Niður tímans í ARS LONGA

List­fræð­ing­ur­inn Margrét Elísabet Ólafs­dóttir rýnir í sýn­ing­una Hvað var, hvað er, hvað verður?

Niður tímans í ARS LONGA
ARS LONGA Hvað var, hvað er, hvað verð­ur?
Myndlist

Sýning: hvað var, hvað er, hvað verður?

Niðurstaða:

Sýningin hvað var, hvað er, hvað verður? er í heild vel úthugsuð og þannig úr garði gerð að verkin – sem ekki eru öll talin upp – styðja hvert annað. Niður tímans í ARS LONGA

Sýning: Hvað var, hvað er, hvað verður?

Tímabil: 8. júlí – 13. Ágúst

Opnunartími: 12-17 alla daga nema mánudaga

Gefðu umsögn

Hvað var, hvað er, hvað verður? Yfir­skrift sum­ar­sýn­ingar hins árs­gamla sam­tíma­lista­safns Ars longa á Djúpa­vogi má skilja sem vísun í sögu­legt sam­hengi og sam­tal ólíkra kyn­slóða lista­manna sem eiga verk á sýn­ing­unni. Þeirra á meðal er Kristján Guð­munds­son og eitt þekktasta verk hans, Þrí­hyrn­ingur í fern­ingi (1971–72). Verkið er gert úr mold sem myndar fer­hyrndan flöt á gólfi en þrí­hyrn­ing­inn þarf áhorf­and­inn að skapa í hug­anum. Tit­ill­inn er margræður og býður upp á ólíkar leiðir til túlk­unar. Ein þeirra er skírskotun til form­fræði og grunn­þátta mynd­listar eins og þeir hafa verið kenndir á öllum skóla­stigum frá því um miðja 20. öld­ina. Verk Krist­jáns Guð­munds­sonar eru hnit­miðuð í fram­setn­ingu og ein­kenn­ast af hár­fínni hugsun og þurrum húmor sem hann beinir að mynd­list­inni og menn­ing­unni í víðum skiln­ingi.

Nýjar vörður

Annað verk eftir Kristján, Vörðu­brot, frá sama tíma­bili, varð frétta­efni þegar það var fjar­lægt af heil­brigð­is­yf­ir­völdum af úti­sýn­ingu á Skóla­vörðu­holt­inu í Reykja­vík sum­arið 1970. Verkið er gert úr form­bök­uðu heil­hveiti­brauði sem er staflað upp líkt og steinum í vörðu og mynda þannig óreglu­legan hrauk. Verkið var end­ur­gert í fyrsta skipti fyrir sýn­ing­una í Ars longa en efni­við­inn má sjá sem tákn um hringrás lífs­ins, upp­skeru þess sem er sáð og ræktað í mold­inni, hnoðað, mótað, bakað og neytt áður en það hverfur aftur til moldar. Sjálf varðan er leið­ar­vísir í villum og má sjá sem mynd­hverf­ingu fyrir list­ina sjálfa og skírskotun í umbreyt­ingar.

BrauðVerkið Vörðu­brot eftir Krisjtán Guð­munds­son

Form verks­ins Vörðu­brot, eins og brauð­unum er staflað upp í Ars longa, á sér form­rænt skyld­menni í verk­inu Án tit­ils (1989-2023) eftir Rögnu Róbers­dóttur sem er gert úr fern­ings­laga hrauni sem er raðað upp í form­fastan þrí­hyrn­ing. Efn­is­kennd og leikur að formi tengir verkin saman en þau sækja einnig grund­völl sinn í tvær skyldar stefnur mynd­listar sjö­unda og átt­unda ára­tug­ar­ins sem eru konsept­list og land list.

Á barmi einhvers 

Við hlið­ina á Þrí­hyrn­ingi í fern­ingi  er að finna verk eftir Harald Jónsson, rauðan fer­hyrn­ing á vegg sem ber tit­il­inn Gátt (2020/2022). Tit­ill­inn vísar í op eða opnun inn í annan heim sem rauði lit­ur­inn tengir við ástríður fremur en and­lega upp­lyft­ingu. Þannig má tengja verkið margræðum Þrí­hyrn­ingi í fern­ingi eftir Kristján og verki Sigurðar Guð­munds­sonar, Galti, a nice girl and a boy (1969) sem er að finna í sama hluta sýn­ing­ar­rým­is­ins. Verk Sigurðar er gert úr hey­sátu og kassa­laga neon­skilti en skiltið er með áletr­un­inni „nice girl and a boy“ sem við hlið hey­sát­unnar skapar hug­renn­inga­tengsl við for­boðnar og ástríðu­fullar athafnir í sát­unni. Verk Sigurðar er ekki heldur laust við húmor og spennu milli menn­ing­ar­heima, þar sem hug­mynd um róm­an­tíska sveita­sælu mætir neón­skilti borg­ar­innar og áhrifum banda­rískrar bíó­menn­ingar.

Heim­ur­inn og ég, eða Samtal við hnött I, III og IIII (2022 og 2023), er tit­ill á þrí­skiptu, þriggja skjáa mynd­bands­verki eftir Ástu Fanneyju Sig­urð­ar­dóttur sem á þess­ari sýn­ingu birt­ist sem and­legur afkom­andi bræðr­anna Krist­jáns og Sigurðar. Hnött­ur­inn er ann­ars vegar upp­blásin plast­blaðra með áprent­uðu landa­korti og glær kúla sem kort af heim­inum spegl­ast í. Samtal mynd­band­anna, sem sýna fætur á grænni gras­flöt sparka „knetti“ og þennan sama „knött“ svífa til him­ins, er ein­stak­lega vel heppnað í ein­fald­leika sínum og lát­leysi, þar sem til­vist­ar­legar spurn­ingar eru settar fram í gáska­fullum leik. Í þessu verki kemur fyrir enn eitt grunn­formið, hring­ur­inn sem einnig birt­ist í mynd­bandi eftir Emmu Heið­ars­dóttur af skótá með gati og hljóð- og vegg­verk­inu Besta útgáfan af þér – tyggigúmmí asmr (2016) eftir Arnfinn Amazeen, sem lætur lítið yfir sér. Þetta er ljós­blár hringur á vegg og heyrn­ar­tól þar sem heyra má smjattað á tyggigúmmíi.

Ein spurn­ing hefur horfið úr umræðu um mynd­list á Íslandi, og það er spurn­ingin: hvað ein­kennir íslenska mynd­list?

Hvað er?

Ein spurn­ing hefur horfið úr umræðu um mynd­list á Íslandi, og það er spurn­ingin: hvað ein­kennir íslenska mynd­list? Um alda­mótin síð­ustu var enn uppi krafa um að þess­ari spurn­ingu væri hægt að svara, en hún virð­ist – sem betur fer – vera að mestu horfin úr umræð­unni. Engu að síður kom hún upp í hug­ann þegar gengið var um sýn­ing­una hvað var, hvað er, hvað verður?, því þótt verkin séu eftir ólíka lista­menn má finna teng­ingar á milli þeirra, og kannski ekki síst ákveð­inn und­ir­tón eða takt, sem kannski mætti kalla nið tím­ans. Nið sem streymir milli kyn­slóða og birt­ist sem upp­sog og end­ur­vinnsla hinna yngri á gjörð­unum hinna eldri, bæði með­vitað og ómeð­vitað. Þetta eru áhrif áhrifa­valda sem hrær­ast á sama blett­inum, í sömu borg­inni eða borg­unum, hvort sem þær heita Reykja­vík eða Amster­dam. Þessar kyn­slóðir sækja sömu bar­ina og opn­anir og þekkj­ast per­sónu­lega eða af orð­spori. Á milli þeirra er and­rúms­loft, hug­mynda­leg tengsl og til­flutn­ingur á næmi, sem jafn­framt á sér upp­sprettu í straumum alþjóð­legrar sam­tíma­listar síð­ustu ára­tuga. Þannig snú­ast við­fangs­efnin ekki um land­fræði­legan stað heldur stað mynd­list­ar­innar í menn­ing­unni. Á þessum stað virð­ist alltaf vera hægt að finna ný svör við sömu spurn­ing­unum um tengsl tví­víðra flata og þrí­víddar, forms og lita, skúlp­t­úrs og arki­tekt­úrs, forma og tungu­máls, efnis og anda, hugs­unar og til­finn­inga. Og það virð­ist alltaf vera hægt að setja fram óvænta nið­ur­stöðu, eitt­hvað ferskt, eins og spurn­ing­anna hafi aldrei verið spurt áður.

Sýningin hvað var, hvað er, hvað verður? er í heild vel úthugsuð og þannig úr garði gerð að verkin – sem ekki eru öll talin upp – styðja hvert annað. Ljós­mynda­safn Unnars Arnar J. Auð­ar­sonar Almanak lands: Safnrit um hlut­föll (2018), gólf­verk Rögnu og mynd­band Sigurðar Guð­jóns­sonar, Jafnvægi (2013), fjalla til að mynda öll um lands­lag en ekki ein­göngu og á ger­ó­líkan hátt. Annað sem virkar ekki eins vel var upp­setn­ing á verki Níelsar Hafstein, Ryk og raka­sugur dauð­vona tungu­máls (2023), við hlið­ina á verki Hildig­unnar Birg­is­dóttur, awuia (2022). Verkið Níelsar naut sín ekki, það skyggði á verk Hildig­unnar – eða hún á hann – og var auk þess óþarf­lega predik­andi í beinum útskýr­ingum þar sem aðrir lista­menn létu sér nægja að gefa í skyn og ýja að merk­ingu. Þetta var þó smá­vægi­legt og kannski smekks­at­riði en styrkur sýn­ing­ar­innar er tví­mæla­laust sam­tal kyn­slóð­anna þar sem í ljós koma marg­slungnir þræðir milli verka sem sum eru sögu­leg og önnur ný. Slíkt er sjald­gæft að sjá gert með þessum hætti á sýn­ingum hér­lendra safna sem verða oftar en ekki að treysta á sund­ur­leita saf­n­eign til að setja fram list­sögu­legt sjón­ar­horn. Þótt ekki sé nema vegna þessa er sér­stakur fengur að sum­ar­sýn­ingu þessa nýja safns á Djúpa­vogi.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár