði í henni.

Þegar blaða­maður hafði samband við Heilbrigðis­eftirlitið nú vegna sorp­kvarna var svarið einfalt: „Frétta­tilkynningin frá 2017 á enn þá við, Heilbrigðis­eftirlitið leggst gegn notkun á sorp­kvörnum enda er fráveitu­kerfið ekki ætlað til þess að losa sig við matar­leifar. Aukið magn lífrænna efna getur haft í för með sér meiri hættu á stíflum, leitt til tæringar á lögnum auk þess sem álag eykst bæði á fráveitu­kerfið og viðtakann.“

Allt öðruvísi en í Bandaríkjunum

Jón Trausti Kárason, forstöðu­maður vatns- og fráveitu hjá Veitum, tekur undir þetta. Þá bendir hann á að þegar kemur að fráveitu­kerfum hér á landi sé allt annað upp á teningnum en til að mynda í Banda­ríkjunum. „Þar eru fráveitu­kerfin byggð upp þannig að fólk er beinlínis hvatt til að nota svona búnað. Þá er verið að horfa til þess að það er verið að nýta úrganginn sem fellur til á heimilum og fyrir­tækjum í metan­framleiðslu á enda­stöðinni í fráveitu­hreinsuninni. Þá eru allar lagnir hannaðar með það fyrir augum að það sé verið að setja þennan massa niður,“ segir hann. 

„Frá­veitu­kerfið eins og það er hannað í dag er ekki mót­töku­stöð fyrir úrgang“

Einnig segir Jón Trausti að matar­afgöngum sé mun betur komið til nýtingar sé honum safnað saman sem næst upprunanum en ekki í fráveitunni þar sem hann verði sótt­mengaður af skólpi. „Ef við ætlum í alvöru að ná árangri og stíga skref í þá átt að vera hér með hringrásar­hagkerfi þá verðum við að breyta um fókus. Þetta hráefni er verð­mætast þegar það er fangað sem næst uppruna sínum en ekki á endanum á fráveitu­hreinsi­stöðinni,“ segir hann.

Í aðsendu greininni frá eiganda og stofnanda Kvarna, Ingólfi Erni Steingríms­syni, frá 2017 segist hann vera að bregðast við neikvæðri umfjöllun og neikvæðum skrifum um sorp­kvarnir. Þar segir hann sorp­kvarnir hengdar sem bakari fyrir smið þegar kemur að vanda­málum við fráveitu­lagnir. Sorp­kvarnirnar tæti matinn niður í 2 milli­metra korn og hann spyr: „Lifa rottur og mýs á grugg­vatni eða vilja þær frekar naga bitana frá heimilum sem ekki hafa sorpkvörn?“

Spurning um lögmæti notkunar sorpkvarna

Birgitta Stef­ánsdóttir, sérfræðingur á sviði loftslags- og hringrásar­hagkerfisins hjá Umhverfis­stofnun, segir reglu­verkið í kringum úrgangsmál ekki gera ráð fyrir notkun sorp­kvarna. „Ef sorp­kvarnir eru notaðar tapast ákveðin verðmæti, það er að segja næringar­efnin í lífúrganginum nýtast ekki í gasgerð eða til fram­leiðslu á jarðvegs­bæti og því samræmast kvarnirnar illa hugmynda­fræði hringrásar­hagkerfisins. Næringar­efni sem eru losuð í viðtaka í fljótandi formi geta einnig leitt til ofauðgunar,“ segir hún. 

Þá bendir hún á að í lögum um meðhöndlun úrgangs kemur fram að „óheimilt er að losa úrgang annars staðar en á móttökustöð eða í sorpílát, þ.m.t. grenndar­gáma“. Í sömu grein sé reyndar undanþága fyrir heima­jarðgerð, en losun í fráveitu falli ekki undir skilgreiningu á heima­jarðgerð.

„Fráveitu­kerfið eins og það er hannað í dag er ekki móttökustöð fyrir úrgang. Úrgangnum er ekki safnað og hann fer ekki í viðeigandi meðhöndlun ef honum er skilað í veitu­kerfið. Eins og lögin standa í dag er einstaklingum og lögaðilum skylt að vera með sérstaka söfnun á lífúrgangi og setja má spurningar­merki við hvort kvarnirnar uppfylli þá kröfu,“ segir Birgitta og bætir við: „Þannig í stuttu máli hefur stofnunin hingað til verið nokkuð neikvæð í garð sorp­kvarna.“

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gudmundur Einarsson skrifaði
    Sorpkvarnir eru verra en ekkert og á að banna. Matarleifar sem eru malaðar niður í fráveitu eru sóun á moltu og gera vatnshreinsun dýrari. Slys og bilanir þegar aðskotahlutir hafna í þeim eru algeng og oft erfitt að laga. Rafmagnstæki undir vaski skapa óþarfa hættu fyrir notendur, vatn og rafmagn fara ekki saman.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár