Mynd: Unsplash

„Fólk með Downs heilkenni getur lifað innihaldsríku lífi“

Fyrr á þessu ári var talið að síð­asta barnið með Downs-heil­kenni væri fætt á Íslandi en þá hafði ekk­ert barn með heil­kennið fæðst í rúm tvö ár. Síðan þá hafa hins vegar tvær stúlkur fæðst með Downs-heil­kenni. Sér­fræð­ingar segja þrýst á verð­andi mæður að fara í skimanir á með­göngu og að rang­hug­myndir ríki um líf með auka­litn­ing­inn.

„Fólk með Downs-heil­kenni getur lifað inni­halds­ríku lífi eins og allir aðrir,“ segir Ingólfur Ein­ars­son, barna­læknir og sviðs­stjóri hjá Ráð­gjafar- og grein­ing­ar­stöð. Skortur sé á almennri þekk­ingu á Downs-heil­kenni í sam­fé­lag­inu. „Þegar fjallað er um ein­stak­linga með Downs-heil­kenni er yfir­leitt ein­blínt á nei­kvæðu hlið­arnar og á hvers konar stuðn­ing og þjón­ustu þeir þurfa á að halda.“ 

Á alþjóð­legum degi Downs-heil­kenn­is­ins í ár, 21. mars, var fjallað um áhyggjur fólks yfir því að síð­asta barnið með Downs-heil­kennið væri fætt á Íslandi. Ekkert barn með heil­kennið hafði þá fæðst hér á landi í rúm tvö ár. Ástæðan eru fóst­ur­skimanir þar sem ski­mað er eftir litn­inga­frá­vik­inu sem er Downs-heil­kennið. Þessar skimanir eru kynntar sem val en ýmsir verð­andi for­eldrar upp­lifa að þeim hafi nán­ast verið ýtt af fólki í heil­brigð­is­kerf­inu að ekki bara fara í skimun heldur í fram­hald­inu að láta rjúfa þung­un­ina ef barnið kemur til með að vera með Downs-heil­kennið. Tvær …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Líf með Downs

„Ég safna grafskriftum“
ViðtalLíf með Downs

„Ég safna graf­skriftum“

Flestir Kefl­vík­ingar þekkja Davíð Má Guð­munds­son sem er 41 árs bor­inn og barn­fæddur Kefl­vík­ingur. Bróðir Davíðs segir hann með vin­sælli mönnum í Reykja­nesbæ og að bæj­ar­búar stoppi til að spjalla við hann þegar hann er á ferð­inni. Davíð er mik­ill safn­ari og safnar til að mynda laga­textum, krossum og graf­skriftum. Hann er söng­elskur og hefur tekið lagið með MC Gauta og Sölku Sól.
„Frábært að lifa lífinu eins og maður er“
ViðtalLíf með Downs

„Frábært að lifa líf­inu eins og maður er“

Katla Sif Ægis­dóttir hlaut gull­verð­laun í 50 metra skrið­sundi á Special Olympics í sumar. Katla Sif, sem er 23 ára, býr hjá for­eldrum sínum en stefnir á að fara í sjálf­stæða búsetu með vin­konu sinni fljót­lega. Henni finnst „dálítið hræði­legt“ að fóstrum sé eytt ef líkur eru taldar á Downs- heil­kenni hjá barn­inu og hefur hún upp­lifað for­dóma á eigin skinni.
„Mikilvægast er að hann fær að vera með“
ViðtalLíf með Downs

„Mik­il­væg­ast er að hann fær að vera með“

Sólný Páls­dóttir segir ekki hafa hvarflað að henni þegar Hilmir Sveins­son sonur hennar lá fyrir tólf árum í hita­kassa á Land­spít­al­anum að hann ætti eftir að verða fót­bolta- og körf­bolta­strákur. Hún segir mik­il­vægt að Hilmir hafi alltaf fengið að vera með í íþrótta­starf­inu í heimabæ þeirra, Grinda­vík og í gegnum íþrótt­irnar hafi hann eign­ast trausta vini.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár