„Ég er Köttari númer eitt“

Konráð Gíslason er eld­heitur aðdá­andi knatt­spyrnu­fé­lags Þróttar og hand­bolta­fé­lags Vals. Liðin tóku höndum saman á dög­unum þegar Konráð, sem aldrei er kall­aður annað en Konni, varð fimm­tugur og slógu upp hund­rað manna afmæl­is­veislu fyrir hann. Rauði lit­ur­inn er í miklu upp­á­haldi hjá honum sem og Pepsi Max.

Konráð Gíslason, Konni, bjó sem strákur við gamla Þrótt­ar­völl­inn við Sund. Þar var hann öllum stundum, mætti á alla fót­bolta­leiki. Í gegnum árin hefur harð­kjarni í Þrótt­ar­stúkunni annað veifið kallað hátt „Kaffi og …“ sem er svo botnað af öðrum sem þar sitja með „... Kooonnnniii“. Frasinn varð til eftir að Konni mætti ekki bara á leik­ina heldur líka í kaffið á eftir. 

Konnaborgarar í boði

Konni fagn­aði fimm­tugs­af­mæl­inu sínu þann 25. júlí. „Það var veisla hér,“ segir hann og vísar til sam­býl­is­ins þar sem hann býr og hefur búið á síðan hann var tví­tugur. Hann fór líka út að borða ham­borg­ara með starfs­manni á sam­býl­inu. En það var ekki allt. Önnur og stærri veisla var haldin honum til heið­urs í Vals­heim­il­inu þar sem Þrótt­arar og Valsmenn grill­uðu ham­borg­ara ofan í veislu­gesti, Konna­borg­ara. Ham­borg­arar sem seldir voru eftir leiki voru nefni­lega um tíma nefndir eftir honum. „Ynd­is­legt í …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Líf með Downs

„Ég safna grafskriftum“
ViðtalLíf með Downs

„Ég safna graf­skriftum“

Flestir Kefl­vík­ingar þekkja Davíð Má Guð­munds­son sem er 41 árs bor­inn og barn­fæddur Kefl­vík­ingur. Bróðir Davíðs segir hann með vin­sælli mönnum í Reykja­nesbæ og að bæj­ar­búar stoppi til að spjalla við hann þegar hann er á ferð­inni. Davíð er mik­ill safn­ari og safnar til að mynda laga­textum, krossum og graf­skriftum. Hann er söng­elskur og hefur tekið lagið með MC Gauta og Sölku Sól.
„Frábært að lifa lífinu eins og maður er“
ViðtalLíf með Downs

„Frábært að lifa líf­inu eins og maður er“

Katla Sif Ægis­dóttir hlaut gull­verð­laun í 50 metra skrið­sundi á Special Olympics í sumar. Katla Sif, sem er 23 ára, býr hjá for­eldrum sínum en stefnir á að fara í sjálf­stæða búsetu með vin­konu sinni fljót­lega. Henni finnst „dálítið hræði­legt“ að fóstrum sé eytt ef líkur eru taldar á Downs- heil­kenni hjá barn­inu og hefur hún upp­lifað for­dóma á eigin skinni.
„Mikilvægast er að hann fær að vera með“
ViðtalLíf með Downs

„Mik­il­væg­ast er að hann fær að vera með“

Sólný Páls­dóttir segir ekki hafa hvarflað að henni þegar Hilmir Sveins­son sonur hennar lá fyrir tólf árum í hita­kassa á Land­spít­al­anum að hann ætti eftir að verða fót­bolta- og körf­bolta­strákur. Hún segir mik­il­vægt að Hilmir hafi alltaf fengið að vera með í íþrótta­starf­inu í heimabæ þeirra, Grinda­vík og í gegnum íþrótt­irnar hafi hann eign­ast trausta vini.
„Fólk með Downs heilkenni getur lifað innihaldsríku lífi“
FréttirLíf með Downs

„Fólk með Downs heil­kenni getur lifað inni­halds­ríku lífi“

Fyrr á þessu ári var talið að síð­asta barnið með Downs-heil­kenni væri fætt á Íslandi en þá hafði ekk­ert barn með heil­kennið fæðst í rúm tvö ár. Síðan þá hafa hins vegar tvær stúlkur fæðst með Downs-heil­kenni. Sér­fræð­ingar segja þrýst á verð­andi mæður að fara í skimanir á með­göngu og að rang­hug­myndir ríki um líf með auka­litn­ing­inn.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár