„Ég safna grafskriftum“

Flestir Kefl­vík­ingar þekkja Davíð Má Guð­munds­son sem er 41 árs bor­inn og barn­fæddur Kefl­vík­ingur. Bróðir Davíðs segir hann með vin­sælli mönnum í Reykja­nesbæ og að bæj­ar­búar stoppi til að spjalla við hann þegar hann er á ferð­inni. Davíð er mik­ill safn­ari og safnar til að mynda laga­textum, krossum og graf­skriftum. Hann er söng­elskur og hefur tekið lagið með MC Gauta og Sölku Sól.

„Stundum hringi ég í söngv­ara og bið þá að gefa mér söng­texta í pósti. Ég segi þá: „Ég er Davíð. Ég er söng­texta­safn­ari. Ég safna söng­textum frá öllu land­inu.“ Allir segja já,“ segir Davíð Már Guð­munds­son.

Hann tekur á móti blaða­manni á heim­ili sínu í útjaðri byggð­ar­innar sem áður hét Keflavík en kall­ast nú Reykja­nes­bær. Bjarni Reyr, yngri bróðir hans, er í heim­sókn hjá Davíð sem býr einn. Við hlið­ina á stofu­sóf­anum eru nokkrar tómar skjala­möppur en möpp­urnar sem eru inni í her­bergi eru fullar af blöðum með söng­textum. Þetta eru margar möppur. Sumir text­anna eru útprent­aðir en aðra hefur Davíð skrifað upp sjálfur. Hann hefur nefni­lega ekki síður gaman af því að skrifa en að safna söng­textum. Bjarni segir það lík­lega vera áhuga­mál númer eitt hjá Davíð, að skrifa. 

Söng með Sölku Sól

„Ég er núna að skrifa lög eftir Árna Johnsen. Hann er dáinn, bless­aður,“ …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Líf með Downs

„Frábært að lifa lífinu eins og maður er“
ViðtalLíf með Downs

„Frábært að lifa líf­inu eins og maður er“

Katla Sif Ægis­dóttir hlaut gull­verð­laun í 50 metra skrið­sundi á Special Olympics í sumar. Katla Sif, sem er 23 ára, býr hjá for­eldrum sínum en stefnir á að fara í sjálf­stæða búsetu með vin­konu sinni fljót­lega. Henni finnst „dálítið hræði­legt“ að fóstrum sé eytt ef líkur eru taldar á Downs- heil­kenni hjá barn­inu og hefur hún upp­lifað for­dóma á eigin skinni.
„Mikilvægast er að hann fær að vera með“
ViðtalLíf með Downs

„Mik­il­væg­ast er að hann fær að vera með“

Sólný Páls­dóttir segir ekki hafa hvarflað að henni þegar Hilmir Sveins­son sonur hennar lá fyrir tólf árum í hita­kassa á Land­spít­al­anum að hann ætti eftir að verða fót­bolta- og körf­bolta­strákur. Hún segir mik­il­vægt að Hilmir hafi alltaf fengið að vera með í íþrótta­starf­inu í heimabæ þeirra, Grinda­vík og í gegnum íþrótt­irnar hafi hann eign­ast trausta vini.
„Fólk með Downs heilkenni getur lifað innihaldsríku lífi“
FréttirLíf með Downs

„Fólk með Downs heil­kenni getur lifað inni­halds­ríku lífi“

Fyrr á þessu ári var talið að síð­asta barnið með Downs-heil­kenni væri fætt á Íslandi en þá hafði ekk­ert barn með heil­kennið fæðst í rúm tvö ár. Síðan þá hafa hins vegar tvær stúlkur fæðst með Downs-heil­kenni. Sér­fræð­ingar segja þrýst á verð­andi mæður að fara í skimanir á með­göngu og að rang­hug­myndir ríki um líf með auka­litn­ing­inn.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár