Seldu vatnsréttindin með jörðinni

Vatns­rétt­indi fyr­ir­tæk­is­ins Icelandic Glacial eru metin á 11,5 til 18 millj­arða króna sam­kvæmt árs­reikn­ingi félags­ins fyrir árið 2021, en þau fylgdu jörð sem Sveit­ar­fé­lagið Ölfus seldi fyr­ir­tæki Jóns Ólafs­sonar á 100 millj­ónir króna árið 2006. Núver­andi bæj­ar­stjóri í Ölfusi telur vara­samt að gagn­rýna söl­una eftir á, en segir að það væri jákvætt ef Ölfus ætti enn jörð­ina að Hlíð­ar­enda.

Seldu vatnsréttindin með jörðinni
Vatns­rétt­indi Elliði Vign­is­son, bæj­ar­stjóri í Ölfusi, tel­ur vara­samt að gagn­rýna söl­u á vatns­rétt­indum Icelandic Glacial sem fylgdu jörð sem Ölfus seldi fyr­ir­tæki Jóns Ólafs­sonar, eft­ir á, en seg­ir að það væri já­kvætt ef Ölfus ætti enn jörð­ina að Hlíðar­enda. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Skömmu eftir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar árið 2006 sam­þykkti sveit­ar­stjórn Ölfuss að selja jörð­ina Hlíð­ar­enda í Ölfusi, með vatns­rétt­indum og öðrum til­heyr­andi gæðum, til félags­ins Icelandic Water Holdings ehf., sem hafði þá þegar um nokk­urt skeið tappað Icelandic Glacial vatn­inu á flöskur í iðn­að­ar­hús­næði á hafn­ar­svæð­inu í Þor­láks­höfn.

Sölu­verðið á sínum tíma nam 100 millj­ónum króna og seldi sveit­ar­fé­lagið fyr­ir­tæk­inu jörð­ina með vaxta­lausu kúlu­láni til fimm ára, sem þýddi að vatns­fyr­ir­tækið þurfti ekki að greiða sveit­ar­fé­lag­inu krónu fyrr en að fimm árum liðnum. Innan þess­ara fimm ára hafði Icelandic Water Holdings byggt stóra verk­smiðju að Hlíð­ar­enda og veð­sett jörð­ina, fyrir nærri 1.100 millj­ónir króna.

Vatnsréttindin metin á 11,5 til 18 milljarða 

Samkvæmt árs­reikn­ingi Icelandic Water Holdings fyrir árið 2021 voru vatns­rétt­indi fyr­ir­tæk­is­ins að Hlíð­ar­enda ein og sér metin á 87 millj­ónir banda­ríkja­dala, jafn­virði 11,5 millj­arða íslenskra króna. Þess er svo einnig getið í árs­reikn­ingnum að upp­fært mat erlends sér­fræði­fyr­ir­tækis á …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár