Ekki benda á mig, það voru undirmennirnir

Það getur reynst dýrt spaug að ljúga, ekki síst ef það er gert til að bjarga eigin skinni. Því fékk ráðu­neyt­is­stjóri danska varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins að kynn­ast eftir að hann reyndi að gera und­ir­menn sína ábyrga fyrir alvar­legum mis­tökum sem hann bar sjálfur ábyrgð á.

Ekki benda á mig, það voru undirmennirnir
Klúður Nokkur hneykls­is­mál hafa umleikið danska her­inn og varn­ar­mál Dan­merkur und­an­farin miss­eri. Mynd: AFP

Jakob Ellemann-Jensen varn­ar­mála­ráð­herra Dan­merkur og for­maður Venstre flokks­ins kom aftur til starfa í ráðu­neyt­inu 1. ágúst eftir hálfs árs veik­inda­leyfi. Í ráðu­neyt­inu biðu hans mörg mik­il­væg verk­efni, en eitt  þó sínu alvar­leg­ast: vopna­kaupa­málið svo­nefnda.

Vopna­kaupa­málið, Våbensagen eins og Danir kalla það, snýst um kaup á  hertólum. Í jan­úar á þessu ári samdi inn­kaupa­deild danska varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins, FMI, um kaup á lang­drægum fall­byssum og fleiri tækjum frá ísra­elska fyr­ir­tæk­inu ELBIT.

Afsök­un­ar­beiðniJakob Ellemann-Jensen varn­ar­mála­ráð­herra greindi frá því á frétta­manna­fundi 8. ágúst í að hann hefði beðið þingið afsök­unar á að hafa sagt þing­inu ósatt, hann væri sá sem bæri ábyrgð­ina.

Varn­ar­mála­ráðu­neytið hafði áður átt sam­skipti við þetta fyr­ir­tæki en árið 2015 komu nokkrir flokkar á danska þing­inu í veg fyrir að keypt yrðu þaðan vopn eftir útboð. Þess í stað keyptu Danir vopn frá franska fram­leið­and­anum Nexter.

Ástæða and­stöðu danskra þing­manna við kaupin frá ELBIT var sú að vopn frá þessu fyr­ir­tæki voru þá (og kannski  enn) notuð í átökum Ísraela og Palest­ínu­manna. ELBIT fór í fram­hald­inu í mál við danska ríkið og þau mála­ferli stóðu árum saman.

Frönsku vopnin til Úkraínu og danskir þingmenn til Ísraels

Vopnin frá Frökkum komu á til­settum tíma árið 2020, 15 Caesar lang­drægar fall­byssur ásamt til­heyr­andi flutn­inga­vögnum. Síðar pönt­uðu Danir 4 sams­konar fall­byssur til við­bótar, þær voru afhentar í byrjun þessa árs. 19. jan­úar á þessu ári ákvað danska rík­is­stjórnin að allar 19 Caesar fall­byss­urnar yrðu afhentar Úkra­ínu­mönnum til að aðstoða þá í bar­átt­unni gegn Rússum.

En áður en þessi ákvörðun um að senda Caesar vopnin til Úkraínu var tekin höfðu nokkrir yfir­menn FMI, ásamt litlum hópi þing­manna, farið til Ísraels. Sú ferð var farin í des­em­ber í fyrra. Opinbert til­efni ferð­ar­innar var að ná sam­komu­lagi við ELBIT varð­andi vopna­kaupin sem ekki varð af árið 2015 og ljúka því máli án afskipta dóm­stóla. Tveimur dögum fyrir jól 2022 var stað­fest að sam­komu­lag um þetta mál hefði náðst og ELBIT stað­festi sam­komu­lagið með bréfi til varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins skömmu síðar.

Það sem ekki var upp­lýst í kjöl­far þess­arar heim­sóknar Dananna til Ísraels var að í heim­sókn­inni höfðu þeir rætt við ELBIT um hugs­an­leg kaup á vopnum, þar á meðal lang­drægum fall­byssum, sams­konar og samið hafði verið um 2015, í samn­ingnum sem síðar hafði verið rift. Nú um stundir er langur afgreiðslu­frestur á slíkum tækjum og tólum en FMI hóp­ur­inn fékk um það upp­lýs­ingar í Ísra­els­heim­sókn­inni að hefðu Danir áhuga á slíkum kaupum væri hægt að afhenda vopnin með skömmum fyr­ir­vara.

Óskað eftir tilboði, svar barst sólarhring síðar

8. jan­úar sl. óskaði FMI eftir til­boði frá ELBIT um kaup á til­teknum vopna­bún­aði. ELBIT svar­aði um hæl, nánar til­tekið dag­inn eftir, tiboðið hljóð­aði upp á 1.7 millj­arð danskra króna (33 millj­arðar íslenskir). Sama dag sendi FMI minn­is­blað til ráðu­neyt­is­ins þar sem mælt er með að til­boði ELBIT verði tekið.

SkotÁ mynd­inni, sem tekin er í nóv­em­ber árið 2021, sýnir danski her­inn virkni Caesar lang­drægrar fall­byssu.

Hraðferð

25. jan­úar fór Jakob Ellemann-Jensen varn­ar­mála­ráð­herra fram á það við flokk­ana sem stutt höfðu nýlegt sam­komu­lag um varn­ar­mál að þeir sam­þykktu áður­nefnd vopna­kaup frá Ísrael. Frest­ur­inn til að segja af eða á var mjög skammur, um þrír sól­ar­hringar. Margir þing­menn voru ósáttir við þessa „hrað­ferð“ eins og einn þeirra komst að orði en sam­þykktu vopna­kaupin. Nokkrum dögum síðar fór Jakob Ellemann- Jensen í veik­inda­leyfi. Stað­geng­ill hans á ráð­herra­stóli var flokks­bróð­ir­inn Troels Lund Poulsen.

Rangar eða engar upplýsingar

Nokkru eftir að Jakob Ellemann-Jensen fór í veik­inda­leyfið komst vef­mið­ill­inn Altinget yfir gögn varð­andi vopnainn­kaupin. Þar kom fram að þing­menn höfðu fengið rangar, eða engar, upp­lýs­ingar um málið. Þingmenn vissu til dæmis ekki um óskir vopna­fram­leið­enda í Frakk­landi og Suður-Kóreu um að gera til­boð, og að beiðnum þess­ara fram­leið­enda hefði ekki verið svarað. Þingmenn vissu ekki heldur um „sátta­sam­komu­lagið“ við ELBIT.

Alvar­leg­ast var þó, að mati þing­manna, sú stað­reynd að Jakob Ellemann- Jensen hafði sagt þing­inu ósatt varð­andi tíma­mörkin á til­boð­inu frá ELBIT. Frest­ur­inn til að svara til­boð­inu var ekki örfáir sól­ar­hringar, eins og ráð­herr­ann sagði, heldur nokkrir mán­uðir. Það er þetta atriði sem setti allt í háa­loft. Stað­geng­ils­ráð­herr­ann Troels Lund Poulsen óskaði strax þegar málið komst upp eftir grein­ar­gerð og þar var allt það sem áður var nefnt stað­fest. 

Rak ráðuneytisstjórann og vill ítarlega rannsókn

Jakob Ellemann-Jensen fékk ekki mik­inn vinnu­frið eftir að hann kom til starfa í varn­ar­mála­ráðu­neyt­inu í byrjun þessa mán­aðar (ágúst). Á frétta­manna­fundi 8. ágúst greindi hann frá því að hann hefði beðið þingið afsök­unar á að hafa sagt þing­inu ósatt, hann væri sá sem bæri ábyrgð­ina. Ráð­herr­ann upp­lýsti jafn­framt að hann hefði óskað eftir sér­stakri grein­ar­gerð frá ráðu­neyt­is­stjór­anum Morten Bæk um máls­at­vik. Þegar hún kom í hendur ráð­herr­ans, og fjöl­miðlar hafa kom­ist yfir, reyndi ráðu­neyt­is­stjór­inn að koma sök­inni á und­ir­menn sína í ráðu­neyt­inu og  FMI.

Þú ert rekinn

Þetta yfir­klór ráðu­neyt­is­stjór­ans (orða­lag danskra fjöl­miðla) hrökk þó skammt og 11. ágúst rak Jakob Ellemann-Jensen Morten Bæk úr starfi. Morten Bæk varð ráðu­neyt­is­stjóri í varn­ar­mála­ráðu­neyt­inu árið 2020, en gegndi áður starfi ráðu­neyt­is­stjóra í umhverfis- og lofts­lags­ráðu­neyt­inu.

Danskir stjórn­mála­skýrendur segja sumir hverjir að með brott­rekstri ráðu­neyt­is­stjór­ans reyni ráð­herr­ann að frýja sig ábyrgð. Þótt það að segja þing­inu ósatt sé mjög alvar­legt, er að mati stjórn­mála­skýrenda, ekki lík­legt að það kosti Jakob Ellemann- Jensen ráð­herra­stól­inn, ástæðan er sú að stjórnin er meiri­hluta­stjórn, sem er reyndar óvenju­legt í Danmörku. 

Jakob Ellemann-Jensen hefur greint frá því að hann hafi þegar ákveðið að fram skuli fara ítar­leg rann­sókn á vopna­kaupa­mál­inu og hún verði í höndum utan­að­kom­andi aðila.

Ekki einsdæmi

Vopna­kaupa­málið er ekki eina vand­ræða­málið sem teng­ist varn­ar­mála­ráðu­neyt­inu og stofn­unum þess. Listinn er langur en hér eru örfá dæmi.

Í sept­em­ber árið 2009 birt­ist á net­inu, á arab­ísku, eins­konar svind­l­út­gáfa af bók­inni „Jæger – krig með eliten“ sem fyrr­ver­andi her­maður hafði skrifað. Í ljós kom að yfir­maður tölvu­mála hjá varn­ar­mála­ráð­inu (For­svarskomm­andoen) hafði „skrifað“.  Sá fékk reisupass­ann.

Annað dæmi: Danska þingið fékk marg­sinnis rangar upp­lýs­ingar um afdrif íra­skra fanga sem höfðu verið fangar herja banda­manna. Danski her­inn hafði „puntað uppá“ með­ferð­ina sem fang­arnir fengu, hún var marg­falt verri en her­inn greindi frá í upp­lýs­ingum til þings­ins.

Árið 2020 skilað eft­ir­lits­nefnd skýrslu um starf­semi Leyni­þjón­ustu hers­ins, FE. Lars Findsen for­stjóri Leyni­þjón­ust­unnar var sendur heim og sömu­leiðis ráðu­neyt­is­stjór­inn í varn­ar­mála­ráðu­neyt­inu. Þeir voru síðar sak­lausir fundnir en Lars Findsen var síðar ákærður fyrir að segja fjöl­miðla­fólki, og mömmu sinni, frá rík­is­leynd­ar­málum. Mála­ferlin hefj­ast í októ­ber næst­kom­andi. Claus Hjort Frederik­sen, fyrr­ver­andi varn­ar­mála­ráð­herra er ákærður fyrir sömu sakir, þau mála­ferli hefj­ast í nóv­em­ber á þessu ári.

Stóra gatið

Á síð­ustu 10 árum hefur danska rík­is­end­ur­skoð­unin marg­sinnis gagn­rýnt óreiðu og stjórn­leysi í fjár­málum hers­ins og varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins. Rannsókn sem fram fór í maí á þessu ári leiddi í ljós „gat“ uppá 38 millj­arða danskra króna. Stjórn­mála­skýr­andi dag­blaðs­ins Politi­ken sagði eina skýr­ingu á „gat­inu“ vera ákvarð­anir stjórn­mála­manna um að senda her­menn til útlanda, án þess að fjár­magn fylgdi. Yfir­stjórn hers­ins hefði slegið saman hæl­unum og notað pen­inga sem áttu að fara í við­hald á tækjum og húsum hers­ins. Afleið­ingin er sú að tækja- og húsa­kostur hers­ins hefur setið á hak­anum.

Í ágúst 2020 var hátt­settur yfir­maður í hernum dæmdur í þriggja mán­aða fang­elsi fyrir að að mis­nota stöðu sína og brot á þagn­ar­skyldu. Hann hafði í krafti stöðu sinnar séð til þess að kærasta hans fékk stöðu­hækkun innan hers­ins.

Dæmin eru fleiri, en vopna­kaupa­málið, sem er aðal­efni þessa pistils, er það nýjasta.

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár