Morgunblaðssamstæðan kaupir prentvél Fréttablaðsins, sem fer líklega í brotajárn

Prent­smiðja Morg­un­blaðs­sam­stæð­unnar hefur keypt prent­vél Frétta­blaðs­ins, sem boðin var upp af þrota­búi Torgs. Guð­brandur Magn­ús­son fram­kvæmda­stjóri Lands­prents segir að félagið hafi aðal­lega ásælst pappír, prent­liti og tækja­búnað á borð við bindi­vélar og plast­vélar. Prent­vélin sjálf komi lík­lega til með að enda í brota­járni. Ef svo fer verður Lands­prent eina prent­smiðja lands­ins sem getur prentað frétta­blöð.

Morgunblaðssamstæðan kaupir prentvél Fréttablaðsins, sem fer líklega í brotajárn
Flutn­ingar Er ljós­mynd­ari á vegum Heim­ild­ar­innar kom að Ísa­fold­ar­prent­smiðju fyrir hádegið í dag var vinna hafin við að rífa niður prent­vél­ina og aðrar græjur sem áður til­heyrðu útgáfu­fé­lagi Frétta­blaðs­ins, en eru nú komnar í eigu Lands­prents. Mynd: h4fdís

Lands­prent, prent­smiðja Morg­un­blaðs­sam­stæð­unnar, hefur fest kaup á prent­vél Frétta­blaðs­ins og tengdar eignir úr þrota­búi Torgs ehf., útgáfu­fé­lags Frétta­blaðs­ins, sem lagði upp laupana fyrr á árinu.

Óskar Sig­urðs­son skipta­stjóri þrota­bús Torgs stað­festir þetta í sam­tali við Heim­ild­ina, en seg­ist ekki geta gefið upp kaup­verðið.

Guð­brandur Magn­ús­son fram­kvæmda­stjóri Lands­prents segir aðspurður í sam­tali við Heim­ild­ina að hann reikni ekki með því að prent­vélin sjálf verði rekin áfram, vænt­an­lega verði örlög hennar að verða að „ein­hverju brota­járni“. Prent­vélin hefur verið starf­rækt í við­bygg­ingu við Ísa­fold­ar­prent­smiðju í Garðabæ.

„Við tökum það sem við getum notað og hitt verður að ein­hverju brota­járni hugsa ég“
Guð­brandur Magn­ús­son
fram­kvæmda­stjóri Lands­prents

„Við vorum fyrst og fremst að ásæl­ast þarna vél­búnað og ýmsar rekstr­ar­vörur sem við gerðum til­boð í og því var tekið,“ segir Guð­brandur, sem vill ekki gefa upp hvað Lands­prent greiðir þrota­búi Torgs fyrir prent­vél­ina.

Hann segir að þær vörur sem Lands­prent ásæld­ist úr Ísa­fold­ar­prent­smiðj­unni hafi verið pappír, prent­litir, vél­bún­aður, pökk­un­ar­bún­aður úr pökk­un­ar­sal, bindi­vélar, plast­vélar og annar bún­aður sem fylgir prentun dag­blaða.  „Við vorum fyrst og fremst að gera til­boð í þessar vörur. Það var ekk­ert annað sem vakti fyrir okkur,“ segir Guð­brandur.

Prent­smiðjaÚr prent­smiðju Frétta­blaðs­ins í dag.

En hvað ætliði að gera, þið fáið vænt­an­lega fullt af vél­bún­aði sem varla nýt­ist nokkuð, er það? 

„Við tökum það sem við getum notað og hitt verður að ein­hverju brota­járni hugsa ég,“ segir fram­kvæmda­stjór­inn. Það er því útlit fyrir að Lands­prent verði eina prent­smiðjan á land­inu sem getur prentað frétta­blöð.

Ísa­fold­ar­prent­smiðja gerði einnig til­boð í prent­vél­ina, en það var lægra en til­boð Lands­prents. Kjartan Kjart­ans­son fram­kvæmda­stjóri prent­smiðj­unnar seg­ist ekki vilja ræða málið við Heim­ild­ina og vill heldur ekki gefa upp hversu hátt til­boð Ísa­fold­ar­prent­smiðju í prent­vél­ina og til­heyr­andi varn­ing var.

Dag­blaða­prentunÍ dag var haf­ist handa við að rífa niður prent­smiðj­una og flytja hana og aðrar vélar, þessar stærðar papp­írs­rúllur sem sjást í bak­grunni mynd­ar­innar hér að ofan og aðrar eignir sem Lands­prent hefur keypt úr húsa­kynnum Ísa­fold­ar­prent­smiðju.

Tengdir aðilar hafa hlaðið upp skuldum gagnvart Landsprenti

Móð­ur­fé­lag Morg­un­blaðs­sam­steypunnar heitir Þórsmörk. Útgáfu­fé­lagið Árvakur og Lands­prent eru bæði dótt­ur­fé­lög Þórs­merkur, í kjöl­far breyt­inga sem gerðar voru á sam­stæð­unni í sept­em­ber í fyrra, en áður var Lands­prent dótt­ur­fé­lag Árvakurs.

Við þessar breyt­ingar á upp­bygg­ingu sam­stæð­unnar lét Árvakur af hendi eignir sem voru metnar á 997 millj­ónir króna og skuldir upp á 721 milljón króna. Eignin sem færð var yfir var bók­fært virði Lands­prents, en skuldin sem færð­ist yfir á Þórsmörk var að uppi­stöðu skuld Árvakurs við Lands­prent, sem hefur vaxið stöðugt á síð­ustu árum.

Eftir skipt­ing­una fóru eignir Árvak­urs, sem á Morg­un­blað­ið, mbl.is og K100 og tengda miðla, úr tæp­lega 2,2 millj­örðum króna í 1,2 millj­arða króna og eignir Þórs­merkur hækk­uðu að sama skapi um tæpan millj­arð króna. Áhrifin á sam­stæðu Þórs­merkur voru lítil sem engin, enda verið að færa eignir og skuldir úr einum vasa í annan.

Lands­prentPrent­smiðja Lands­prents við Hádeg­is­móa er sú langstærsta á land­inu.

Árvakur er á meðal stærstu við­skipta­vina Lands­prents sem átti kröfur á tengd félög upp á 730,3 millj­ónir króna í lok árs 2021. Þær kröf­ur, sem voru á Árvak­ur, uxu um 410,2 millj­ónir króna á tveimur árum, frá byrjun árs 2020 og út árið 2021. Með því spar­aði Árvakur sér greiðslur tíma­bund­ið, en stórjók skuldir sínar við félag í sinni eig­u.

Með því að færa stærstan hluta af skuldum Árvakurs við Lands­prent upp í móð­ur­fé­lagið lækk­uðu skuldir sjálfs útgáfu­fé­lags­ins útgáfu­fé­lags­ins við prent­smiðj­una niður í 89 millj­ónir króna.


Fyr­ir­vari um hags­muni: Heim­ildin er gefin út í prentút­gáfu sem prentuð er í Lands­prenti.

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár